Victor @fjallageit.bsky.social · 12hAlltaf mjög fyndið þegar ég byrja að lesa setningu á íslensku og hún fer svona (lýsingarorð sem ég skil ekki) (nafnorð sem ég skil ekki) (sagnorð sem ég skil ekki) OK ég gefst upp þá! 1120
Victor @fjallageit.bsky.social · 02/10/2026Það er svo gott að vinna 100 metrum frá góðum ítölskum veitingastað. Ég mun sakna hans þegar ég flytji úr borginni. 0110
Victor @fjallageit.bsky.social · 01/10/2026Ég gekk inn í Starbucks og frétti að það fengist prótínkaffi?? 210
Victor @fjallageit.bsky.social · 26/09/2026Ég sá veggspjald fyrir týndan kött gert af gervigreind... Með þessum 3 dropum og öllu... 150
Victor @fjallageit.bsky.social · 24/09/2026Ég er að taka til í pósthólfinu. Mér finnst svo ánægjulegt að eyða tölvupóstum. Allt þetta kemur mér ekki við lengur! 0100
Victor @fjallageit.bsky.social · 21/09/2026Ég er orðinn svo góður í því að drepa moskítóflugur með því að klappa saman lófunum (hef æft mig í allt sumar). 020
Victor @fjallageit.bsky.social · 21/09/2026Þessi plata er nýbúin að koma út og ég er alveg hrifinn af henni. Ef ykkur finnst saxófónn góður þá getið þið ekki misst af þessu! Hljómsveitin er meira að segja rúmlega 70% saxófónleikarar. 010
Victor @fjallageit.bsky.social · 20/09/2026Lítil stelpa sem býr í fjölbýlishúsinu setti smá bás á fyrstu hæð til að selja scoubidous. Gera krakkar á Íslandi þetta? 221
Victor @fjallageit.bsky.social · 17/09/2026Er orðið „gloría" ekki úr latínu? Hvernig fékk það þessa merkingu? islenskordabok.arnastofnun.is/ord/15891islenskordabok.arnastofnun.isÍslensk nútímamálsorðabókNý íslensk orðabók með um 50 þúsund flettum. 140
Victor @fjallageit.bsky.social · 15/09/2026Ég smitaðist af einhverri hrottalegri magapest sem gerði sitt besta til að drepa mig í nótt (ég varð svo veikburða að það leið yfir mig þegar ég fór í eldhúsið til að ná í vatnsglas og vaknaði á gólfinu með glerbrot út um allt). 3140
Victor @fjallageit.bsky.social · 13/09/2026Ég er búinn að bæta við 1 manneskju á listann yfir fólk sem var visst að ég lærði finnsku í staðinn fyrir íslensku. 230
Victor @fjallageit.bsky.social · 12/09/2026Hvaðan kemur orðið flogaveiki? Þýðir það að maður í krampakasti „flýgur“? 261
Victor @fjallageit.bsky.social · 09/09/2026Í lestinni var einhver karlmaður að vinna með ChatGPT en konan við hliðina á honum byrjaði að horfa á myndband með alltof háum hljóðstyrk þannig að síminn sinn öskrar „SUMIR HALDA AÐ GERVIGREIND MUNI DREPA OKKUR ÖLL“ 190
Victor @fjallageit.bsky.social · 06/09/2026Ég elska að segja „samkvæmt mínum útreikningum“ eins og vísindamaður í barnamynd. Það þarf ekki einu sinni að útskýra hvernig útreikningar voru gerðir. 090
Victor @fjallageit.bsky.social · 04/09/2026Ég á 1 bol sem er með mjög þröngum kraga þannig að ég get ekki farið í hann án þess að taka af mér gleraugun. Ég veit það. En þegar ég er á þeytingi þá kemur mér nokkuð í hug: Kannski í þetta skipti... 060
Victor @fjallageit.bsky.social · 03/09/2026Ég fékk dürüm í hádegismat. Lambakjöt beint úr grillinu, vafið inn í ferskt flatbrauð með svolitlu grænmeti. Ljúffengt. 030
Victor @fjallageit.bsky.social · 02/09/2026Vinnufélaginn minn er búinn að finna 100€ á gólfinu og það var ekki einu sinni eitthvert gabb! 050
Victor @fjallageit.bsky.social · 31/08/2026Ég hitti einhvern í dag sem finnst laukar ekki góðir. Það er sannarlega alls konar fólk í heiminum. 0110
Victor @fjallageit.bsky.social · 29/08/2026Uppáhalds enskuslettan mín á frönsku: "healthy" (borið fram „elsí“) 050
Victor @fjallageit.bsky.social · 27/08/2026Sérhver orð í orðabók Árnastofnunar er með fjögurra eða fimm tölustafa einstöku númeri (t.d. „flugvirkjun“ er númer 12345) nema „níhilismi“ sem er bara númer 6. Ég veit ekki hvað það þýðir. Kannski ekkert. Kannski er engin þýðing í neinu... 090
Victor @fjallageit.bsky.social · 26/08/2026Mig langar að búa til „Orð dagsins“ bot (svona eins og @onp.ku.dk). Veit einhver hvernig á að gera þetta? 220
Victor @fjallageit.bsky.social · 24/08/2026Mig langar að stofna rannsóknablað sem væri sérhæft í sjávarspendýrafræði og ég myndi kalla það Hnýsna Hnísan 090
Victor @fjallageit.bsky.social · 23/08/2026Nei Vigdís ekki fara í þennan háskóla! Þau kunna augljóslega ekki frönsku (það er málvilla í fyrstu setningunni) 160
Victor @fjallageit.bsky.social · 21/08/2026Þegar ég breyti lyklaborðsstillingu á tölvunni yfir á íslensku verður Cmd+Z (afturkalla) að Cmd+W (loka síðunni). Svo þegar ég skrifa eitthvað og geri mistök eyðist glugginn áður en ég get hugsað... Fingurnir hreyfa hraðar en hugsanir. 140
Victor @fjallageit.bsky.social · 20/08/2026Það er að gerast aftur. Fiskur sleppur út úr orðabókinni. 1111
Victor @fjallageit.bsky.social · 20/08/2026Það er svo spennandi þegar lag sem maður elskar heyrst á útvarpinu. Já ég gæti hlustað á það hvenær sem er en það hljómar betur þegar það kemur óvænt. 030
Victor @fjallageit.bsky.social · 19/08/2026Hvernig er Venn-myndin á „nærstaddur“ og „nærliggjandi“? Má hlutir vera bæði? Eða hvorki? 220
Victor @fjallageit.bsky.social · 18/08/2026Ég er búinn að horfa á Ódysseifskviðu (Ódysseifskvikmynd?). Guð minn góður var þetta leiðinleg, klisjukennd mynd. Og líka óendanleg, sem auðvitað gerir illt verra. 140
Victor @fjallageit.bsky.social · 16/08/2026Það var frekar stór könguló í baðherberginu svo ég fleygði henni út um gluggann (ég bý á fimmtu hæð). Á eftir datt mér í hug að ég hefði átt að athuga hvort það væri einhver fyrir neðan... 090
Victor @fjallageit.bsky.social · 15/08/2026Fleiri hljómsveitir ættu að gera eins og Moses Hightower og vera með vefsíðu sem á eru allir textarnir. 270
Victor @fjallageit.bsky.social · 14/08/2026Ég í vor: Ooh þessi nýja listsýning lítur svo spennandi út! Ok, henni lýkur eftir 4 mánuði. Það er svo langur tími. Ég get örugglega ekki misst af henni... 030