Sign in

Ragnhildur Hólmgeirsdóttir

@rakeldur.bsky.social
994 followers 1.4K following 2K posts

Allt um 18. öldina. Brúnar myndir af brúnu hrafnasparki. Ég vinn hjá Þjóðskjalasafni Íslands að útgáfu Yfirrréttarins á Íslandi, tíu binda ritröð sem spannar öll dómsmál Yfirréttarins frá 1690-1800.

PostsRepliesMedia
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 2h
Ótrúlega skrítið að ekki sé vitað um neinn með nafnasamsetninguna Brynjólfur Gíslason fyrr en árið 1638. Og bara 32 með þetta basic bitch nafn í allri Íslandssögunni.
Skjáskot úr ÍSlendingabók af þeim 7 einstaklingum sem báru þetta nafn á 17. og 18. öld.
130
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 29/09/2026
To my Irish mutuals: Derry/Londonderry. In a text about an Icelandic fishing boat destroyed by a submarine in 1918, should this town be referenced to as Derry or as Londonderry? The survivors were welcomed effusively by the inhabitants, so I feel it's double important to get the name right.
596
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/09/2026
Á föstudaginn póstaði ég ekkert, og vann heldur ekkert, því það var starfsmannaferð. Við fórum m.a. á byggðasafnið í Görðum. Safnið fór í taugarnar á mér fyrir að hafa mjög almennan og óupplýsandi texta. Ég meina, kaffibaukur? Ókei? Síðan hvenær og hvaðan er þessi ágæti kaffibaukur?
Mynd af ferköntuðu tréboxi með loki. Lokið er með mynstri sem minnir á lauf eða spaða í spilastokki, X með fjórum laufum á sitthvorum enda. Máð. SKilmerkilega merkt Kaffibuakur//Coffeebox
3160
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 24/09/2026
Ég er látin vinna með alls óhæfan blýant, sexhyrndan og óhúðaðan, einhvern uppgjafaþjóðskjalasafnsvarning frá guð má vita hvenær. Ég óttast bæði blöðrur á fingrum og flísar. Verð að muna að koma með Totoro blýant að heiman eftir helgi.
Mynd af skelfilegum óhúðuðum sexhyrndum blýanti merktur vefslóðinni skjaladagur.is ofan á útkrotuðu vinnublaði
180
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 24/09/2026
Skyndilega hlakka ég mikið til að gera upp þetta bindi Yfirréttarins í löngum bloggpistlum og velja hverri yfirréttarpersónu lag. Í kjölfarið fór ég að velta fyrir mér hverjar væru topp 5 lagaparanir á mínum ferli og hér koma þær:
120
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 24/09/2026
Ég fékk boð í tölvupósti á listviðburð með yfirskriftinni „Mér býður við litagleði bókakjalanna ykkar.“ Það lifnaði yfir mér og ég fór strax að velta fyrir mér hvort þarna væri ekki kominn einhver sem myndi kunna að meta Yfirréttinn.
Mynd af öllum fimm útkomnum bindum Yfirréttarins. Kilirnir eru svartir með gylltu letri og nokkrum gylltum láréttum strikum.
170
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026
Góðu fréttirnar eru þær að nú á ég ekkert eftir nema viðaukann. (Og nei ég veit ekki af hverju viðaukinn hjá okkur heitir jafn flóknu nafni) Slæmu fréttirnar eru þær að viðaukinn er rétt yfir 1/5 af heildartextanum. (160 bls. í word)
Skjáskot af fyrirsögninni sem boðar viðauka í hverju einasta bindi en hún er 
Íslenskt réttarfar
Meðferð dómsmála sem tengd voru yfirréttinum
030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026
Nafnauppgötvun dagsins: Landbjartur. Ævi Landbjarts nr. 2 allævintýralegt. Á listann vantar Landbjart, pabba Landbjarts nr. 3 og Landbjart, föður lögréttumannsins Jóns Landbjartssonar á s. hl. 15. aldar. (Sem leiddi mig á braut þessa nafns í Lögréttumannatali)
Skjáksot af öllum þremur sem koma upp við leit nafnsins Landbjartur í Íslendingabók, f. 1653, 1710 og 1749. Landbjartur (1710) dæmdur á Brimarhólm fyrir rán og íkveikjur.
290
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026
Kaldar kveðjur úr ísskáp kaffistofunnar.
Ljósmynd af neðstu skúffunni í ísskáp. Þar glittir í smjörva, sultu og annað brauðálegg en ofan á skúffunni hvílir plastað A4 blað sem tilkynnir:
Þessi matvæli eru EINGÖNGU fyrir FIMMTUDAGSKAFFI. Ef þið eruð að leita að mat fyrir nesti bendum við á Bónus
160
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026
Þetta þýðir auðvitað líka að ef okkur tekst ekki að koma bókinni út fyrir desember þá munum við líta frekar illa út.
020
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 23/09/2026
Ég er snúin aftur eftir mikið kvef. Mín beið það áríðandi og erfiða verkefni að semja kynningartexta um 6. bindi fyrir Bókatíðindi. Það er erfitt því kynningartextinn fyrir prentuðu útgáfuna má mest vera 350 slög. 350 slög um bók sem getur rotað mann, bæði að umfangi, innihaldi og frametningu.
140
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 19/09/2026
Ég frétti að þessi ágæta 19. aldar dagbók sem maðurinn minn gaf einu sinni út væri á kostaboði á bókamarkaði Forlagsins. Þar hímir vesalings Ólafur víst á ævisagnaborðinu, umkringdur lofsamlegum ævisögum íslenskra kynferðisofbeldismanna og upplagt ef gott fólk vildi bjarga honum.
Ljósmynd af bókinni Hundakæti. Dagbækur Ólafs Davíðssonar 1881-1884. Kápan sýnir svarthvíta ljósmynd af sjálfsánægðum skólapiltum í Lækjargötu (frá seinni tíð en dagbókin) sem hafa fengið smá litríkan útsaum á valdar flíkur.
1141
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026
Á þessum föstudagseftirmiðdegi er ég hugsi yfir hinum óskólagengna sýslumanni Arnóri Jónssyni sem er enn að mæta á Alþingi 2 árum eftir að hann lætur af sýslunni. 57 ára gamall maður á hestbaki úr Borgarfirði. Algjört party animal.
Mynd af færslunni um Arnór í íslenskum æviskrám.
3100
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026
Fréttatilkynning! Þessi níu ára strákur árið 1703 lifði af stóru bólu, umgangspestir og sjómennsku á opnum árabátum og var enn á lífi 28. september 1756 þegar hann (62 ára) sat rétt í aukalögþingi í blóðskammarmáli Jóns og Sunnefu Jónsbarna.
Skjáskot úr Íslendingabók af Sigurði Þorsteinssyni sem árið 1694 bjó ásamt foreldrum og systur á Barnafelli í Þingeyjasýslu
060
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026
Nei, hættu nú alveg, Múlasýsla! (Aldrei hefur nokkurt par átt jafn mikinn rétt á því að nefna barn sitt afar hversdagslegu nafni)
Skjáskot af ábúendum á Surtsstöðum árið 1703, Pétur Rustikusson og Bretteva Sigfúsdóttir eiga soninn Jón Pétursson.
070
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026
Life goals
Skjáskot af samantekt um mann á Íslendingabók:
Útskrifaður úr Hólaskóla 1784. Vígður prestur að Svalbarði 1786. Prestur í Stærri-Árskógi, Stærri-Árskógarsókn, Eyj. 1791-1809. Prestur í Mývatnsþingum 1809-15 og í Húsavík 1815-20. „Orðlagður fyrir skarpleika“, segir í Annálum. „Hann var jafnan sárafátækur og enginn veraldarmaður, skáldmæltur og mjög gæddur dulargáfum.“ segir í Árbók Þingeyinga.
170
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026
Einar Þorvarðsson, hugsa ég þegar ég skoða nöfn dómsmanna að Bessastöðum í Fljótsdal, ágætt, það ætti að vera hægt að finna hann. 29 finnast með þessu nafni í Íslandssögunni. Þar af 5 í Múlasýslu á 18. öld.
140
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 18/09/2026
Talandi um kjánalegar villur, hvernig stendur á því að ég staldraði ekki við á einhverjum tímapunkti þessarar vinnu og hugsaði, Ragnhildur mín, er það mjög líklegt að bær á 18. öld hafa heitið Múrnes?
Skjáskot af texta í word þar sem kemur fyrir nafn stefnuvitnisins Eiríks Jónssonar á „Múrnesi“.
110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026
Eiríkur Rustikusson, sem birti Jóni Sunnefubróður yfirréttarstefnuna á Alþingi 8. júlí 1758. Fékk umsögnina „Undarlegur, en skáldmæltur vel og skrifari góður“ þegar hann var um nírætt.
Skjáskot úr Íslendingabók af Eiríki Rustikussyni, (1712-13. maí 1804)
020
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026
Árið er 1758 og enn á ný erum við að horfa á „nýja og ferska“ embættismenn sem sitja dóm Yfirréttar fagran júlídag á Þingvöllum. Já, hvaða konfektmolar skyldu vera hér á ferð?
Ljósmynd af útkrotuðu vinnublaði þar sem má sjá nöfn 9 karlmanna
170
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026
Það er ekki hlaupið að því að kynna heimildaútgáfur fyrir almenningi. Ég ligg því inni á Bókagulli og í hvert sinn sem einhver biður um meðmæli með ScandiNoir er ég mætt og segi: Yfirrétturinn á Íslandi. Dómar og skjöl. er besta bókin.
Skjáskot af fb hópnum Bókagull þar sem spurt er:
Hvað finnst ykkur bestu íslensku krimma bækurnar?
1100
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 17/09/2026
Það er auðvitað mjög vandræðalegt að vera að útvarpa sínum eigin kjánalegu mistökum í rauntíma en ég hef ákveðið að líta á þetta sem hluta af þeirri opinberu þjónustu sem ég veiti á þessum reikningi. Það þarf ekki að vita allt til að rannsaka sögu Íslands.
080
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 16/09/2026
Ó mig auma, ég verð að éta þetta allt ofan í mig aftur. Margrét á heima í Ísafjarðarsýslu alla sína ævi, þar eru Dalamynni sem finnast bara í skrám yfir útdauð örnefni.
050
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 16/09/2026
Jóhanna yfirréttaryfirritstjóri neitar að antaka það að Margrét hafi flust í Rangárvallasýslu. Nöfn stefnuvottanna (Hallur og Gísli Jónssynir) of algeng til að skera úr um nokkurn hlut. Ofan á þetta bætist að í millitíðinni, árið 1753 heldur Danakonungur að hún búi í Belgsholti í Ísafjarðarsýslu.
110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 15/09/2026
Ári síðar (næstum upp á dag) er ég að gera nafna- og staðaskrá fyrir sama skjal. Og ég sé ekki betur en að Margrét hafi flutt úr Ísafjarðarsýslu yfir í Rangárvallasýslu? Hvað er í gangi!
150
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 14/09/2026
Ég er búin að horfa svo mikið á örnefnið Leiðvöll í Leiðvallarhreppi að upp rifjaðist fyrir mér hið eldgamla meme Leiður Smári. Synd að það sé ekki til neinn fótböltavöllur með þessu nafni. Leiður Smári á Leiðvelli í Leiðvallarhreppi.
Skjáksot af excelskjali þar sem orðið Leiðvöllur kemur leiðinlega oft fyrir.
040
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 11/09/2026
Bóndi á Sultum. Hmm
030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 11/09/2026
Mér finnst erfitt að fletta upp hlutum án þess að láta afvegaleiðast af einhverjum alnöfnum þeirra sem ég er að leita að og klikkuðum örlagasögum þeirra í info-hnappnum á Íslendingabók. Vildi bara að ég myndi einn daginn finna aftur manninn sem var sagður hafa verið ...
skjáskot af harmsögu Þorsteins Þorsteinssonar (1720-1748) á Íslendingabók
140
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 11/09/2026
Tók til á skrifborðinu mínu af kurteisi við frumheimildirnar og núna er ég með víðáttubrjálæði
170
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 11/09/2026
Mér mun aldrei hætta að þykja vænt um þessar vinalegu tilraunir excel til að leysa fyrir mig nafnaskrána. Látum öll nöfn enda á -ólfur og heimurinn væri sannarlega skemmtilegri staður.
Skjáskot af auto-complete uppástungu í excel þar sem sjá má nöfn eins og Bjarnólfur, Páll ólfur, Guðmuólfur, Stefálólfur, Sigurólfur og Gunnaólfur.
1100
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 10/09/2026
Áður en ég dembi mér í nafnarunu excelskjalsins í dag langar mig að minna sjálfa mig á af hverju Yfirrétturinn er yndislegasta og stórkostlegasta heimildaútgáfa Íslandssögunnar. Yfirrétturinn er því miður afar illa varðveitt dómsstig svo þetta er á yfirborðinu algjör þverstæða. En!
160
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 09/09/2026
„ ... að óanséðum nefnds Magnúsar Filippussonar bæði fyrir héraðs- og lögþingisréttinum framfærðum ástæðum og rettesættelser, sem þar í sérdeilis bestanda, að hann þá orðin við Einar talaði var ei maður með öllu viti og forstandi, heldur af drykkkjuskap stórlega yfirfallinn.“
140
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 07/09/2026
Ég hóf vinnuna við þetta bindi á þeirri uppgötvun að Þorlákur prestslausi, forfaðir minn í 7. lið, hefði ekki verið neitt sérstaklega gæfulegur maður, en þetta getur enn slegið mig af fullum krafti. Ganske ókunnugur! Þetta mál er ástæðan fyrir því að þú ert með sýslumannsembættið, bjáninn þinn.
Skjáskot af texta frá 10. júlí 1755:
Veleðla, hávísi herra lögmann.
Ég hefi að sönnu sýnt hér herra amtmannsins ordre til mín hér í rétt að ganga vegna dómsmanna sýslumannsins Erlends í Margrétar Þorgeirsdóttur máli en ég er þeirri sök og hennar ástandi ganske ókunnugur. Því referera ég þeirra forsvar til alls þess sama sem sýslumaðurinn Erlendur færir sínum og þeirra dómi til forsvars, og víðar held mig
240
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 02/09/2026
Núna er ég að lesa yfir annað smárit á útgáfudagskrá þjóðskjalasafns, um forföður þess í Danmörku sem kallaðist Leyndarskjalasafn. 1849, what a time to be alive
Skjáksot af texta í vinnslu þar sem stendur:
Við lok árs 1849 fékk skjalasafnið aukin framlög á fjárlögum (d. budget). Í þeim fólst að fjármagn fyrir ráða mátti vörð á lestrarsalinn og að ráða mátti í tvær styrkþegastöður til þriggja ára í senn. Til útgáfu á ársskýrslu fengust 200 ríkisdalir og til skrifstofunnar 100 ríkisdalir auk eldiviðar. Auk þessa hækkuðu laun allra þannig að þau nær tvöfölduðust frá því sem áður var. Á sama tíma lengdist opnunartími skrifstofunnar úr tveimur tímum í fjóra tíma daglega, en lestrarsalurinn var þó eins og áður aðeins opinn í tvo tíma. Laun leyndarskjalavarðarins hækkuðu úr 1000 ríkisdölum í 1600 auk þess sem hann fékk 660 ríkisdali fyrir að vera konunglegur sagnaritari.
050
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 31/08/2026
... exseqverað úr búi sýslumanns Bjarna til fullnustu þeirra 15 hndr. 87 al. á landsvísu og 52 rixd. 4 mk. í kontent peningum, þeirrar heilu summu belöb, að klukkunnar umsteypingarkostnaði einasta fráreiknuðum, þar þó átti af nefndri summu þar að auki betöluð að álítast 6 hndr. 54 al., og svo ...
140
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 31/08/2026
„Hvað viðvíkur hans protesti, að ei dómur uppsegist í þessari sök fyrr enn hans jarðaálagsmál við landsetana er fyrir bí gengið, sýnist mér nokkuð fráleit ástæða og vil reikna hana fyrir elliglöp sýslumannsins, en ekkert annað, þar mér kemur hans mál við landsetana ekkert við.“
130
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/08/2026
Fyrir tölvupóstinn og/eða einkaskilaboðin: Erugöfugi, vísi og velaktaði valdsmann. Mikilsvirðandi, elskulegi vin. Nú samstundis meðtók ég hans æruríkt tilskrif af 28da hujus ...
040
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/08/2026
Núna er ég komin í seinni fyrirtöku málsins og þá birtist fyrsta skjalið sem Bjarni svaraði kröfunum með: „En þó ég hafi ei getað því resterandi góssi útsvarað, sem hann nú eftir kallar, hefur meira valdið minn vanmáttur og efnaleysi en illvilji. 1/2
110
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/08/2026
Draslkirkja vs. fyrirmyndarkirkja árið 1750. (Dream on Einar Hálfdanarson, það er enginn að fara að borga fyrir þessa skýjaborg, öll orka og peningar munu fara í dómsmál) *ég veit af innsláttarvillunni og leiðrétting er í farvegi **nei ég veit ekki hvað bjórþiljur eru
skjáskot af texta skjals frá 13. ágúst 1750:
Virðist af oss  tilkvöddum viðir þessarar fornu kirkju með hrörlegu kvensæti, hurðinni og öðrum fjölum, sem hún á innan um sig, 8 rdr. specie virði, svo til viðbætis og ofanálags þeirrar nýju  kirkju í Hólmaseli, sem uppgjörast skal af nýjum, sterkum viðum til undirviða, með alþiljuðum kór í 2 stafgólfum, bekkjum innan um hann báðum megin, langbekk fram í kirkjuinni til dyra, sæmilegri byggingu millum kórs og framkirkju, kórdyrastöfum, kirkjudyrastöfum, þrem undirstokkum, nýju kvensæti fyrir framan kórdyr, einninn hurð með vænum lömum, krókum og skrá, 4 glergluggum, hvörjum fyrir ½ rigsdal, nýjum stand- og bjórþiljum bak altaris og framan fyrir kirkju, gjörum vér 74 rigsdali specie. Hverja peningasummu sýslumönnunum, seigneur Bjarna Nikulássyni og Böðvari Jónssyni, prófastur séra Einar Hálfdánarson tilsegir síns embættis vegna promte að afgreiða klausturhöldurunum monsjör Þórði Brynjúlfssyni og monsjör Páli Halldórssyni innan næstkomandi 28. Aug. heim til þeirra heimila etc.
010
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 28/08/2026
Í gær var ég að spila við son minn og notaði í fyrsta sinn Ástu Sig stokkinn sem við höfum lengi átt. Sjúklega flottur en þetta endaði auðvitað með því að ég þurfti að segja barninu sirka 18 útgáfur af ógeðslegum draugasögum í míníútgáfu rétt fyrir háttinn (honum að meinalausu) 1/
Hjartaásinn í spilastokknum sem var myndskreyttur af Ástu Sigurðardóttur og gefinn út fyrir kannski fimm árum. Myndin er af persónugerðri galdrajurt sem kallast Hjónagras.
170
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 27/08/2026
Allt í einu get ég ekki hætt að hugsa um þessi tvö kornabörn. Hvar eru mæður þeirra? Hverjar eru mæður þeirra?
4100
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 27/08/2026
Madame Karítas er Karítas Bjarnadóttir, sem var gift þeim undarlega manni Þorsteini Pálssyni en er þarna orðin ekkja og því farin að standa í sínum eigin málaferlum.
130
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 26/08/2026
Brainfart. Líkþrá er að sjálfsögðu bara holdsveiki. Þetta er nú vandræðalegt. Kannski voru Gísli graði og gálan á Gálutröð heldur ekkert risky heldur bara með holdsveiki.
040
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 26/08/2026
Þetta var síðasti dagskrárliður í beinu útsendingunni Ragnhildur flettir upp í Íslendingabók og lætur allt og ekkert afvegaleiða athygli sína. Útsendingar hefjast aftur á morgun.
040
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 26/08/2026
Ég fletti þessum Gísla upp í gagnagrunni Íslendingabókar og sjá, þar er mér boðið upp á þann áhugaverða fróðleik að samkvæmt Espólín hafi Gísli verið nefndur Gísli graði.
skjáskot af íslendingabók:
8da spursmál: Hvörjir voru þeir menn sem monsjör Jón tilnefndi í þeirra stað, sem úti blifu og sagðir voru sjúkir?
	Svar: „Það var Gísli Sigurðsson á Márskeldu og Guðmundur Sæmundsson á Vogi.“
	9da spursmál: Sagði ég þá ekki að þessi Gísli væri í óbættum sökum fyrir hórdómsbrot?
	Vitnið segir: „Já.“
150
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 26/08/2026
Bæjarheiti dagsins er Gálutröð. Gálutröð Gálutröð Gálutröð!
Mynd af blaðsíðu í prentaðri útgáfu manntalsins 1703
090
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 26/08/2026
a) Hvernig má það vera að enginn hafi heitið Ásgeir Björnsson fyrr en árið 1684? b) Kudos á Vesturfarann Ásgeir Byron
Skjáksot úr Íslendingabók af öllum sem koma upp við leit að Ásgeir Björnsson.
030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 26/08/2026
„Var lostinn líkþrá“ segir í Byskupasögum. Jahá.
Skjáskot úr íslendingabók af öllum sem koma upp við leit að nafninu Ari Eyjólfsson.
160
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 26/08/2026
Í útgáfu Yfirréttarins fljóta stundum með einkabréf. Í ár verður eitt bréf frá manni sem skrifaði amtmanni til að biðja um ráð við málshöfðun sína. Seinni helmingur bréfsins fjallar svo um kálgarðinn hans. En í miðjunni er þessi dularfulla, staka lína. Hver var madame Karítas?
Skjáskot af wordskjali þar sem stendur:
Árni Bjarnason hefur úttekið lögþingisréttarstefnu þar ekkert endilegt andsvar fékk hjá madame Karítas.
030
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir @rakeldur.bsky.social · 26/08/2026
Ég er auðvitað óeðlilega heilluð af lagajargoni 18. aldar, en það eru fá orðasambönd sem jafnast á við „præsenteraði sig fyrir réttinum hinn stórkostlegi herra X“. Þetta felur alveg örugglega í sér einhverskonar strut. Mig langar alltaf að standa á fætur og strunsa hofmóðug um þegar ég les þetta.
Skjáskot úr wordskjali þar sem stendur: Præsenteraði sig fyrir réttinn ehrugöfigur sýslumaðurinn í Dalasýslu, seigneur Magnús Ketilsson, og framlagði einn memorial undir sínu nafni, dat. Hrappsey 12. Aprilis næstliðinn, inngefinn fyrir háeðla og velbyrðigan herra amtmanninn, Magnús Gíslason.
150