Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 11hStundum les ég blöðin og finn til aldursins. Hver? Hvar? Hvað? Og í guðanna bænum, hvers vegna? 130
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 23/09/2026Til lukku með daginn, @asdiso.bsky.social ! Ég held alltaf svolítið upp á þessa af okkur 😃 280
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 14/09/2026 “Veistu af hverju við þurrkum okkur?” spyr fjögurra ára guttinn með tóntegund þess sem ætlar að koma með merkilegar upplýsingar. “Nei,” segi ég. “Það er til þess að taka mesta vatnið af” segir hann ábúðarfullur en bætir svo við: “en ekki minnsta vatnið. Við þurfum það.” 070
Reposted by ÁgústaElín Jóseps 🇵🇸 @elinjoseps.bsky.social · 13/09/2026Ofurklár kall 1: Hey kjellingarnar eiga eftir að kvarta yfir kynjakvóta á þessu námskeiði hvað eigum við að gera? Ofurklár kall 2: við búum bara til konu með ofurkröftunum okkar (AI)! 🤓 2283
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 06/09/20264ra ára guttinn, hlaupandi yfir gangbraut: “Ég geng bara rösklega!” 060
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 03/09/2026Fróðleiksmoli dagsins í boði 4ra ára guttans: “Mamma, flóðhestar eru jurtaætur. Ekki matætur.“ 1100
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 30/08/2026“Ég elska þig!” segir 4 ára guttinn og réttir mér samanbrotinn bréfmiða. “Opnaðu hann!” Myndin er af bleiku hjarta. “Oh, en fallegt 😍”, segi ég, “teiknaðirðu þetta sjálfur?” “Já, í leikskólanum. Í leikskólanum teiknaði ég þessa rækju” 080
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 24/08/2026Það er verið að taka til. Eldri drengurinn, sem byrjar í 2. bekk á morgun, kom með skólaverkefnin sín frá því í fyrra og spurði mig hvað hann ætti að gera við þau. “Tja, viltu eiga þetta?” spyr ég. “Já, auðvitað” svarar hann hneykslaður, “þetta eru ljúfar minningar úr fyrsta bekk!” 060
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 12/08/2026Ég, að reyna að fá sjö ára guttann til að hafa áhuga á náttúruvísindum: “Veistu, að það hefur ekki sést almyrkvi í Reykjavík í næstum 600 ár?!” Hann, kominn langt í sinni vegferð að breyta mér í beinaryk: “Ha?!? Varst þú til þá??” 020
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 10/08/2026“Ég lærði um fugl í leikskólanum í dag” tilkynnti leikskólabarnið mér í óspurðum fréttum. “Nú, hvaða fugl?” “Ég … man ekki hvað hann heitir” “Hvernig er hann á litinn?” “Ég veit það ekki” “Ó. Ókei, hvað lærðirðu um fuglinn?” “Ég man það ekki.” Og þar með lauk þessum upplýsandi samræðum. 🐥 2110
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 03/08/2026“Mamma, hvað gerir vatn við hár?” spyr sá 4ra ára. “Ha”, segi ég, “hvað áttu við?” “Mamma, hvers vegna er sett vatn á höfuðið á börnum þegar verið er að útskýra þau?” 070
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 20/07/2026Sjö ára guttinn að horfa á gamalt uppáhaldsvídeó: “Þetta er barnalegt” (Katy Perry, Roar, þegar tígrisdýrið gleypir guttann). Við erum semsagt búin að uppgötva kúlið. 010
Reposted by ÁgústaLauri Myllyvirta @laurimyllyvirta.bsky.social · 16/07/2026There's no fossil fuel based energy security in the age of ubiquitous cheap long-range attack drones. 921948
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 06/07/2026Ég fór í bað án þess að setja nammi í vaskinn (vaskurinn er hennar staður, hundurinn nær ekki í það þar). Smákaka er ekkert sérstaklega reið, meira … vonsvikin. 030
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 05/07/2026Ég var að slá með rafmagnssláttuorfi þegar spottinn kláraðist. “Afhverju hættirðu að slá?” spurði eldri drengurinn. “Mig vantar nýjan spotta, ég þarf að sjá hvort við eigum annan” sagði ég. Og þá kom sá 7ára, bráðum 43ja, með þennan eðalpabba: “Ferðu ekki bara á Spottify?!” 070
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 03/07/2026Já, það er fúlt hvað það getur verið erfitt að setja jákvætt spin á uppsagnir þeirra sem vinna við að setja jákvætt spin á það sem þú gerir. 130
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 02/07/2026Hvert í þreifandi. Og ég sem var að vonast eftir góðu veðri um helgina 😩 020
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 20/06/2026Ég mun aldrei hætta að ergjast yfir því að það sé ekki hægt að leita eftir talmáli á streymisveitum. 😡😡😡😡 110
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 16/06/2026showyourstripes.info/l/europe/ice...showyourstripes.infoShow Your StripesVisualising how the climate has changed for every country across the globe 010
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 14/06/2026Ég að pósa með rabbarbara eins og karlmenn pósa með fisk: 070
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 13/06/2026Ég að taka til í eldhúsinu: Það er ekki orðið snyrtilegt. En! Það er snyrtilegra en það var. Og snyrtilegra er *betra* en snyrtilegt! Er það ekki? ER ÞAÐ EKKI!!? 150
Reposted by ÁgústaMaría Sólveig @majasolla.bsky.social · 12/06/2026Djöfull má þetta borgarráð fokka sér. 1111
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 08/06/20264ára guttinn, upp úr eins manns hljóði: “Mamma, ef ég segi ‘einn’, er það þá ein sekúnda?” “Já, svona nokkurn veginn,” svaraði ég. Smá þögn. Svo sagði hann, íhugull: “Mamma. Sekúndur eru stórskrýtnar.” 020
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 07/06/20264ára guttinn: “Mamma, má ég fara út að hjóla?” Ég: “Jájá” Hann: “Hvar er hjálmurinn minn?” Ég: “ég held að hann sé úti á hjólinu þínu” Hann, labbandi út: “Hjálmur? Hjááálmur!” 170
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 03/06/2026Ekkert vera að spá í að eignast heimili. Hugsaðu um það hvernig þú getur lyft fasteignamarkaðinum. 020
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 02/06/2026Var í Hamraborginni rétt áðan. Þar gerði þessi pínulitli bíll, sem á góðum degi tekur rúmlega hálft stæði, heiðarlega tilraun til að leggja í þrjú stæði í einu. Honum tókst það ekki alveg, enda líka aðeins fyrir utan stæðin líka, en dayum. Respect. 360
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 01/06/2026“Mamma”, sagði 4ra ára guttinn, “ég get ekki rólað lengur.” “Nú” sagði ég, “af hverju ekki?” “Sko”, kom svarið, “það eru tvö bein sem voru föst saman og svo losnuðu þau. Hérna” og benti á hnéð á sér. “Þá get ég ekki lengur beygt hnén” Sagði hann, grafalvarlegur, uppi í sófa með fæturna undir sér. 160
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 30/05/2026Við fyrstu sýn lítur þetta út eins og einhver hafi borið á eða sandað grasföt nokkuð óhóflega. Eða bara sett ókjörin öll af grasfræi á flötina. En ekki er allt sem sýnist… 210
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 29/05/2026Ég kemst æ meir úr jafnvægi því lengur sem ég horfi á þessa mynd. 350
Reposted by ÁgústaLauri Myllyvirta @laurimyllyvirta.bsky.social · 29/05/2026How has the oil market balanced after the closure of the Strait of Hormuz? Drop in supply from the Gulf has averaged 10 mbd after rerouting, and just five countries have absorbed 9 mbd of that: China, U.S., Japan, Brazil and South Korea. Will they keep doing it? 23013
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 27/05/2026Ég velti fyrir mér hvort trumparans verði minnst sem þess bandaríska forseta sem (óviljandi) gerði mest allra til að koma á orkuskiptum. 120
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 25/05/2026Það er sól og blíða. Drengirnir tóku hjólin sín og eru núna að hjóla eftir gangstéttinni á götunni okkar með jafnöldrum sínum. Ég sit út á palli með kaffi og áhyggjur. 010
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 17/05/2026A leiðinni heim úr sveitinni. Til að komast hjá bílaleiða var farið í leiki. Einn leikurinn: hugsaðu um teiknimynd og allir aðrir eiga að giska hvaða mynd það er. Annar drengurinn: “Má velja Mamma Mia?” Ég: “Nei, það er leikin mynd”. Drengurinn:”Ó, *teiknuð* teiknimynd!” 120
Reposted by ÁgústaInga, MSc. ♀️ @irg19.bsky.social · 12/05/2026Nú er góður tími til að minna á að Brynjar Níelsson lagði fram alls eitt frumvarp (4x það sama) á þingmannsferli sínum og það var til að refsa mæðrum fyrir að halda börnum sínum frá ofbeldismönnum. Hann er í 3.sæti á lista XD í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum #kosningar 0238
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 03/05/2026Ein ástæða þess að ég elska AI er að það neyðir karlmenn til að díla við endalaust sjálfsörugga besservissera sem hafa rangt fyrir sér og notar gullhamra til að stýra þeim. Sjáiði hvernig vandamálið er gervigreindin, ha, núna? 092
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 05/04/2026Hér eru páskar með súkkulaði og sjónvarpsglápi, fótbolta. Samningaviðræður áttu sér stað hvort ætti að halda með hvítum eða bláum. Niðurstaðan var hvítur. Svo hvíslaði sá yngri að pabba sínum: “Ekki segja en ég held með bláum”. Þessi drengur á eftir að komast langt. 000
Reposted by ÁgústaScissors @scissors.myatproto.social · 04/04/2026me: why does no one take my threats seriously? my threats: 15848259
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 27/03/2026Hann: það vantar mjólk og brauð, ekkert annað. Viltu fara út í búð? Ég, mætt í Bónus: Hmm, það er nú eitt og annað sem væri nice to have. Kvittun: kr. 27.002.- takk 2150
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 14/03/2026Eldri drengurinn byrjaði upp úr eins manns hljóði að kyrja: “Riiiiiice crispies, I gave you my heart, and the very next day…” og ég er svo confused. 050
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 13/03/2026Enginn: Fjögurra ára guttinn, að smyrja þriðju nutella samlokuna sína: “Ég borða mjög hollan mat” Ég: *hósthósthóst* Sex ára guttinn: “Ætlarðu að segja pabba þennan?!” 🤪 Já… líka… 010
Ágústa @agustakrunkar.bsky.social · 13/03/2026Langar ykkur ekki að sjá kött í baði? Auðvitað langar ykkur til þess, hvernig spyr ég. 151