Sign in

Trans Ísland

@transisland.is
116 followers 3 following 62 posts

Félag trans fólks á Íslandi. Félagið er málsvari og stuðnings- og baráttusamtök fyrir réttindum trans fólks á Íslandi. Stofnað 2007. 🏳️‍⚧️ Community-led trans rights advocacy. 🇮🇸🏳️‍⚧️

PostsRepliesMedia
Trans Ísland @transisland.is · 25/06/2026
Stjórn Trans Íslands lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun borgarráðs um að leggja niður mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Yfirlýsinguna má lesa á vef félagsins: transisland.is/yfirlysing-s...
0199
Trans Ísland @transisland.is · 24/04/2026
VIÐ LOFUM að veita stuðning. #ÉGLOFA Stjórn Trans Íslands gefur litlafingursloforð um að styðja baráttuna gegn kynferðisofbeldi gegn börnum. Við hvetjum öll til að leggja baráttunni lið og taka þátt í þessu mikilvæga átaki Barnaheilla. 🩵🩷🤍
Handleggir og hendur fimm manneskja. Á litlu fingrum þeirra er naglalakk í litum transfánans. Fólkið er búið að krækja litlu fingrum sínum saman og mynda þannig hringkeðju.
0152
Trans Ísland @transisland.is · 31/03/2026
Í dag er alþjóðlegur sýnileikadagur trans fólks! Í dag fögnum við trans fólki nær og fjær og mikilvægi þess sem hluta af samfélaginu. Trans fólk á allan rétt á að fá að vera nákvæmlega eins og það er og taka pláss. Til hamingju með daginn! 🩵🩷🤍🩷🩵
03010
Trans Ísland @transisland.is · 24/03/2026
Gleðilegan kváradag! Í dag fögnum við kynsegin fólki nær og fjær. Við hvetjum öll til að gera vel við kvárin í lífi sínu og minnum jafnframt á kváradagsgleðina sem haldin verður á Loft Hostel kl. 19 í kvöld. Kvár og velunnarar hjartanlega velkomin! 💛🤍💜🖤
0308
Trans Ísland @transisland.is · 23/02/2026
Aðalfundur Trans Íslands var haldinn fyrr í dag. Á fundinum var Reyn Alpha Magnúsdóttir endurkjörin forseti félagsins og í stjórn sitja Aró Berg Jónasar, Irma Alexandra Hopkins, Kolbrá Ethel og Marteinn Lundi Kjartansson. Hlökkum til að takast á við ný verkefni á nýju starfsári! 🩵🩷🤍🩷🩵
Mynd af nýkjörinni stjórn Trans Íslands starfsárið 2026–2027: Kolbrá Ethel, Irma Alexandra Hopkins, Reyn Alpha Magnúsdóttir, Aró Berg Jónasar og Marteinn Lundi Kjartansson.
1241
Trans Ísland @transisland.is · 27/01/2026
Aðalfundur Trans Íslands verður haldinn kl. 17:30 mánudaginn 23. febrúar næstkomandi í húsnæði Samtakanna '78 að Suðurgötu 3. Nánari upplýsingar á vef félagsins: transisland.is/adalfundur-t...
184
Trans Ísland @transisland.is · 16/01/2026
Stjórnarmeðlimir Trans Íslands voru gestir í sal Vikunnar í kvöld og skemmtu sér konunglega. Takk kærlega fyrir okkur, @gislimarteinn.bsky.social! 🩵🩷🤍🩷🩵
Frá vinstri til hægri: Reyn Alpha Magnúsdóttir, Irma Alexandra Hopkins, Gísli Marteinn Baldursson, Kolbrá Ethel og Aró Berg Jónasar, sitjandi í sófanum á setti Vikunnar með Gísla Marteini.
0251
Trans Ísland @transisland.is · 08/12/2025
Stjórn Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi, hvetur stjórn Ríkisútvarpsins ohf. til að hafna þátttöku í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026. Yfirlýsinguna má lesa á vef félagsins: transisland.is/yfirlysing-s...
1318
Trans Ísland @transisland.is · 30/11/2025
Kíktu á vefverslun Trans Íslands! 🌈 Við erum með boli í stærðum XS-2XL og fallega límmiða svo þú getir sýnt stuðning við trans samfélagið. Fleiri vörur eru á leiðinni! Skoðaðu úrvalið á verslun.transisland.is 🏳️‍⚧️💖
Módel í hvítum stuttermabol með hönnun sem á stendur „Trans líf eru mannslíf“Módel í hvítum stuttermabol með hönnun sem á stendur „Trans líf eru mannslíf“Límmiði sem á stendur „Trans rights are human rights“Límmiði með hönnun sem á stendur „Trans líf eru mannslíf“
0123
Trans Ísland @transisland.is · 19/11/2025
Trans Ísland vill koma þessu verkefni Borgarbókasafnsins á framfæri, en þau eru að leita að fólki til að segja frá efni sem gefur því þá tilfinningu að það tilheyri, t.d. bók, lag, ljóð, kvikmynd, sögu, uppskrift eða annað. Nánari upplýsingar á vef Borgarbókasafnsins: borgarbokasafn.is/hreidrid
Hreiðrið – Borgarbókasafnið er að leita að sögum um að tilheyra – Til að taka þátt, vertu í sambandi við Fanny fyrir 30. nóv 2025 - fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is
063
Trans Ísland @transisland.is · 10/11/2025
Minningardagur trans fólks verður haldinn fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi. Trans Ísland heldur minningarstund í Regnbogasal Samtakanna '78 kl. 17:30 þann dag. Vonumst til að sjá sem flest! 🏳‍⚧
092
Trans Ísland @transisland.is · 09/10/2025
Vilt þú sýna stuðning við trans samfélagið í verki? Vantar þig nýjan bol? Þarftu fleiri límmiða á tölvuna þína? Kíktu þa á nýja vefverslun Trans Íslands á verslun.transisland.is! Sendum um allt land með Dropp 📦 🩵🩷🤍🩷🩵
0168
Trans Ísland @transisland.is · 31/07/2025
Trans Ísland býður öllu trans og kynsegin fólki sem og stuðningsfólki að ganga saman í gleðigöngunni 2025 laugardaginn 9. ágúst! Þemað í ár er Sterkust saman og við leggjum áherslu á mikilvægi samstöðu og að ganga sem eitt sameinað samfélag. Nánari upplýsingar: transisland.is/trans-island...
0187
Trans Ísland @transisland.is · 18/07/2025
Árlegt pridegrill Trans Íslands verður haldið miðvikudaginn 6. ágúst kl. 16:30 á Klambratúni! Trans Ísland sér fyrir veitingum. Nánari upplýsingar í viðburði. Hlökkum til að sjá sem flest! 🏳‍⚧
172
Trans Ísland @transisland.is · 14/07/2025
Í dag, 14. júlí, er árlegur alþjóðlegur dagur kynsegin fólks. Til hamingju með daginn kæru kvár! 💛🤍💜🖤
0318
Trans Ísland @transisland.is · 22/06/2025
TÍ leitar að nokkrum trans einstaklingum til að taka þátt í gerð þáttaraðar um daglegt líf trans fólks (aðeins 18 ára og eldri). Tökur eru áætlaðar 26.–28. júlí 2025 og umsóknarfrestur er til og með 4. júlí 2025. Umsóknir berist í tölvupósti á stjorn@transisland.is ásamt smá texta um umsækjanda. 🏳️‍⚧️
0112
Trans Ísland @transisland.is · 18/05/2025
Ætlar þú að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár? Trans Ísland er eitt þeirra góðgerðarfélaga sem hægt er að styrkja. Allri okkar starfsemi er haldið út með styrkjum og renna áheit því beint í félagsstarf og réttindabaráttu trans fólks. Opið er fyrir skráningar á hlaupastyrkur.is! 🏳‍⚧
1154
Trans Ísland @transisland.is · 05/05/2025
Nú eru tæpar tvær vikur í Hamingjuhlaup Samtakanna '78 og Kristals, sem fer fram í Elliðaárdalnum laugardaginn 17. mars. Við hvetjum öll áhugasöm eindregið til að skrá sig og taka þátt í hýrasta hlaupi sögunnar! 🌈 www.corsa.is/is/hamingjuh...
190
Trans Ísland @transisland.is · 23/04/2025
Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Verðlaun í flokki þýðinga hlaut bókin Kynsegin eftir Maia Kobabe, í þýðingu Elíasar Rúna og Mars Proppé. Við óskum Elíasi og Mars innilega til hamingju og mælum eindregið með bókinni fyrir fólk á öllum aldri! 🏳️‍⚧️
Borgarstjóri, Heiða Björg Hilmisdóttir, auk verðlaunahafa Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar 2025 (Elíasi Rúna, Mars Proppé, Rán Flygenring og Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur) og Sigrúnu Margréti Guðmundsdóttur, formanni dómnefndar, á tröppum Höfða.Elías Rúni, Reyn Alpha og Mars Proppé á tröppum Höfða. Elías og Mars halda á viðurkenningarskjölum og blómum en Reyn á bókinni Kynsegin.
0183
Trans Ísland @transisland.is · 14/04/2025
Stjórn Trans Íslands gagnrýnir harðlega þá ákvörðun Útlendingastofnunar að synja bandarískri trans konu og syni hennar um alþjóðlega vernd og vísa þeim aftur til Bandaríkjanna. Yfirlýsingu stjórnar má lesa á vef félagsins: transisland.is/yfirlysing-v...
0265
Trans Ísland @transisland.is · 07/04/2025
Trans Ísland leitar að áhugasömu fólki í gleðigöngunefnd! Nánari upplýsingar má finna í umsóknarformi hér að neðan: Trans Iceland is looking for people interested in joining its Pride committee! More information can be found in the application form: forms.gle/xfFwiwi1SW4D... 🏳️‍⚧️🏳️‍⚧️🏳️‍⚧️
052
Trans Ísland @transisland.is · 07/04/2025
Trans Ísland leitar að áhugasömu fólki í viðburðanefnd! Nánari upplýsingar má finna í umsóknarformi hér að neðan: Trans Iceland is looking for people interested in joining its event committee! More information can be found in the application form below: forms.gle/xAhe8px2w12S...
042
Trans Ísland @transisland.is · 31/03/2025
Gleðilegan alþjóðlegan sýnileikadag trans fólks! Á þessum degi fögnum við trans fólki, jafnt því sem hefur rutt brautina með því að segja sögu sína opinberlega, og því sem er enn í skápnum. Trans fólk á allan rétt á að fá að vera nákvæmlega eins og það er og taka það pláss sem það á skilið. 🩵🩷🤍🩷🩵
03213
Trans Ísland @transisland.is · 06/03/2025
Aðalfundur Trans Íslands 2025 var haldinn síðasta þriðjudag, 4. mars. Forseti starfsárið 2025–2026 er Reyn Alpha Magnúsdóttir og í stjórn sitja Ari Logn, Aró Berg Jónasar, Jóhann Kristian Jóhannsson og Kolbrá Ethel. Við þökkum Alex Diljari kærlega fyrir samstarfið og hlökkum til nýs starfsárs! 🏳‍⚧
Ný stjórn Trans Íslands: Kolbrá Ethel, Aró Berg Jónasar, Reyn Alpha Magnúsdóttir og Jóhann Kristian Jóhannsson. Á myndina vantar Ara Logn.Fráfarandi stjórn Trans Íslands: Alex Diljar Birkisbur Hellsing, Aró Berg Jónasar, Reyn Alpha Magnúsdóttir og Jóhann Kristian Jóhannsson. Á myndina vantar Ara Logn.
0171
Trans Ísland @transisland.is · 06/02/2025
Takið daginn frá! Aðalfundur Trans Íslands verður haldinn þriðjudaginn 4. mars næstkomandi kl. 17:30 í húsnæði Samtakanna '78 við Suðurgötu 3. Nánari upplýsingar má finna á Facebook-viðburði fundarins: www.facebook.com/events/62589...
Aulgýsing fyrir aðalfund Trans Íslands
062
Trans Ísland @transisland.is · 21/12/2024
Við fengum @andresingi.bsky.social í heimsókn í dag og afhentum honum blómvönd í þakklætisskyni fyrir gott samstarf og ötult starf í þágu réttindabaráttu trans fólks síðustu árin. Andrés hefur verið trans samfélaginu ómetanlegur bandamaður og framlagi hans verður seint gleymt. 🩵🩷🤍🩷🩵
Mynd af Reyn Alpha, forseta TÍ, Andrési Inga og Jóa, meðstjórnanda TÍ. Andrés heldurðu mjög fínum blómvendi.
0434
Trans Ísland @transisland.is · 18/12/2024
Trans Ísland stendur fyrir sýningu á sjálfstætt framleiddu stuttmyndinni All the Words But the One ásamt Q&A með klippara og aðalframleiðanda myndarinnar, Sowj Kudva, í Bíó Paradís þann 28. desember kl. 19. 🩵🩷🤍🩷🩵 Nánari upplýsingar á Facebook-síðu TÍ: www.facebook.com/events/44800...
Skjáskot úr stuttmyndinni All the Words But the One, þar sem má sjá tvo einstaklinga með andlitin upp að hvoru öðru, í rúmi. Á myndina hefur verið sett merki Trans Íslands og textinn „Bíó Paradís • 28. desember“
082