Sign in

Þórarinn Stefánsson

@thorarinn.bsky.social
218 followers 132 following 912 posts

A mostly harmless dabbler in life, somewhat fluent in Icelandic and English.

PostsRepliesMedia
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 07/10/2026
Nýyrði dagsins er í boði RÚV: „samgöngumæðrun“. Spurning hvort það falli undir lög um kílómetragjald?
010
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 06/10/2026
Hamskiptin yfir í vetrarmorgungönguna mjakast áfram. Í síðustu viku bættist shemagh-hálsklúturinn við léttu regnskelina sem er sjálfgefin mestallt árið. Í gær bætti ég við léttum jakka undir skelina og í morgun var derhúfan lögð á hilluna fyrir hlýja 66° húfu. Næsta skref verða flauelsbuxurnar.
060
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 04/10/2026
Arftaki.
Tveir ryksuguhausar, annar glænýr og hinn gamall, sorrí og grár.
150
Reposted by Þórarinn Stefánsson
evil sexy bríet @thvengur.bsky.social · 30/09/2026
Erfiðasta við að vera trans er að geta ekki falið mig á bakvið foreldra mína lengur :( (þau eru transparent)
0302
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 29/09/2026
Ég hef ekki verið að standa mig sem fréttaritari frussbrunnsins í Hafnarstræti. Hann hefur gutlað í allt sumar sem stolt táknmynd íslensks verkvits. Hann hefur aðeins hækkað í loftinu og gatan trúlega sigið undan sístreymi vörubíla að flytja bjór fyrir veitingastaði götunnar.
Stöðuvatn í Hafnarstræti í forgrunni, gosbrunnur í bakgrunni.
180
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 28/09/2026
Samfelldur svefn. Þvílíkt konsept.
150
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 27/09/2026
Takk Veitur fyrir póstinn áðan. Ég vissi af vatnsleysinu sem var fyrir fjórum dögum síðan.
Tölvupóstur frá Veitum móttekinn 27. september að tilkynna um komandi vatnsleysi 23. september.
040
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 27/09/2026
Grillgrindur í bökun. #haustverkin
Grillgrindur löðrandi í steikingarolíu á opnu gasgrilli, olíuflaska í bakgrunni.
020
Reposted by Þórarinn Stefánsson
Bat Terror @mattthr.bsky.social · 23/09/2026
The ancient Egyptian civilization lasted so long that later-period Egypt had museums where you could go and see mysterious artefacts from early-period Egypt. Cleopatra was born closer to the iPhone than the building of the great pyramids at Giza.
212128
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 21/09/2026
Er komið einhver betri þýðing á „enshittification“ heldur en draslvæðing?
350
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 17/09/2026
Er ég einn um að lesa eitthvað í líkingu við Ticnooy út úr þessu, í stað Timmy?
Skjáskot úr auglýsingu þar sem línur sem líkja eftir neonljósum eiga að stafa timmy, en m bókstafirnir eru brotnir upp á kostnað læsileika.
450
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 12/09/2026
Brúsaþrif fjölskyldunnar. Fyrst smá sjóðandi vatn og hrist. Síðan um desilítri af borðedik. Hrist vel fyrir skolun. Og já, þeir eru að stórum hluta keyptir í Nexus.
Sex opnir vatnsbrúsar úr málmi í fjölbreyttum litum.
060
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 11/09/2026
Er ég nokkuð sá eini sem datt þetta í hug við að sjá fréttina hjá RÚV? www.ruv.is/frettir/innl...
Skjáskot af Twitterfærslu þar sem talað er um "Large boulder the size of a small boulder" sem féll á veg.
1130
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 11/09/2026
An auto-generated password that I regularly copy-paste starts with the string "Jegchtgu" and my brain tries to parse this as German everytime I notice it.
140
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 10/09/2026
Á strætóskýlum auglýsir Steypustöðin „25% blómapottar“ – er það til að rækta litlar plöntur?
120
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 04/09/2026
Hvert af eftirfarandi hljómar mest knýjandi? A: Strax B: Strax án tafar C: Tafarlaust
430
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 29/08/2026
Ef mann sé í bústað þar sem eru engar góðar tekrúsir...
Verið að brugga te í hvítri mjólkurkönnu. Tómar bjórdósir og tepakkning í bakgrunni.
080
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 28/08/2026
Ef ég væri ekki þegar búinn að kjósa myndi tortryggni yfir þessum gríðarlega fjáraustri sem greinilega liggur að baki nei-hreyfingunni ýta mér enn meira í þá átt sem ég kaus.
1110
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 12/08/2026
Ég sá mann koma út á svalir í næstu blokk með einhvers konar mæligræju sem ég var samt ekki að skilja hvernig tengdist sólmyrkvaglápi. Hann reyndist vera að skipta um rúðu í svalaglugga, berandi rúðuna með sogskál. #myrkvinn
080
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 07/08/2026
Það er óvenjulegt að sjá svona margar regnhlífar í miðborg Reykjavíkur. Líka óvenjulegt að vera sjálfur með (þurra) regnhlíf á skrifborðinu eftir að hafa gripið hana með á leið í vinnu í morgun (en það var lítil sem engin rigning meðan ég labbaði).
020
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 06/07/2026
„Hvort eigum við svo að hafa Aygo merkið hægra eða vinstra megin á afturhleranum?“ „Uuu… getum við ekki bara útfært svona A/B test, gert bæði og rannsakað hvor útgáfan selst betur?“
Tveir sams konar Toyota Aygo bílar í bílastæði, eins á lit en Aygo merkið er ýmist hægra eða vinstra megin.
180
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 04/07/2026
Mér sýnist enginn helstu fréttamiðla hafa farið í fyrirsögnina "Swift er gift", sem eru viss vonbrigði.
ruv.is
T&T eru nýgift! - RÚV.is
Tónlistarkonan Taylor Swift og NFL-leikmaðurinn Travis Kelce giftu sig í New York í kvöld. Fjöldi heimsþekktra gesta mætti í brúðkaupið og mikill fjöldi aðdáenda var höllina og reyndi að berja hjónako...
0160
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 02/07/2026
Mögulega er ég svona fljótur að gleyma, en mér finnst „gullþéttnin“ í gullregninu vera óvenjulega mikil þetta sumarið – a.m.k. í vesturborginni.
Blómskrúð gullregns.Blómskrúð gullregns.
1100
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 29/06/2026
Tíhí „If the coach is going to pick his team based on wealth and fame, Portugal might be as well off with Elon Musk up front. At least Musk wouldn’t run offside.“ #fótbolti
irishtimes.com
Ken Early: The Cristiano Ronaldo situation has gone beyond amusing to genuinely ugly
Roberto Martinez’s loyalty to his 41-year-old captain is becoming an increasingly expensive indulgence at World Cup 2026
020
Reposted by Þórarinn Stefánsson
John Bull @garius.bsky.social · 26/06/2026
My version of this for how fast airplane technology developed? Orville Wright flew both the Wright Flyer and a Lockheed Constellation
wright flyer, all cables and delicate wings, just about taking to the air.moden era lockheed constellation four engine passenger plane
28613147
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 23/06/2026
Mér varð hugsað til @hjorvarp.bsky.social við að sjá x.com/vidsthatgoha...
x.com
vids that go hard (@vidsthatgohard) on X
Keegan Michael from Key & Peele recreated the name sketch with the names of football players from the World Cup🤣 https://t.co/xyNyPI5lEA
110
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 14/06/2026
Um daginn fór ég út að brokka smá hring um hverfið, í stigaganginum á leið út heyrði ég tal tveggja manna sem ég gaf mér byggt á dyrabjöllumerkingum að hafi verið indverskir. Þegar ég kom að næsta stigagangi í blokkinni (nr. 14) stigu þar út tveir menn sem litu út fyrir að geta verið indverskir. 1/3
100
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 14/06/2026
Fyrir viku stóð ég í þröngri verslanagötu í York (the Shambles) og beið eftir fjölskyldunni. Eftir að hafa horft á tehús hinum megin við götuna ákvað ég að nýta tímann og spyrja Google Maps hvar næsta te-verslun væri. Svarið var 5 metrum frá mér, í næsta rými við tehúsið. Ekki mín stoltasta stund.
120
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 11/06/2026
Í skilaboðum til betri helmingsins stóð ég mig að því að skrifa um „byssukassann frammi í þvottahúsi“ – sem hljómar dramatískar en það sem það er: Skókassi með nokkrum LazerTag leikfangabyssum og stórum kassa af AA rafhlöðum.
040
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 10/06/2026
Rokkstig dagsins fær þunnhærði miðaldra maðurinn sem sat í skosku HM '26 treyjunni, í ættar-kilt-inu (með öllu tilheyrandi) og skotlandsfánann málaðan á kinnina í Icelandair vélinni frá Manchester til Keflavíkur.
040
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 04/06/2026
Sem foreldri kýs ég að leiða hjá mér gula einkunn sonarins í stafsetningu hjá kennara sem ekki getur stafsett stafsetningu rétt.
Skjáskot af námsmati undir yfirskriftinni "Starfsetning og greinamerkjasetning"
1130
Reposted by Þórarinn Stefánsson
Hjörvar Pétursson @hjorvarp.bsky.social · 26/05/2026
Mér fyndist frekar mega passa uppá að framhaldsskólarnir séu ekki búnir of snemma. Helst ekki fyrren krakkarnir eru orðnir svona 20 ára www.ruv.is/frettir/innl...
ruv.is
Hlynnt því að framhaldsskólar hefjist ekki of snemma - RÚV.is
Það kæmi vel til greina að hafa það sveigjanlegra hvenær framhaldsskólar hefja kennslu á morgnana, segir mennta- og barnamálaráðherra. Rannsóknir benda til að hægt væri að ná fram jákvæðum breytingum ...
0102
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 24/05/2026
Spurt er um lit, hvort er þetta hjól gult eða grænt?
Barnahjól í litatón sem er ýmist kallaður gulur eða grænn.
1000
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 20/05/2026
Fyrir utan vinnustaðinn situr kona á bekk og les dagblað í sólinni. Hún er augljóslega gervigreindartilbúningur, það les enginn dagblöð í dag.
0120
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 18/05/2026
Ég er alls ekki að standa mig sem sérlegur fréttaritari frussbrunnsins í Hafnarstræti, en hann var ræstur án nokkurrar viðhafnar í síðustu viku og frussar nú sem aldrei fyrr. Frárennslið er að sjálfsögðu ekkert betra en áður svo vatnið lekur langar leiðir að niðurfalli.
1100
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 18/05/2026
Hér var stigið stórt skref til aðlögunar að hækkandi sól, með formlegum skiptum úr róteringu á ullarblönduðum flauelsbuxum yfir í léttari bómullarbuxur sem staðalbúnað til vinnu. Gekk samt í vinnuna í morgun með klút um hálsinn og létta hanska og húfu í vösum, ég er ekki anarkisti!
040
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 16/05/2026
Og hvað eru margar neitanir í því? "... og hefur það aldrei gerst að hvorugt liðanna sé ekki með í 8-liða úrslitum." www.ruv.is/frettir/ithr...
ruv.is
Risarnir dottnir út — aldrei gerst áður í sögunni - RÚV.is
Valur og Breiðablik duttu bæði út í 16-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í fótbolta. Þetta eru sigursælustu lið sögunnar og hefur það aldrei gerst að hvorugt liðanna sé ekki með í 8-liða úrslitum.
020
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 16/05/2026
Hér var ákveðið að horfa ekkert á Júró í kvöld.
Afskaplega myndarlegt fólk að spila borðspilið Catan.
2150
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 16/05/2026
Mæli með að taka 10 mínútur í að horfa á þetta.
010
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 11/05/2026
Bættu pínu við hljómsveitarnafn: Ljótari hálfvitarnir
010
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 11/05/2026
Án þess að hafa heyrt eitt einasta júrólag í ár er hægt að fullyrða að Ísrael verður einu af efstu sætunum. Og jafnvel fjölþjóðlegt átak í því að kjósa ekki Ísrael mun alltaf feila nema allir geti komið sér saman um einn keppanda til að kjósa í staðinn.
150
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 08/05/2026
Vísir svo nærri því að ná áhöggs-þrennunni...
Þrjár forsíðufréttir af Vísi þar sem tvær snúast um að einhver komi höggi á annan. Eina fyrirsögnin sem fjallar beinlínis um stríð gerir það samt ekki.
120
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 07/05/2026
Magnús Magnus bílnúmeranna: Nr. No. 5
Hvítur Volvo með bílnúmerið NR N05.
0110
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 06/05/2026
Þegar ég sá þetta graf var fyrsta hugsun að þetta væri skrýtin litadreifing, með fimm liti en þrjá af þeim bláa tóna. Næsta hugsun var hvers vegna í ósköpunum er verið að nota fimm ólíka liti til að sýna breytingu á sömu talningum milli ára…
Súlurit úr frétt frá RÚV sem sýnir þróun í fjölda aðgerða milli 2017 og 2025 – allar súlurnar eru í mismunandi litum.
160
Reposted by Þórarinn Stefánsson
Reyn Alpha @haframjolk.com · 01/05/2026
Áður en vókið eyðilagði allt
052
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 29/04/2026
A sign of the current trends that movies of normal length is now a separate category on streaming services.
Hulu now has "Movies Under Two Hours" as a prominent category.
010
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 26/04/2026
Af engri sérstakri ástæðu þykir mér rétt að deila hér bestu lagaábreiðu allra tíma. Njótið.
youtube.com
Hurra Torpedo - Total Eclipse Of The Heart (live)
YouTube video by frozentoast
010
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 20/04/2026
Smá rannsóknarspurning; hvar finn ég grunnteikningar af bílakjallaranum undir Hafnartorgi? Má gjarnan ná yfir kjallarann undir Hörpu líka. Ég veit ekki hvaða leitarskilyrði ég á að nota á teikningavef borgarinnar til að finna þetta. #biturUXReynsla
210
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 17/04/2026
Náttúran kviknar með vorinu.
Tvö hopphjól í því sem mætti kalla náinni stellingu.
040
Þórarinn Stefánsson @thorarinn.bsky.social · 16/04/2026
Megi öll finna sömu orku inn í vinnudaginn og maðurinn sem ég mætti á Austurvelli, öskursyngjandi með head-fónunum sínum kl. 8:41 að morgni. – Fornt kínverskt máltæki.
0101