Það er verið að taka til. Eldri drengurinn, sem byrjar í 2. bekk á morgun, kom með skólaverkefnin sín frá því í fyrra og spurði mig hvað hann ætti að gera við þau. “Tja, viltu eiga þetta?” spyr ég. “Já, auðvitað” svarar hann hneykslaður, “þetta eru ljúfar minningar úr fyrsta bekk!”