Sign in

Matthildur

@wargur.bsky.social
49 followers 35 following 562 posts
PostsRepliesMedia
Matthildur @wargur.bsky.social · 04/10/2026
Af einhverri ástæðu hefur algóritminn á þessu forriti ákveðið að ég elski blóm, mat og uppskeru fólks á grænmeti sem það hefur sjálft ræktað. En aðallega blóm. Það eru virkilega margir sem setja inn myndir af blómum hingað inn.
040
Matthildur @wargur.bsky.social · 01/10/2026
Hvað er íslenskara en að skatturinn fái frest til 1. okt til að fólk geti sótt um ráðstöfun séreignar en eru svo ekki tilbúnir
040
Matthildur @wargur.bsky.social · 28/09/2026
Erum við að tala um að páskanammið sé komið?
141
Matthildur @wargur.bsky.social · 27/09/2026
Ekki gott tímakaup :(
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 27/09/2026
Mér fannst sérstaklega fyndið að sjá að fleiri litlir strákar voru um svipað leiti að elta frægan mann.
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 24/09/2026
Mínir 9! 🤷‍♀️
010
Matthildur @wargur.bsky.social · 24/09/2026
Bjóst ekki við að sjá Guðmund Inga droppa receipts í dag. Enn eitt alvöru drama í boði FF.
030
Matthildur @wargur.bsky.social · 18/09/2026
Missti ég af einhverju varúlfamemói? Af hverju eru Wolfman og The Wolfman báðar á topp 10 listanum á íslenska Netflix?
000
Matthildur @wargur.bsky.social · 17/09/2026
ticnrny
010
Matthildur @wargur.bsky.social · 17/09/2026
Það hjálpaði heldur ekki hversu grútléleg fréttatilkyningin sem var skrifuð fyrir hann var. Ég held að eitthvað meira persónulegt heldur en þetta sálarlausa PR þvaður sem var birt hefði mögulega komið betur út og ekki reitt fólk jafn mikið til reiði.
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 17/09/2026
Svo sammála. Þetta er óþolandi þróun og fáránlegt að fréttamiðlar séu velta sér upp úr réttarhöldum bara til að búa til auðvelt efni.
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 16/09/2026
Af hverju ekki að ganga lengra? Atkvæði fólks undir 30 gilda 0,5. Fólk eldra en 80 0,5. Ef þú átt 2 eða fleiri börn? Atkvæðið gæti verið x2. Barnlaus eftir 30? Úff, 0,25. Ef lýðræðið þarf ekki að vera sanngjarnt þá getum við bara ákveðið hverjir eru betri þegnar en aðrir og ættu að vega þyngra.
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 16/09/2026
Það er svo ótrúlegt að hugsa til þess að "gervigreind" sem er alin upp á ógrynni mismunandi sköpunar mannfólks æli sama skítnum úr sér aftur og aftur. Ég veit ekki hvað ég get höndlað mikið meira af auglýsinga "veggspjöldum" sem líta öll út fyrir að hafa verið klónuð í sömu verksmiðju. Sem þau eru
030
Matthildur @wargur.bsky.social · 15/09/2026
Kannski er Tutti gervigreindarafkvæmi þessa Ragnars.
static.klipy.com
Whistlindiesel Whistlendeisel Robot
ALT: Whistlindiesel Whistlendeisel Robot
010
Matthildur @wargur.bsky.social · 15/09/2026
Ég fann þetta á Spotify og þar er höfundur "Ragnar Egilsson". Draugasagan er alveg heilar 27 mín og Linda 49 mín. Gergigreindasullið er svo lesið af gervigreind. Fyrir aðeins 4 dollara, það er alveg heill dollari í afslátt eins og er!
110
Matthildur @wargur.bsky.social · 15/09/2026
Það sem ég hef áhyggjur af er tal menntamálaráðherrans okkar um að þýða erlent námsefni fyrir börnin okkar með svona gervigreindarsulli.
1132
Matthildur @wargur.bsky.social · 14/09/2026
Það er alveg rosalega hæpið að kalla þennan dýraverndunarsinna. Ég vildi óska að fjölmiðlar finni sér annað orð í fyrirsagnirnar sínar.
ruv.is
Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við innbrot í dýrabú - RÚV.is
Árni Stefán Árnason dýraverndarlögfræðingur var handtekinn í síðustu viku í tengslum við rannsókn lögreglu á innbrotum í hænsna-, minka- og svínabú.
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 14/09/2026
Ég fór á weeb stað í London um helgina sem var æði eitt og sér og ekki skemmdi að kokteilarnir voru frábærir.
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 13/09/2026
Já, enda er ég í upphafi mánaðarins svo þetta er soldið eins og indverskt brúðkaup hjá mér.
040
Matthildur @wargur.bsky.social · 12/09/2026
Ef ég myndi nenna hári þá myndi ég fá mér Afghan hund.
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 11/09/2026
Hann var það besta við þættina. Eða eiginlega það eina góða í þeim.
010
Matthildur @wargur.bsky.social · 11/09/2026
Ég er alveg mjög opin fyrir þessari mynd, ég hafði mjög gaman af Weapons og Barbarian og vona að myndin nái að fanga Resident Evil á einhvern hátt.
010
Matthildur @wargur.bsky.social · 11/09/2026
Ég hef ekki séð þetta áður, þetta er frábært
010
Matthildur @wargur.bsky.social · 11/09/2026
Ný Resident Evil mynd að koma bráðum. Sama hversu hræðilegar flestar myndirnar og Netflix þættirnir eru þá hef ég samt alltaf gaman af því að sjá þær og held alltaf fast í vonina að þetta nýjasta brjóti bölvunina.
221
Matthildur @wargur.bsky.social · 07/09/2026
Ríkið: Það er nú slæmt að allt fylgi verðbólgunni á sjálfstýringu. Líka ríkið: Að sjálfsögðu hækka öll gjöld sem ríkið innheimtir um andvirði verðbólgunnar.
061
Matthildur @wargur.bsky.social · 31/08/2026
Sonur minn fær útborgað í fyrsta skipti á morgun. Ég spurði hvort hann væri búinn að hugsa eitthvað um hvað hann ætlaði að gera við peninginn. Jújú, hann ætlar að kaupa hníf í Counter Strike (tölvuleik). 🤔
180
Matthildur @wargur.bsky.social · 29/08/2026
Búin að kjósa, þá er að fara að mála unglingaherbergið
000
Matthildur @wargur.bsky.social · 26/08/2026
Ætli gervigreindin hafi ekki líka samið þessa grútlélegu yfirlýsingu frá MS
ruv.is
MS skilur að breytingar á Gotta veki viðbrögð - RÚV.is
Auglýsing Mjólkursamsölunnar fyrir ostinn Gotta hefur vakið hörð viðbrögð fólks sem telur að fyrirtækið noti gervigreind á kostnað íslenskra hönnuða.
120
Matthildur @wargur.bsky.social · 26/08/2026
Ég fékk óvenju "mannlegt" svar frá bandarísku þjónustuveri sem var að svara mér út af pöntun á Obsession varning sem ég hef svo ekkert heyrt af. Þau sögðu einfaldlega að allt hefði farið í rugl hjá þeim af því þau voru ekki undirbúin fyrir hversu vinsæl myndin yrði.
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 25/08/2026
Hjuts ess bansi!!! Vonandi fær hann að ferðast á pallinum með stæl 😭😂
030
Matthildur @wargur.bsky.social · 24/08/2026
Ég reif niður stóra hillueiningu nýlega og er að taka umferð 2 í að fara í gegnum bækur af því að ég get ekki átt allar og núna er þetta talsvert erfiðara verkefni en fyrsta atrenna.
010
Matthildur @wargur.bsky.social · 22/08/2026
Ég las þetta bara og veit ekkert meira um málið en ég myndi hvetja alla sem eiga ekki nána lögerfingja að íhuga að gera erfðaskrá. Ég myndi frekar vilja gefa mínar eignir til góðgerðarsamtaka en að einhver ættingi sem er augljóslega drull fengi mitt samkvæmt einhverjum lögum.
021
Matthildur @wargur.bsky.social · 22/08/2026
Af hverju finnst fólki sem fattar ekki í 3 ár að ættingi þeirra er látinn að eiga eitthvað meira tilkall til eigna mannsins heldur en þeir sem voru í kringum hann?
visir.is
Erfingjar og erfðar­mál - Vísir
Gamall maður, hann Doddi frændi selur íbúðina sína árið 2022, þá 86 ára því hann er á leið á elliheimili. Frændi hans hann Robbi hjálpar honum með söluna og kaupandinn er Jáni athafnamaður, sem kaupir...
120
Matthildur @wargur.bsky.social · 21/08/2026
Ég hef náð því en veit ekki alveg hvernig það tókst.
110
Matthildur @wargur.bsky.social · 17/08/2026
Það er samt gott þegar fólk skrifar þetta því þá er auðvelt að sleppa að lesa rest.
1100
Matthildur @wargur.bsky.social · 17/08/2026
SUMARFRÍ! LET'S GO!
static.klipy.com
Lets Go Dancing
ALT: Lets Go Dancing
020
Matthildur @wargur.bsky.social · 17/08/2026
Ef þetta er skoðað út frá viðskiptahagsmunum þá er þetta svo mikil vitleysa. Svona er þetta rugl bara birt sem frétt. Það er enginn sem þjáist af járnskorti í Afríku að hafa efni á fæðubótarefni framleitt í einu dýrasta landi heims úr afurð sem er ekki eftirspurn eftir.
visir.is
Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í fram­leiðslu fæðubótarefnis - Vísir
Stjórnendur Hvals hf. er hættir að selja hvalkjöt til Japans og hyggjast þess í stað nýta kjötið til framleiðslu á járnbætiefni. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segir járnskort útbreiddan og að þj...
090
Matthildur @wargur.bsky.social · 16/08/2026
Það er bara einn vinnudagur milli mín og mjög langþráðs sumarfrís !!
static.klipy.com
Soon Furby
ALT: Soon Furby
140
Matthildur @wargur.bsky.social · 15/08/2026
Einmitt það sem mig langaði með barn að byrja í 10. bekk. Breyting á lokaeinkunn úr grunnskóla með litlum fyrirvara eða undirbúning.
ruv.is
„Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ - RÚV.is
Ákvörðun menntamálaráðherra að breyta einkunnagjöf í grunnskólum skömmu fyrir upphaf skólaárs er eins og þruma úr heiðskíru lofti. Þetta segir formaður Félags grunnskólakennara. Þá hafi ekkert samráð ...
040
Matthildur @wargur.bsky.social · 13/08/2026
Það er rosalega skilvirkt að taka til í geymslunni með því að henda dóti úr henni. Alveg þangað til að maður fer svo úr geymslunni og íbúðin er í rúst 🤦‍♀️
030
Matthildur @wargur.bsky.social · 09/08/2026
Reyni að forðast allt sem tengist ákveðinni kosningu síðar í mánuðinum. Get ekki hlustað á eða lesið neitt án þess að fá æluna upp í kok.
static.klipy.com
Anime Character Dodging Energy Beams
ALT: Anime Character Dodging Energy Beams
040
Matthildur @wargur.bsky.social · 08/08/2026
Það sem mér finnst sorglegast við að búa í landi þar sem hundahatur hefur verið landlægt að það hafi aldrei verið sett lög sem vernda einstaklinga og nágranna þeirra (og dýrin sjálf) fyrir "hoarding". Einnig vantar gott íslenskt orð yfir dýrasöfnun.
000
Matthildur @wargur.bsky.social · 08/08/2026
Frá 500þ og upp í 20 milljón króna skaðabótakrafa per hund er frekar "delúlú". Svona miðað við hvað íslenskir dómstólar dæma í skaðabætur fyrir skaða á manneskjum.
100
Matthildur @wargur.bsky.social · 05/08/2026
Ég myndi alvarlega íhuga að skella mér ef ég væri ekki með dóttur minni sem myndi mögulega myrða mig fyrir að fara með sig á "anime" söngleik 🥲
110
Matthildur @wargur.bsky.social · 05/08/2026
Þriðja síðasta næturvakt sumarsins (og líklega ársins) að klárast fljótlega. Svo er ég aaaaaalveg að fara komast í mjög langþráð sumarfrí.
040
Matthildur @wargur.bsky.social · 04/08/2026
Af hverju er þetta til og af hverju er verið að sýna þennan söngleik þegar ég fer til London 😭
110
Matthildur @wargur.bsky.social · 30/07/2026
Auðvitað á alls ekki að sleppa þeim en þetta er ömurlegt líf sem þeim er gert að lifa.
140
Matthildur @wargur.bsky.social · 30/07/2026
Ég á rosa erfitt með samkennd að sjá manninn benda á karið með dauðu minkunum þegar þeir voru hvort sem er á leiðinni þangað. Og þegar fólk talar um að minkarnir geti ekki farið aftur inn í hryllingsbúrin sín þá er ég fegin fyrir hönd minkanna. Það átti hvort sem er að slátra þeim öllum.
ruv.is
„Þetta er afleiðing af dýravernduninni þeirra“ - RÚV.is
Hundruð eða jafnvel þúsundir minka sluppu úr loðdýrabúi í Mosfellsdal í dag. Lögregla rannsakar hvort brotist hafi verið inn. Eigandinn telur dýraverndunarsamtök standa á bak við verknaðinn. Afleiðing...
150
Matthildur @wargur.bsky.social · 30/07/2026
Hvað er málið með að allir ákváðu að láta gervigreind búa til auglýsingar fyrir sig sem allar líta nákvæmlega eins út? Ég get þær ekki 🤮 sá meira að segja hvolp auglýstan með ai-mynd á svona auglýsingu nýlega. HVOLP!
030
Matthildur @wargur.bsky.social · 29/07/2026
Ég er oftast að vinna á þessum tíma árs og ég er alltaf smá leið þegar verslunarmannahelgin klárast því umferðin í Reykjavík er svo næs fram að henni á meðan flestir eru í fríi
020