Sign in

Fréttastofa RÚV

@ruv.is
1.3K followers 1.2K following 815 posts

Helstu fréttir af atburðum líðandi stundar, bæði innanlands og erlendis. Latest news from the newsroom of RÚV.

PostsRepliesMedia
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 31/07/2026
Áhafnarmeðlimir Bandero gáfu tökumanni RÚV friðarmerki frá skipinu. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir skipverja hafa skapað hættulegar aðstæður í gær. Fréttavakt hér: www.ruv.is/frettir/innl...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/07/2026
Samkvæmt yfirlýsingu frá bresku hirðinni segir að Karl konungur hafi beðið Burnham um að mynda nýja ríkisstjórn. „Burnham þáði boð konungs og kyssti hönd hans þegar konungur skipaði hann forsætisráðherra og fyrsta fjármálaráðherra.“
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/07/2026
Andy Burnham er nýr forsætisráðherra Bretlands. Karl Bretakonungur setti hann formlega í embætti á fundi í Buckingham-höll á tólfta tímanum. Hann er 59. forsætisráðherra Bretlands og sá sjötti á síðustu tíu árum.
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 24/06/2026
Á að hefja á ný viðræður um aðild Íslands að ESB? Fyrstu þættirnir birtast á spilara RÚV og hlaðvarpsveitum laugardaginn 27. júní.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 24/06/2026
Nýtt hlaðvarp kemur út á laugardag: Baldvin Þór og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti. Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið, í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni.
250
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 28/04/2026
Kjósendum mæta nýir kjörkassar í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þeir eru úr plasti og eiga að leysa viðarkassana af hólmi og létta störf kjörstjórna.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Hver er uppáhalds línan ykkur úr Með allt á hreinu?
240
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Forsætisráðherra segir aðgerðirnar ekki koma í staðinn fyrir umbætur til lengri tíma en að stundum þurfi að „taka í bremsuna“ til að hemja verðhækkanir. Hún ætlar líka að efna til þríhliða samtals stjórnvalda, ASÍ og SA til að vinna á verðbólgu.
031
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Ný ríkisstjórn í Færeyjum vill sjálfræði í viðskiptasamningum. Meðal annars vill hún kanna möguleikann á að ganga í EFTA og gera eigin fríverslunarsamninga við Evrópusambandsríki.
150
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 08/04/2026
Bæði væri takmarkað hversu langan texta væri hægt að skrifa á Heilsuveru og að auki taldi viðkomandi að erindi sitt ætti ekki erindi við aðra starfsmenn heilsugæslunnar en lækninn sinn, hvorki móttökuritara né annað starfsfólk. Heilsugæslan neitaði að upplýsa um netfangið.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
„Heil siðmenning deyr í kvöld“ nema Íranar ákveði að semja við Bandaríkin, segir Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann birti færslu á Truth Social þar sem hann var töluvert harðorðari gagnvart Írönum en áður.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Tónlistarhátíðinni Wireless hefur verið aflýst. Tónlistarmaðurinn Kanye West átti að vera aðalatriðið á hátíðinni en bresk stjórnvöld hafa bannað honum að koma til landsins. Hann hefur lýst yfir andúð á gyðingum og hrifningu á nasisma.
140
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Starfsfólk Landspítalans hefur fengið afhent sjö þúsund páskaegg frá sælgætisframleiðendunum Góu og Omnom. Síðasta sending þeirra var keyrð út í dag, til hjartadeildarinnar.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Í samtali við Telegraph segir hann bandalagið vera pappírstígur. Það sé eitthvað sem bæði hann og Rússlandsforseti átti sig á.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 30/03/2026
Jens Stoltenberg fjármálaráðherra Noregs segir að ákveðið hafi verið að grípa til skjótra aðgerða.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 30/03/2026
Mikilvægar upplýsingar fyrir áhugafólk um sæðisgæði: www.ruv.is/frettir/innl...
050
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 19/03/2026
Veðurstofan varar við veðri í dag. Þið getið skoðað veðurvef okkar á ruv.is til að fá yfirlit: www.ruv.is/vedur
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 16/03/2026
Forsætisráðherra Breta segir að unnið sé að raunsærri áætlun um opnun Hormússunds en að NATO komi þar hvergi að. Bandaríkjaforseti hefur sagt það vont fyrir framtíð NATO ef aðildarríkin myndu ekki aðstoða í Íran. Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 16/03/2026
Tónlistarkonan Laufey heillaði aðdáendur sína í Kórnum um helgina. Tónleikarnir voru sannkallað sjónarspil. Fleiri myndir hér: www.ruv.is/frettir/innl...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 13/03/2026
Séra Geir Waage, tengdafaðir sonar Davíðs, er prestur. Tómas Guðni Eggertsson er organisti, Sigurgeir Agnarsson leikur á selló, Kristinn Sigmundsson syngur Við Vatnsmýrina eftir Sigfús Halldórsson, við ljóð Tómasar Guðmundssonar. Karlakórinn Fóstbræður undir stjórn Árna Harðarsonar syngur.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/03/2026
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti segir að íslensk stjórnvöld hafi fordæmt bæði hryðjuverkaárás Hamas og hernaðaraðgerðir Ísraels, sem og hörmulegt mannúðarástand á Gasa.
1134
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/03/2026
Vopnasendingar milli ríkja jukust um 9,2% á árunum 2021–2025 ef miðað er við fimm ára tímabilið þar á undan. Þetta er mesta aukning sem mælist frá árunum 2011–2015, samkvæmt nýjum gögnum Alþjóðlegu friðarrannsóknastofnunarinnar í Stokkhólmi, SIPRI.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 03/03/2026
Veðurstofan gerir ráð fyrir að kvikumagn undir Svartsengi verði það mesta sem safnast hefur milli eldgosa frá því að hrinan hófst í desember 2023. Kvika hefur safnast í um 210 daga og um 22,5 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir.
030
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 26/02/2026
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði í samtali við fréttastofu að þarna hafi gert veðurhvell með þungum, blautum snjó, hvassviðri og lélegu skyggni um klukkan hálf þrjú. Vélar frá nokkrum flugfélögum hafi orðið fyrir áhrifum vegna þess. Vonast væri til þess að veður færi skánandi.
130
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 26/02/2026
Landsréttur hefur sakfellt Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðing, fyrir manndráp af gáleysi. Dómurinn var kveðinn upp í dag. Nánar um þetta mál hér á vef okkar: www.ruv.is/frettir/innl...
000
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 25/02/2026
Í réttarhöldum yfir Høiby, syni Mette-Marit krónprinsessu Noregs, var rifist um Onlyfans og rætt um skapið hans. Þú getur lesið nánar um réttarhöldin hér: www.ruv.is/frettir/erle...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 25/02/2026
„Við höfum áhyggjur af stöðunni í heild,“ segir Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. „Gangarnir eru mikið nýttir og þeir eru nýttir umfram það sem neyðaráætlun gerir ráð fyrir.“
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafi ekki haft vald til að setja einhliða tolla á fjölda viðskiptaríkja í fyrra.
150
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
Áhugi á óþekktum fljúgandi farartækjum hefur vaxið mikið í Bandaríkjunum á undanförnum árum eftir að tilkynningum um slíkt tók að fjölga. Stjórnvöld óttast helst að helstu andstæðingarnir séu að prófa háþróaða tækni.
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
Trump sagði í færslu á Truth Social gríðarlegan áhuga fólks á þessum fyrirbærum kveikjuna að fyrirskipuninni en tilgreindi ekki hvort skjölin yrðu aðgengileg almenningi. Málefnið væri þó flókið og sérstaklega áhugavert.
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 19/02/2026
Konungurinn heitir stuðningi við rannsókn yfirvalda. Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
030
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 18/02/2026
Mark Zuckerberg ber vitni fyrir dómi í Bandaríkjunum í dag í máli gegn samfélagsmiðli hans, Instagram. Ung kona, sem byrjaði sem barn að nota Instagram og Youtube, segir fyrirtækin sem eiga þessa samfélagsmiðla hafa hannað þá til að gera þá meira ávanabindandi fyrir börn til að auka hagnað.
140
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 16/02/2026
Tvær konur, Anahita Babaei og Elissa Bijou, voru í dag sakfelldar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa farið í heimildarleysi um borð í hvalskip í Reykjavíkurhöfn í september 2023 og neitað að yfirgefa skipið.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/02/2026
Vladyslav Heraskevych, magasleðakappi frá Úkraínu, hefur verið dæmdur úr leik á Ólympíuleikunum vegna hjálms sem sýnir myndir af úkraínsku íþróttafólki sem fallið hefur í innrásum Rússa í Úkraínu.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/02/2026
Í greinargerð með tillögunni segir að 59 prósent Íslendinga séu í ofþyngd eða með offitu og 26 prósent barna. 22 prósent fullorðinna eru með offitu og sjö prósent barna.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/02/2026
Fjórum markmiðum er lýst í því sem ætti að verða framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu gegn offitu.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/02/2026
Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur kynnt tillögu að þingsályktun um drög að aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi sem vinna ætti næstu fimm árin.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 06/02/2026
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 06/02/2026
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 06/02/2026
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 06/02/2026
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hitti þrjá mannanna og lögmenn þeirra í gær, en hún hafði áður sagt augljóst að kerfið hefði brugðist börnunum. Að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun sagði Kristrún að ákvörðun hefði verið tekin um fjögur atriði til að bregðast við málinu.
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 06/02/2026
Málefni Bakkakots, sem fjallað var um í fréttaskýringaþættinum Kveik í vikunni, var rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 06/02/2026
Gleðilegan föstudag og takk fyrir að fylgja okkur á samfélagsmiðlum.
0142
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 04/02/2026
Nokkuð er um furðulegar rukkanir fyrir hinu nýja kílómetragjaldi. Rútubílstjóri á Egilsstöðum harðneitar að borga næstum tuttugu milljónir fyrir að aka tæpa milljón kílómetra í janúar. Útilokað er að sama rútan komist 25 hringi um jörðina á 31 degi.
140
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 04/02/2026
Móðir Guðmundar Freys Magnússonar segist hafa rænt honum frá sveitabænum Bakkakoti. „Hvað átti ég að gera?“ spyr hún. „Átti ég að láta hana eyðileggja hann? Nei.“ Guðmundur afplánar 17 ára fangelsisdóm á Spáni fyrir morð. Hann er einn fimm manna sem segist hafa orðið fyrir grófu ofbeldi í Bakkakoti.
130
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 03/02/2026
„Á ÉG AÐ GERA ÞAÐ?“ Ef þið misstuð ef þessu: Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, gerði margvíslegar athugasemdir við tækjabúnaðinn í þingsal. Hann lauk máli sínu á að bregða sér í líki Indriða.
030