Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 8hÉg verð bara að nefna það að heildarnafnaskrá Yfirréttarins I-VI er orðin svo öflug að ég var þegar með 7 af þessum 8 mönnum á skrá, núna þegar skjalahalinn neyðir mig til að hoppa 30 ár aftur í tímann frá 1750 til 1722. 130
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 9hHúsnæði Þjóðskjalasafns, áður en það hýsti Þjóðskjalsafn. Ef ykkur finnst götumyndin fútúrísk og framúrstefnuleg þá er það af því að hún er tekin 3 árum fyrir fæðingu mína, en afar stuttur tími hefur liðið frá þeim merka atburði. 060
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 08/10/2026Og það er allt að gerast í kjaradeilunum! 140
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 06/10/2026Hluti af bls. 2 af 5 í skjalaskrá Barnsfaðernismáls Sunnefu Jónsdóttur gegn Hans Wium. Skjalaskrár málanna eru eitt af undrum útgáfunnar, sannkallaður lykill að því ruglingslega innihaldi sem við bjóðum upp á. Málið er bara að fátt er jafn yfirþyrmandi ruglingslegt og þessar blessuðu skjalaskrár. 010
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 01/10/2026Og við höfum öll farið á byggðasöfn og séð torfbæi og önnur 19. aldarhús, en gangnabærinn er bara eitthvað allt annað. Ég les þetta og ég á virkilega erfitt með að sjá fyrir mér umhverfið. Og hvernig stendur á því að Hans Wium, sem bjó á sama bæ, getur þóst hafa ekkert vitað af þessu? 020
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 01/10/2026Um daginn deildi ég því á fb að ég vildi að það væri til svipuð bók og börnin á Hvuttahólum eftir Mauri og Tarja Kunnas um íslenska sögu. Hún gerist á 19. öld og ég gæti sætt mig við það, þó 18. öld væri auðvitað draumurinn. Íslensk fortíð er að svo mörgu leyti öðruvísi en allt annað. 120
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 01/10/2026Hér er samantekt Brynjólfs á því hvaða fötum og vinnubúnaði hann glataði. (Öll þessi skjöl eru komin til vegna tryggingamála.) Brynjólfur var fæddur 22. ágúst 1884 og lést 19. mars 1954. 000
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 01/10/2026Var að setja heimild mánaðarins í sýningarskáp á lestrarsal, skv. venju. Sé ég þá ekki að samkvæmt duttlungum alheimsins hét einn háseti á Nirði nafninu sem ég var að hneykslast yfir í gær að væri ekki algengara en það er, Brynjólfur Gíslason. 110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 30/09/2026Brynjólfurinn sem ég var að leita að er sá næstefsti. Gekk í Hólaskóla en fékk aldrei að verða prestur því hann eignaðist barn utan hjónabands með fegurstu konu Eyjafjarðar, Guðrúnu sól Aradóttur. Og einhvers staðar hefur skort áhugann á að leysa það með eftiráhjónabandi og bréfum til biskups. 030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 30/09/2026Ótrúlega skrítið að ekki sé vitað um neinn með nafnasamsetninguna Brynjólfur Gíslason fyrr en árið 1638. Og bara 32 með þetta basic bitch nafn í allri Íslandssögunni. 130
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/09/20261) Ég mundi eftir Totoro blýantinum 2) Einhver hafði laumað almennilegum blýanti á borðið þegar ég mætti Böndin berast óneitanlega að hinum skjalaverði ÞÍ sem er á bluesky. 0110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/09/2026Einnig dáðist ég að þessu tréaltari „frá 18. öld“ en úr hvaða kirkju það er get ég því miður ekki sagt. Ég tók mynd af neðri hlutanum (á þeim efri var biblíumálverk) af því að mér fannst áletrunin svo skrítin. „Þeir sem altarinu þjóna hafa not af altarinu.“ = Óviðkomandi bannaður aðgangur, eða? 2100
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/09/2026Texti á veggjum safnsins innihélt líka alls konar undarlegheit, eins og þá fullyrðingu að Akranes hefði verið kristið svæði allt frá landnámi. Óneitanlega athyglisvert. Allavega, hér er mynd af fallegu, ótímasettu salúnáklæði í barnavöggu. 191
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/09/2026Á föstudaginn póstaði ég ekkert, og vann heldur ekkert, því það var starfsmannaferð. Við fórum m.a. á byggðasafnið í Görðum. Safnið fór í taugarnar á mér fyrir að hafa mjög almennan og óupplýsandi texta. Ég meina, kaffibaukur? Ókei? Síðan hvenær og hvaðan er þessi ágæti kaffibaukur? 3160
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 24/09/2026Ég er látin vinna með alls óhæfan blýant, sexhyrndan og óhúðaðan, einhvern uppgjafaþjóðskjalasafnsvarning frá guð má vita hvenær. Ég óttast bæði blöðrur á fingrum og flísar. Verð að muna að koma með Totoro blýant að heiman eftir helgi. 180
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 24/09/2026Ég fékk boð í tölvupósti á listviðburð með yfirskriftinni „Mér býður við litagleði bókakjalanna ykkar.“ Það lifnaði yfir mér og ég fór strax að velta fyrir mér hvort þarna væri ekki kominn einhver sem myndi kunna að meta Yfirréttinn. 170
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026Góðu fréttirnar eru þær að nú á ég ekkert eftir nema viðaukann. (Og nei ég veit ekki af hverju viðaukinn hjá okkur heitir jafn flóknu nafni) Slæmu fréttirnar eru þær að viðaukinn er rétt yfir 1/5 af heildartextanum. (160 bls. í word) 030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026Brimarhólms-Landbjartur er sá eini sem er skráður sem skyldmenni mitt, í 9. lið. (Hann og sonur Þorláks prestlausa sýslumanns voru þremenningar.) En jæja, aftur að því sem ég á að vera að gera svo ég geti lesið Bókatíðindi kinnroðalaust á aðventunni. 030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026Nafnauppgötvun dagsins: Landbjartur. Ævi Landbjarts nr. 2 allævintýralegt. Á listann vantar Landbjart, pabba Landbjarts nr. 3 og Landbjart, föður lögréttumannsins Jóns Landbjartssonar á s. hl. 15. aldar. (Sem leiddi mig á braut þessa nafns í Lögréttumannatali) 290
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026Kaldar kveðjur úr ísskáp kaffistofunnar. 160
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 19/09/2026Í kjölfarið fékk Þorsteinn auðvitað æði fyrir syfílis og sýfilisóttanum og skrifaði um það grein. Þá var ég ekki búin að lesa hina frábæru bók Sendibréf frá íslenzkum konum 1784-1900 þar sem leynist þessi gullmoli frá 1807, og harma það alla daga að það hafi orðið útundan í rannsókninni: 120
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 19/09/2026Ég frétti að þessi ágæta 19. aldar dagbók sem maðurinn minn gaf einu sinni út væri á kostaboði á bókamarkaði Forlagsins. Þar hímir vesalings Ólafur víst á ævisagnaborðinu, umkringdur lofsamlegum ævisögum íslenskra kynferðisofbeldismanna og upplagt ef gott fólk vildi bjarga honum. 1141
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026Á þessum föstudagseftirmiðdegi er ég hugsi yfir hinum óskólagengna sýslumanni Arnóri Jónssyni sem er enn að mæta á Alþingi 2 árum eftir að hann lætur af sýslunni. 57 ára gamall maður á hestbaki úr Borgarfirði. Algjört party animal. 3100
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026Fréttatilkynning! Þessi níu ára strákur árið 1703 lifði af stóru bólu, umgangspestir og sjómennsku á opnum árabátum og var enn á lífi 28. september 1756 þegar hann (62 ára) sat rétt í aukalögþingi í blóðskammarmáli Jóns og Sunnefu Jónsbarna. 060
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026Nei, hættu nú alveg, Múlasýsla! (Aldrei hefur nokkurt par átt jafn mikinn rétt á því að nefna barn sitt afar hversdagslegu nafni) 070
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026En að öllum atriðum íhuguðum hlýtur það eiginlega að vera þessi hér. 120
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026Þar sem ég veit út frá hinu stefnuvitninu og undirskrift þess að Eiríkur býr í Vallnahreppi í Múlasýslu er frekar einfalt að finna réttan bæ. Þarna stendur Miirnes sem verður í orðréttu en ekki stafréttu útgáfunni okkar Mýrnes. 130
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026En vá hvað það lítur 100% út eins og að þarna standi Múrnes. (Ath. þetta er samtímaafrit svo þett er ekki eiginhandarundirskrift þessa mæta manns Eiríks Jónssonar á óljósu nesi) 110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026Talandi um kjánalegar villur, hvernig stendur á því að ég staldraði ekki við á einhverjum tímapunkti þessarar vinnu og hugsaði, Ragnhildur mín, er það mjög líklegt að bær á 18. öld hafa heitið Múrnes? 110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026Eiríkur Rustikusson, sem birti Jóni Sunnefubróður yfirréttarstefnuna á Alþingi 8. júlí 1758. Fékk umsögnina „Undarlegur, en skáldmæltur vel og skrifari góður“ þegar hann var um nírætt. 020
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026Hann og Jón Ólafsson varalögmaður, síðasti maðurinn í þessum þræði, voru bestu vinir og Halldór bjó heima hjá Jóni eftir að konan henti honum út. Þeir voru giftir systrum og þessar systur voru dætur Bjarna Halldórssonar og afabörn Páls Vídalín, sem ég hef ekki mikið álit á. 210
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026Hann virkar frekar venjulegur í skjölum Yfirréttarins en þær segja ekki alla söguna, maðurinn drakk allt áfengið úr skipbroti og passaði ekki upp á Fjalla-Eyvind. Svaka hottie líka en konan hans þoldi hann ekki. 110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026Svo er það Halldór Jakobsson, sýslumaður í Strandasýslu. Mjög frægur maður. Ekki veit ég hvað var málið með að hafa alltaf sýslumann í Strandasýslu sem hafði verið rekinn úr skóla fyrir líkamsrárás. Halldór varð alræmdur fyrir mjög hressilega framgöngu í starfi. 110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026Lýður Guðmundsson. Af óljósum ástæðum fá allir þessir 18. aldar kalla mjög persónulega umsögn í Íslenzkum æviskrám og Lýður er þar ausinn sérstöku lofi. „Talinn með heldri sýslumönnum“ stendur þarna bókstaflega, hvað sem það á nú að þýða. Ég hata Lýð. 340
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026Flesta þeirra kannast ég við frá því ég var að skrifa uppdómsmál frá lokum 18. aldar en ekki þennan, Jón Eggertsson. Þó hann hafi lifað langa ævi í efsta lagi samfélagsins er þetta brútal upptalning. Dó úr „blóðgangi“ og kærastan hans og bæði börnin deyja við fæðinguna. Seinni börnin dóu líka. 120
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026Árið er 1758 og enn á ný erum við að horfa á „nýja og ferska“ embættismenn sem sitja dóm Yfirréttar fagran júlídag á Þingvöllum. Já, hvaða konfektmolar skyldu vera hér á ferð? 170
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026Það er ekki hlaupið að því að kynna heimildaútgáfur fyrir almenningi. Ég ligg því inni á Bókagulli og í hvert sinn sem einhver biður um meðmæli með ScandiNoir er ég mætt og segi: Yfirrétturinn á Íslandi. Dómar og skjöl. er besta bókin. 1100
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 14/09/2026Ég er búin að horfa svo mikið á örnefnið Leiðvöll í Leiðvallarhreppi að upp rifjaðist fyrir mér hið eldgamla meme Leiður Smári. Synd að það sé ekki til neinn fótböltavöllur með þessu nafni. Leiður Smári á Leiðvelli í Leiðvallarhreppi. 040
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 11/09/2026Komdu sæl bók, sjá, allt þetta auða, þurra og ryklausa borðpláss sem ég hef af nostursemi minni búið þér. 060
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 11/09/2026Þetta tiltekna þingvitni hefur aldrei átt neinn alnafna og dó voveiflega. 030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 11/09/2026Mér finnst erfitt að fletta upp hlutum án þess að láta afvegaleiðast af einhverjum alnöfnum þeirra sem ég er að leita að og klikkuðum örlagasögum þeirra í info-hnappnum á Íslendingabók. Vildi bara að ég myndi einn daginn finna aftur manninn sem var sagður hafa verið ... 140
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 11/09/2026Mér mun aldrei hætta að þykja vænt um þessar vinalegu tilraunir excel til að leysa fyrir mig nafnaskrána. Látum öll nöfn enda á -ólfur og heimurinn væri sannarlega skemmtilegri staður. 1100
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 07/09/2026Ég hóf vinnuna við þetta bindi á þeirri uppgötvun að Þorlákur prestslausi, forfaðir minn í 7. lið, hefði ekki verið neitt sérstaklega gæfulegur maður, en þetta getur enn slegið mig af fullum krafti. Ganske ókunnugur! Þetta mál er ástæðan fyrir því að þú ert með sýslumannsembættið, bjáninn þinn. 240
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 02/09/2026Núna er ég að lesa yfir annað smárit á útgáfudagskrá þjóðskjalasafns, um forföður þess í Danmörku sem kallaðist Leyndarskjalasafn. 1849, what a time to be alive 050
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/08/2026Draslkirkja vs. fyrirmyndarkirkja árið 1750. (Dream on Einar Hálfdanarson, það er enginn að fara að borga fyrir þessa skýjaborg, öll orka og peningar munu fara í dómsmál) *ég veit af innsláttarvillunni og leiðrétting er í farvegi **nei ég veit ekki hvað bjórþiljur eru 010
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/08/2026Ari Pálsson var síðasti maðurinn sem var tekinn af lífi fyrir galdra og það var 1681 en málið var tekið aftur upp fyrir Yfirrétti 30 árum síðar. Ef ég man rétt eru öll skjöl úr málinu birt í bindinu. 030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/08/2026Svo mikið af spilunum er með 18. aldar fólki en því miður var ekki ein einasta samsvörun við fólk sem hefur birst í Yfirréttinum! Nærtækasta tengingin er Eiríkur í Vogsósum en maður í II var giftur konu sem hafði verið vinnukona í Vogsósum í manntalinu 1703. Eins langsótt og það verður. 220