Sign in

Fréttastofa RÚV

@ruv.is
1.3K followers 1.2K following 815 posts

Helstu fréttir af atburðum líðandi stundar, bæði innanlands og erlendis. Latest news from the newsroom of RÚV.

PostsRepliesMedia
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 10/09/2026
Donald Trump, þá nýendurkjörinn forseti Bandaríkjanna, hringdi í Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, í nóvemberlok 2024, fáeinum dögum fyrir kosningar, og bryddaði upp á því hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna.
ruv.is
Þegar Trump hringdi í Bjarna - RÚV.is
Donald Trump, þá nýendurkjörinn forseti Bandaríkjanna, hringdi í Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, í nóvemberlok 2024, fáeinum dögum fyrir kosningar, og bryddaði upp á því hvort Ísland ...
050
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/08/2026
Deildarmyrkvi er hafinn. Hér er beint streymi frá Látrabjargi: www.youtube.com/watch?v=h0EQ...
youtube.com
Total solar eclipse Iceland 2026
YouTube video by RÚV
071
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 31/07/2026
Áhafnarmeðlimir Bandero gáfu tökumanni RÚV friðarmerki frá skipinu. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir skipverja hafa skapað hættulegar aðstæður í gær. Fréttavakt hér: www.ruv.is/frettir/innl...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/07/2026
Í umfjöllun The Guardian kemur fram að orðalagið „kysst hönd“ sé aðeins málvenja, enginn kyssi hendur þjóðhöfðingjans lengur.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/07/2026
Samkvæmt yfirlýsingu frá bresku hirðinni segir að Karl konungur hafi beðið Burnham um að mynda nýja ríkisstjórn. „Burnham þáði boð konungs og kyssti hönd hans þegar konungur skipaði hann forsætisráðherra og fyrsta fjármálaráðherra.“
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/07/2026
Andy Burnham er nýr forsætisráðherra Bretlands. Karl Bretakonungur setti hann formlega í embætti á fundi í Buckingham-höll á tólfta tímanum. Hann er 59. forsætisráðherra Bretlands og sá sjötti á síðustu tíu árum.
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 24/06/2026
Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að ESB? Fyrstu þættirnir birtast á spilara RÚV og hlaðvarpsveitum laugardaginn 27. júní.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 24/06/2026
Nýtt hlaðvarp kemur út á laugardag: Baldvin Þór og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti. Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið, í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni.
250
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/05/2026
Í opnunarávarpi sínu sagði Long að Ísland væri leiðandi á sviði stöðugrar og ódýrrar orku og að sú þekking skapaði veruleg tækifæri fyrir samstarf ríkjanna. Bandaríkin vildu styrkja ráðandi stöðu sína á orkumarkaði og knýja áfram næstu kynslóð gervigreindar og gagnavera.
ruv.is
Umdeildur sendiherra Trumps á Íslandi færist nær staðfestingu - RÚV.is
Billy Long færðist skrefi nær staðfestingu sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í gærkvöld. Long var ríkisskattstjóri um stund en var vikið úr því starfi og boðið starf sendiherra á Íslandi.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 29/04/2026
Flokkur fólksins fagnar 10 ára afmæli í ár. Þingmenn flokksins gæddu sér á marsípanköku með bleiku kremi í tilefni af deginum. Inga Sæland var í beinni frá eldhúsinu þar sem flokkurinn var stofnaður.
ruv.is
Fengu sér köku á 10 ára afmæli - RÚV.is
Fengu sér köku á 10 ára afmæli
000
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 28/04/2026
Kjósendum mæta nýir kjörkassar í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þeir eru úr plasti og eiga að leysa viðarkassana af hólmi og létta störf kjörstjórna.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Ein ástsælasta kvikmynd Íslandssögunnar lifnar við í sumar þegar stórsöngleikurinn Með allt á hreinu verður settur á svið í Háskólabíói í glænýrri leikgerð. Nánar hér: www.ruv.is/frettir/menn...
ruv.is
Með allt á hreinu verður að leiksýningu: „Þetta er yngsta þjóðsaga okkar Íslendinga“ - RÚV.is
„Það er svolítið vandmeðfarið hvernig þú ferð að þessu. Sérstaklega þegar unga fólkið kemur og ætlar að krukka eitthvað í þessu,“ segir Katla Njáls sem skrifaði glænýja leikgerð að söngleiknum Með allt á hreinu.
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Hver er uppáhalds línan ykkur úr Með allt á hreinu?
240
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Forsætisráðherra segir aðgerðirnar ekki koma í staðinn fyrir umbætur til lengri tíma en að stundum þurfi að „taka í bremsuna“ til að hemja verðhækkanir. Hún ætlar líka að efna til þríhliða samtals stjórnvalda, ASÍ og SA til að vinna á verðbólgu.
031
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
ruv.is
Færeyjar vilja ganga í EFTA - RÚV.is
Ný ríkisstjórn í Færeyjum vill sjálfræði í viðskiptasamningum. Meðal annars vill hún kanna möguleikann á að ganga í EFTA og gera eigin fríverslunarsamninga við Evrópusambandsríki.
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Ný ríkisstjórn í Færeyjum vill sjálfræði í viðskiptasamningum. Meðal annars vill hún kanna möguleikann á að ganga í EFTA og gera eigin fríverslunarsamninga við Evrópusambandsríki.
150
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Hér greinum við frá helstu viðbrögðum við fráfalli Björgvins Halldórssonar tónlistarmanns.
ruv.is
Þjóðin minnist goðsagnarinnar Bó - RÚV.is
Íslenska þjóðin minnist Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta og afkastamesta tónlistarmanns þjóðarinnar, sem fallinn er frá.
040
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 08/04/2026
Bæði væri takmarkað hversu langan texta væri hægt að skrifa á Heilsuveru og að auki taldi viðkomandi að erindi sitt ætti ekki erindi við aðra starfsmenn heilsugæslunnar en lækninn sinn, hvorki móttökuritara né annað starfsfólk. Heilsugæslan neitaði að upplýsa um netfangið.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 08/04/2026
Áhugavert mál: Einstaklingurinn hafði samband við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í haust og bað um netfang heimilislæknis síns. Hann taldi vefinn Heilsuveru ekki henta til þess.
ruv.is
Fær ekki að vita netfangið hjá heimilislækninum sínum - RÚV.is
Einstaklingur sem vildi geta sent tölvupóst beint á heimilislækni sinn verður að sætta sig við að senda skilaboð í gegnum Heilsuveru. Úrskurðarnefnd upplýsingamála varð að úrskurða um hvort hann ætti ...
130
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Íbúi á Breiðdalsvík varð ók fram á snjóflóð, grjóthrun og hreindýrahjörð á leið sinni til vinnu í morgun. www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Sá grjóthrun, snjóflóð og hreindýrahjörð á leið í vinnuna - RÚV.is
Íbúi á Breiðdalsvík varð ók fram á snjóflóð, grjóthrun og hreindýrahjörð á leið sinni til vinnu í morgun. Foreldrar barna í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla hafa löngum reynt að vekja athygli Vegager...
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir stöðu Framsóknarflokksins, sem mældist í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups utan þings, ekki líta vel út. Hann spyr hvort vænlegt sé fyrir flokkinn að setja upp „svolítið meira vinstra bros.“
ruv.is
Spyr hvort Framsókn ætti frekar að leita til vinstri - RÚV.is
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir stöðu Framsóknarflokksins, sem mældist í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups utan þings, ekki líta vel út. Hann spyr hvort vænlegt sé fyrir flo...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Átök Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hafa staðið síðan í lok febrúar og ekki er útlit fyrir að þeim linni á næstunni þrátt fyrir friðarumleitanir. Trump hefur gefið Írönum frest þar til í kvöld til að semja og opna Hormússund. Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
ruv.is
„Heil siðmenning deyr í kvöld“ - RÚV.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að heil siðmenning verði þurrkuð út í kvöld ef Íranar semja ekki við Bandaríkjamenn. Frestur sem hann gaf Írönum til að semja og opna Hormússund rennur út í kvöld.
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
„Heil siðmenning deyr í kvöld“ nema Íranar ákveði að semja við Bandaríkin, segir Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann birti færslu á Truth Social þar sem hann var töluvert harðorðari gagnvart Írönum en áður.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Ráðherrar hafa vald til að banna erlendum ríkisborgurum að koma til Bretlands ef viðurvist þeirra er ekki talin vera til almannaheilla. Ákvörðunin hafi verið tekin á þeim forsendum. Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
ruv.is
Bresk stjórnvöld banna Kanye West að koma til landsins - RÚV.is
Tónlistarhátíðinni Wireless hefur verið aflýst. Tónlistarmaðurinn Kanye West átti að vera aðalatriðið á hátíðinni en bresk stjórnvöld hafa bannað honum að koma til landsins. Hann hefur lýst yfir andúð...
030
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Tónlistarhátíðinni Wireless hefur verið aflýst. Tónlistarmaðurinn Kanye West átti að vera aðalatriðið á hátíðinni en bresk stjórnvöld hafa bannað honum að koma til landsins. Hann hefur lýst yfir andúð á gyðingum og hrifningu á nasisma.
140
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Ákvörðunin sætti harðri gagnrýni og brugðust sælgætisframleiðendurnir tveir við með því að framleiða páskaegg og gefa starfsfólki spítalans.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Fyrr í mánuðinum greindi Morgunblaðið frá því að vegna niðurskurðar fengju starfsmenn ekki páskaegg frá Landspítalanum eins og tíðkast hefur. Úrræðið var sagt vera til að mæta þriggja til fjögurra milljarða króna niðurskurðarkröfu ríkisstjórnarinnar. Um stærsta vinnustað landsins er að ræða.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Starfsfólk Landspítalans hefur fengið afhent sjö þúsund páskaegg frá sælgætisframleiðendunum Góu og Omnom. Síðasta sending þeirra var keyrð út í dag, til hjartadeildarinnar.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Í viðtali við breska blaðið Telegraph segir Trump að Bretar „eigi ekki einu sinni sjóher. Þið eruð of gömul og áttuð flugmóðurskip sem virka ekki.“ www.ruv.is/frettir/erle...
ruv.is
Trump íhugar alvarlega að hætta í NATO - RÚV.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti íhugar alvarlega að draga Bandaríkin úr Atlantshafsbandalaginu. Í samtali við Telegraph segir hann bandalagið vera pappírstígur. Það sé eitthvað sem bæði hann og Rússlan...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Í samtali við Telegraph segir hann bandalagið vera pappírstígur. Það sé eitthvað sem bæði hann og Rússlandsforseti átti sig á.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Það er fleira gult en páskaungarnir þessa dagana. www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Gular viðvaranir vegna páskahrets - RÚV.is
Veðurstofan varar við suðaustan- og sunnanhríð og jafnvel stormi á stórum hluta landsins frá því seint í kvöld þar til síðla annað kvöld. Líklegt er að samgöngur fari víða úr skorðum.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 30/03/2026
www.ruv.is/frettir/erle...
ruv.is
Norðmenn lækka eldsneytisskatt tímabundið - RÚV.is
Norðmenn greiða lægri skatt á eldsneyti frá 1. apríl til 1. september. Norsk stjórnvöld lækka eldsneytisskatt tímabundið til að bregðast við hækkandi heimsmarkaðsverði af völdum átakanna í Mið-Austurl...
000
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 30/03/2026
Jens Stoltenberg fjármálaráðherra Noregs segir að ákveðið hafi verið að grípa til skjótra aðgerða.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 30/03/2026
Mikilvægar upplýsingar fyrir áhugafólk um sæðisgæði: www.ruv.is/frettir/innl...
050
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 19/03/2026
Tengt þessu: Vegir eru lokaðir vegna veðurs og á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. Innanlandsflug raskast vegna hvassviðris. www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Veðurviðvaranir: Nær öllu innanlandsflugi aflýst - RÚV.is
Sunnan hvassviðri eða stormi er spáð um allt land í dag og næstu daga. Síðustu gulu viðvaranir falla ekki úr gildi fyrr en á laugardag. Vegir eru lokaðir vegna veðurs og á óvissustigi vegna snjóflóðah...
021
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 19/03/2026
Veðurstofan varar við veðri í dag. Þið getið skoðað veðurvef okkar á ruv.is til að fá yfirlit: www.ruv.is/vedur
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 18/03/2026
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er í þriðja sæti yfir lengstu umræður í fyrri umferð frá aldamótum.
ruv.is
Þriðja lengsta umræðan frá aldamótum - RÚV.is
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er í þriðja sæti yfir lengstu umræður í fyrri umferð frá aldamótum.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 16/03/2026
Forsætisráðherra Breta segir að unnið sé að raunsærri áætlun um opnun Hormússunds en að NATO komi þar hvergi að. Bandaríkjaforseti hefur sagt það vont fyrir framtíð NATO ef aðildarríkin myndu ekki aðstoða í Íran. Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 16/03/2026
Tónlistarkonan Laufey heillaði aðdáendur sína í Kórnum um helgina. Tónleikarnir voru sannkallað sjónarspil. Fleiri myndir hér: www.ruv.is/frettir/innl...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 13/03/2026
Séra Geir Waage, tengdafaðir sonar Davíðs, er prestur. Tómas Guðni Eggertsson er organisti, Sigurgeir Agnarsson leikur á selló, Kristinn Sigmundsson syngur Við Vatnsmýrina eftir Sigfús Halldórsson, við ljóð Tómasar Guðmundssonar. Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar syngur.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 13/03/2026
Þétt setið er í Hallgrímskirkju þar sem útför Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóra, fer nú fram.
ruv.is
Davíð Oddsson jarðsunginn - RÚV.is
Útför Davíðs Oddssonar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Davíð fær opinbera útför. Hún er opin öllum og verður send út í sjónvarpi. Davíð var forsætisráðherra lengur en nokkur annar, borgarstjóri...
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/03/2026
Um leið hafi verið lögð áhersla á að það sé hlutverk alþjóðlegra dómstóla að skera úr um hvort um hópmorð, sem einnig sé kallað þjóðarmorð, sé að ræða.
ruv.is
Ísland tekur þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael - RÚV.is
Íslensk stjórnvöld taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Farið er fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gasa.
031
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/03/2026
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti segir að íslensk stjórnvöld hafi fordæmt bæði hryðjuverkaárás Hamas og hernaðaraðgerðir Ísraels, sem og hörmulegt mannúðarástand á Gasa.
1134
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/03/2026
RÚV fagnar sjötugsafmæli Bubba Morthens með sjónvarpsþáttum um bestu lög tónlistarmannsins. Þjóðinni gefst færi á að kjósa sín uppáhalds Bubba-lög sem tekin verða fyrir í þáttunum.
ruv.is
Kjóstu þitt uppáhalds Bubba-lag - RÚV.is
RÚV fagnar sjötugsafmæli Bubba Morthens með sjónvarpsþáttum um bestu lög tónlistarmannsins. Þjóðinni gefst færi á að kjósa sín uppáhalds Bubba-lög sem tekin verða fyrir í þáttunum.
000
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/03/2026
Aukningin skýrist fyrst og fremst af vopnasendingum til Úkraínu eftir innrás Rússlands árið 2022 og því að mörg Evrópuríki hafa aukið vopnakaup til að styrkja eigin varnir.
ruv.is
Evrópa hefur ekki keypt jafn mikið af vopnum síðan í kalda stríðinu - RÚV.is
Stríðið í Úkraínu, ógn frá Rússlandi og óvissa um Bandaríkin eru sögð ástæða breytingarinnar.
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/03/2026
Vopnasendingar milli ríkja jukust um 9,2% á árunum 2021–2025 ef miðað er við fimm ára tímabilið þar á undan. Þetta er mesta aukning sem mælist frá árunum 2011–2015, samkvæmt nýjum gögnum Alþjóðlegu friðarrannsóknastofnunarinnar í Stokkhólmi, SIPRI.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 06/03/2026
Ríkisstjórnin leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst um það hvort halda eigi samningaviðræðum við Evrópusambandið áfram.
ruv.is
Leggja til þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður 29. ágúst - RÚV.is
Utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið á ríkisstjórnarfundi í dag. Í kjölfarið verður blaðamannafundur þar sem áform um þjóðaratkvæðagreiðslu v...
080
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 03/03/2026
Veðurstofan gerir ráð fyrir að kvikumagn undir Svartsengi verði það mesta sem safnast hefur milli eldgosa frá því að hrinan hófst í desember 2023. Kvika hefur safnast í um 210 daga og um 22,5 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir.
030
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 26/02/2026
Upplýsingafulltrúi Icelandair biðlar til farþega sem eru á leið til Norður-Ameríku að fylgjast vel með tilkynningum frá Icelandair um mögulegar breytingar á flugi. www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Þurftu að hverfa frá Keflavík vegna veðurs - RÚV.is
Sjö flug á vegum Icelandair hafa þurft að lenda á Reykjavíkurflugvelli og á Akureyri vegna slæmra veðurskilyrða í Keflavík. Röskunin gæti haft áhrif á flugáætlun Icelandair síðdegis.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 26/02/2026
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði í samtali við fréttastofu að þarna hafi gert veðurhvell með þungum, blautum snjó, hvassviðri og lélegu skyggni um klukkan hálf þrjú. Vélar frá nokkrum flugfélögum hafi orðið fyrir áhrifum vegna þess. Vonast væri til þess að veður færi skánandi.
130