Sign in

Fréttastofa RÚV

@ruv.is
1.3K followers 1.2K following 815 posts

Helstu fréttir af atburðum líðandi stundar, bæði innanlands og erlendis. Latest news from the newsroom of RÚV.

PostsRepliesMedia
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 10/09/2026
Donald Trump, þá nýendurkjörinn forseti Bandaríkjanna, hringdi í Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, í nóvemberlok 2024, fáeinum dögum fyrir kosningar, og bryddaði upp á því hvort Ísland ætti að verða 51. ríki Bandaríkjanna.
ruv.is
Þegar Trump hringdi í Bjarna - RÚV.is
Donald Trump, þá nýendurkjörinn forseti Bandaríkjanna, hringdi í Bjarna Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, í nóvemberlok 2024, fáeinum dögum fyrir kosningar, og bryddaði upp á því hvort Ísland ...
050
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/08/2026
Deildarmyrkvi er hafinn. Hér er beint streymi frá Látrabjargi: www.youtube.com/watch?v=h0EQ...
youtube.com
Total solar eclipse Iceland 2026
YouTube video by RÚV
071
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 31/07/2026
Áhafnarmeðlimir Bandero gáfu tökumanni RÚV friðarmerki frá skipinu. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir skipverja hafa skapað hættulegar aðstæður í gær. Fréttavakt hér: www.ruv.is/frettir/innl...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/07/2026
Andy Burnham er nýr forsætisráðherra Bretlands. Karl Bretakonungur setti hann formlega í embætti á fundi í Buckingham-höll á tólfta tímanum. Hann er 59. forsætisráðherra Bretlands og sá sjötti á síðustu tíu árum.
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 24/06/2026
Nýtt hlaðvarp kemur út á laugardag: Baldvin Þór og Patrekur Jaime tækla ESB umræðuna, hvor með sínum hætti. Í hverri viku fá þeir til sinn sama viðmælandann, í sitt hvort viðtalið, í von um að ólíkar nálganir þeirra geti hjálpað hlustendum að svara stóru spurningunni.
250
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/05/2026
Í opnunarávarpi sínu sagði Long að Ísland væri leiðandi á sviði stöðugrar og ódýrrar orku og að sú þekking skapaði veruleg tækifæri fyrir samstarf ríkjanna. Bandaríkin vildu styrkja ráðandi stöðu sína á orkumarkaði og knýja áfram næstu kynslóð gervigreindar og gagnavera.
ruv.is
Umdeildur sendiherra Trumps á Íslandi færist nær staðfestingu - RÚV.is
Billy Long færðist skrefi nær staðfestingu sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í gærkvöld. Long var ríkisskattstjóri um stund en var vikið úr því starfi og boðið starf sendiherra á Íslandi.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 29/04/2026
Flokkur fólksins fagnar 10 ára afmæli í ár. Þingmenn flokksins gæddu sér á marsípanköku með bleiku kremi í tilefni af deginum. Inga Sæland var í beinni frá eldhúsinu þar sem flokkurinn var stofnaður.
ruv.is
Fengu sér köku á 10 ára afmæli - RÚV.is
Fengu sér köku á 10 ára afmæli
000
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 28/04/2026
Kjósendum mæta nýir kjörkassar í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þeir eru úr plasti og eiga að leysa viðarkassana af hólmi og létta störf kjörstjórna.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Hver er uppáhalds línan ykkur úr Með allt á hreinu?
240
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Forsætisráðherra segir aðgerðirnar ekki koma í staðinn fyrir umbætur til lengri tíma en að stundum þurfi að „taka í bremsuna“ til að hemja verðhækkanir. Hún ætlar líka að efna til þríhliða samtals stjórnvalda, ASÍ og SA til að vinna á verðbólgu.
031
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Ný ríkisstjórn í Færeyjum vill sjálfræði í viðskiptasamningum. Meðal annars vill hún kanna möguleikann á að ganga í EFTA og gera eigin fríverslunarsamninga við Evrópusambandsríki.
150
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/04/2026
Hér greinum við frá helstu viðbrögðum við fráfalli Björgvins Halldórssonar tónlistarmanns.
ruv.is
Þjóðin minnist goðsagnarinnar Bó - RÚV.is
Íslenska þjóðin minnist Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta og afkastamesta tónlistarmanns þjóðarinnar, sem fallinn er frá.
040
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 08/04/2026
Áhugavert mál: Einstaklingurinn hafði samband við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í haust og bað um netfang heimilislæknis síns. Hann taldi vefinn Heilsuveru ekki henta til þess.
ruv.is
Fær ekki að vita netfangið hjá heimilislækninum sínum - RÚV.is
Einstaklingur sem vildi geta sent tölvupóst beint á heimilislækni sinn verður að sætta sig við að senda skilaboð í gegnum Heilsuveru. Úrskurðarnefnd upplýsingamála varð að úrskurða um hvort hann ætti ...
130
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Íbúi á Breiðdalsvík varð ók fram á snjóflóð, grjóthrun og hreindýrahjörð á leið sinni til vinnu í morgun. www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Sá grjóthrun, snjóflóð og hreindýrahjörð á leið í vinnuna - RÚV.is
Íbúi á Breiðdalsvík varð ók fram á snjóflóð, grjóthrun og hreindýrahjörð á leið sinni til vinnu í morgun. Foreldrar barna í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla hafa löngum reynt að vekja athygli Vegager...
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir stöðu Framsóknarflokksins, sem mældist í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups utan þings, ekki líta vel út. Hann spyr hvort vænlegt sé fyrir flokkinn að setja upp „svolítið meira vinstra bros.“
ruv.is
Spyr hvort Framsókn ætti frekar að leita til vinstri - RÚV.is
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, segir stöðu Framsóknarflokksins, sem mældist í nýjasta þjóðarpúlsi Gallups utan þings, ekki líta vel út. Hann spyr hvort vænlegt sé fyrir flo...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
„Heil siðmenning deyr í kvöld“ nema Íranar ákveði að semja við Bandaríkin, segir Donald Trump Bandaríkjaforseti. Hann birti færslu á Truth Social þar sem hann var töluvert harðorðari gagnvart Írönum en áður.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 07/04/2026
Tónlistarhátíðinni Wireless hefur verið aflýst. Tónlistarmaðurinn Kanye West átti að vera aðalatriðið á hátíðinni en bresk stjórnvöld hafa bannað honum að koma til landsins. Hann hefur lýst yfir andúð á gyðingum og hrifningu á nasisma.
140
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Starfsfólk Landspítalans hefur fengið afhent sjö þúsund páskaegg frá sælgætisframleiðendunum Góu og Omnom. Síðasta sending þeirra var keyrð út í dag, til hjartadeildarinnar.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Í samtali við Telegraph segir hann bandalagið vera pappírstígur. Það sé eitthvað sem bæði hann og Rússlandsforseti átti sig á.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 01/04/2026
Það er fleira gult en páskaungarnir þessa dagana. www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Gular viðvaranir vegna páskahrets - RÚV.is
Veðurstofan varar við suðaustan- og sunnanhríð og jafnvel stormi á stórum hluta landsins frá því seint í kvöld þar til síðla annað kvöld. Líklegt er að samgöngur fari víða úr skorðum.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 30/03/2026
Jens Stoltenberg fjármálaráðherra Noregs segir að ákveðið hafi verið að grípa til skjótra aðgerða.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 30/03/2026
Mikilvægar upplýsingar fyrir áhugafólk um sæðisgæði: www.ruv.is/frettir/innl...
050
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 19/03/2026
Tengt þessu: Vegir eru lokaðir vegna veðurs og á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. Innanlandsflug raskast vegna hvassviðris. www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Veðurviðvaranir: Nær öllu innanlandsflugi aflýst - RÚV.is
Sunnan hvassviðri eða stormi er spáð um allt land í dag og næstu daga. Síðustu gulu viðvaranir falla ekki úr gildi fyrr en á laugardag. Vegir eru lokaðir vegna veðurs og á óvissustigi vegna snjóflóðah...
021
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 19/03/2026
Veðurstofan varar við veðri í dag. Þið getið skoðað veðurvef okkar á ruv.is til að fá yfirlit: www.ruv.is/vedur
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 18/03/2026
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er í þriðja sæti yfir lengstu umræður í fyrri umferð frá aldamótum.
ruv.is
Þriðja lengsta umræðan frá aldamótum - RÚV.is
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er í þriðja sæti yfir lengstu umræður í fyrri umferð frá aldamótum.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 16/03/2026
Forsætisráðherra Breta segir að unnið sé að raunsærri áætlun um opnun Hormússunds en að NATO komi þar hvergi að. Bandaríkjaforseti hefur sagt það vont fyrir framtíð NATO ef aðildarríkin myndu ekki aðstoða í Íran. Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 16/03/2026
Tónlistarkonan Laufey heillaði aðdáendur sína í Kórnum um helgina. Tónleikarnir voru sannkallað sjónarspil. Fleiri myndir hér: www.ruv.is/frettir/innl...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 13/03/2026
Þétt setið er í Hallgrímskirkju þar sem útför Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóra, fer nú fram.
ruv.is
Davíð Oddsson jarðsunginn - RÚV.is
Útför Davíðs Oddssonar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Davíð fær opinbera útför. Hún er opin öllum og verður send út í sjónvarpi. Davíð var forsætisráðherra lengur en nokkur annar, borgarstjóri...
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/03/2026
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti segir að íslensk stjórnvöld hafi fordæmt bæði hryðjuverkaárás Hamas og hernaðaraðgerðir Ísraels, sem og hörmulegt mannúðarástand á Gasa.
1134
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/03/2026
RÚV fagnar sjötugsafmæli Bubba Morthens með sjónvarpsþáttum um bestu lög tónlistarmannsins. Þjóðinni gefst færi á að kjósa sín uppáhalds Bubba-lög sem tekin verða fyrir í þáttunum.
ruv.is
Kjóstu þitt uppáhalds Bubba-lag - RÚV.is
RÚV fagnar sjötugsafmæli Bubba Morthens með sjónvarpsþáttum um bestu lög tónlistarmannsins. Þjóðinni gefst færi á að kjósa sín uppáhalds Bubba-lög sem tekin verða fyrir í þáttunum.
000
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 09/03/2026
Vopnasendingar milli ríkja jukust um 9,2% á árunum 2021–2025 ef miðað er við fimm ára tímabilið þar á undan. Þetta er mesta aukning sem mælist frá árunum 2011–2015, samkvæmt nýjum gögnum Alþjóðlegu friðarrannsóknastofnunarinnar í Stokkhólmi, SIPRI.
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 06/03/2026
Ríkisstjórnin leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst um það hvort halda eigi samningaviðræðum við Evrópusambandið áfram.
ruv.is
Leggja til þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður 29. ágúst - RÚV.is
Utanríkisráðherra kynnir þingsályktunartillögu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið á ríkisstjórnarfundi í dag. Í kjölfarið verður blaðamannafundur þar sem áform um þjóðaratkvæðagreiðslu v...
080
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 03/03/2026
Veðurstofan gerir ráð fyrir að kvikumagn undir Svartsengi verði það mesta sem safnast hefur milli eldgosa frá því að hrinan hófst í desember 2023. Kvika hefur safnast í um 210 daga og um 22,5 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast fyrir.
030
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 26/02/2026
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, sagði í samtali við fréttastofu að þarna hafi gert veðurhvell með þungum, blautum snjó, hvassviðri og lélegu skyggni um klukkan hálf þrjú. Vélar frá nokkrum flugfélögum hafi orðið fyrir áhrifum vegna þess. Vonast væri til þess að veður færi skánandi.
130
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 26/02/2026
Landsréttur hefur sakfellt Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðing, fyrir manndráp af gáleysi. Dómurinn var kveðinn upp í dag. Nánar um þetta mál hér á vef okkar: www.ruv.is/frettir/innl...
000
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 25/02/2026
Efnið gengur kaupum og sölum á samfélagsmiðlum og er bein að unglingum sem vilja „lookmaxa“ 👇 www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Sprauta sig með ólöglegum peptíðum til að líta betur út - RÚV.is
Einn hefur leitað á eitrunarmiðstöð eftir að hafa sprautað sig með ólöglegu peptíði. Efnið gengur kaupum og sölum á samfélagsmiðlum og markaðssetning snýr oft að unglingum sem hafa sprautað sig með ef...
021
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 25/02/2026
Í réttarhöldum yfir Høiby, syni Mette-Marit krónprinsessu Noregs, var rifist um Onlyfans og rætt um skapið hans. Þú getur lesið nánar um réttarhöldin hér: www.ruv.is/frettir/erle...
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 25/02/2026
„Við höfum áhyggjur af stöðunni í heild,“ segir Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. „Gangarnir eru mikið nýttir og þeir eru nýttir umfram það sem neyðaráætlun gerir ráð fyrir.“
120
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 25/02/2026
Tusk gaf Kristrúnu Prins Póló í kveðjuskyni.
ruv.is
Kristrún lagði áherslu á sérkenni Íslands gagnvart ESB – Tusk gaf henni Prins Póló - RÚV.is
Kristrún Frostadóttir fundaði með Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands í dag. Þau ræddu um framtíð Íslands í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Tusk gaf Kristrúnu Prins P...
060
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að Donald Trump forseti Bandaríkjanna hafi ekki haft vald til að setja einhliða tolla á fjölda viðskiptaríkja í fyrra.
150
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 20/02/2026
Trump sagði í færslu á Truth Social gríðarlegan áhuga fólks á þessum fyrirbærum kveikjuna að fyrirskipuninni en tilgreindi ekki hvort skjölin yrðu aðgengileg almenningi. Málefnið væri þó flókið og sérstaklega áhugavert.
100
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 19/02/2026
Konungurinn heitir stuðningi við rannsókn yfirvalda. Nánar hér: www.ruv.is/frettir/erle...
030
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 18/02/2026
Öskudagurinn er í dag: Fréttastofa leit við og ræddi við nokkra hressa krakka.
ruv.is
Ýmsar furðuverur leita í hitann í Kringlunni og á Glerártorgi - RÚV.is
Hermenn, kúrekar, draugar, prinsessur og margs konar matvælaumbúðir héldu í Kringluna í dag í tilefni öskudagsins til að syngja og fá nammi að launum. Þá var stemningin ekki minni á Glerártorgi á Aku...
030
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 18/02/2026
Mark Zuckerberg ber vitni fyrir dómi í Bandaríkjunum í dag í máli gegn samfélagsmiðli hans, Instagram. Ung kona, sem byrjaði sem barn að nota Instagram og Youtube, segir fyrirtækin sem eiga þessa samfélagsmiðla hafa hannað þá til að gera þá meira ávanabindandi fyrir börn til að auka hagnað.
140
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 16/02/2026
Tvær konur, Anahita Babaei og Elissa Bijou, voru í dag sakfelldar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa farið í heimildarleysi um borð í hvalskip í Reykjavíkurhöfn í september 2023 og neitað að yfirgefa skipið.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/02/2026
Birting Epstein-skjalanna hefur haft meiri áhrif í Evrópu en Bandaríkjunum. Hverjir hafa stigið til hliðar eftir að hafa birst í skjölunum?
ruv.is
Fólkið í Epstein-skjölunum sem hefur stigið til hliðar - RÚV.is
Birting Epstein-skjalanna hefur haft meiri áhrif í Evrópu en Bandaríkjunum. Hverjir hafa stigið til hliðar eftir að hafa birst í skjölunum?
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/02/2026
Háskólaráð samþykkti hækkun skráningargjalda fyrir Háskóla Íslands á fundi í dag. Nemendur mótmæltu áformum um hækkunina við upphaf fundarins.
ruv.is
Samþykktu hækkun skráningargjalda í 100.000 krónur - RÚV.is
Háskólaráð samþykkti hækkun skráningargjalda fyrir Háskóla Íslands á fundi í dag. Nemendur mótmæltu áformum um hækkunina við upphaf fundarins.
020
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/02/2026
Vladyslav Heraskevych, magasleðakappi frá Úkraínu, hefur verið dæmdur úr leik á Ólympíuleikunum vegna hjálms sem sýnir myndir af úkraínsku íþróttafólki sem fallið hefur í innrásum Rússa í Úkraínu.
010
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 12/02/2026
Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur kynnt tillögu að þingsályktun um drög að aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi sem vinna ætti næstu fimm árin.
110
Fréttastofa RÚV @ruv.is · 10/02/2026
24 voru handteknir í samræmdum aðgerðum Europol gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Ellefu þeirra voru handteknir á Íslandi. Glæpagengið smyglaði kókaíni frá Suður-Ameríku til Íslands í gegnum Spán. www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Ellefu handteknir á Íslandi í stórri aðgerð Europol í fimm löndum - RÚV.is
24 voru handteknir í samræmdum aðgerðum Europol gegn skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Ellefu þeirra voru handteknir á Íslandi. Glæpagengið smyglaði kókaíni frá Suður-Ameríku til Íslands í gegnum S...
030