siggi mús @siggimus.bsky.social · 15/10/2026Var að reyna að muna hvað hann heitir aftur þarna kjúklingastaðurinn í Suðurveri og það fyrsta sem kom í hausinn á mér var Kjúklingameistarinn 150
siggi mús @siggimus.bsky.social · 26/09/2026Þegar ég kom inn frá því að ganga með hundinn var dóttir mín að baka: „Úff, ég finn á lyktinni að ég mun hata sjálfan mig á eftir“ 020
siggi mús @siggimus.bsky.social · 24/09/2026Þegar þú ætlar að skrifa tough shit, en setur óvart c í staðinn fyrir g 🫣 151
siggi mús @siggimus.bsky.social · 18/09/2026vinsamlegast athugið! fréttir af andláti nínu eru stórlega ýktar 240
siggi mús @siggimus.bsky.social · 24/08/2026No cheating. Share the last photo of the sky from your camera roll (if you feel like it) 050
siggi mús @siggimus.bsky.social · 19/08/2026„Þessi tilraun hefur misheppnast“ Ísland - feit pæling sem gekk ekki upp 070
Reposted by siggi músThe Author, Séamas O'Reilly @seamas.bsky.social · 13/08/2026Not to be some wild-eyed innocent, but I think it should be slightly bigger news that The Lancet have crunched the numbers and found that Musk's USAID cuts will kill 14 million people. And that's just by 2030. That's 9,600 people a day, every day, until the next world cup rolls around. 7350462752
siggi mús @siggimus.bsky.social · 12/08/2026Ef myndin prentast vel má sjá hvað sólmyrkvinn kom vel út undir Esjunni 😍 #sólmyrkvi2026 082
siggi mús @siggimus.bsky.social · 10/08/2026Þetta er ekki skemmtilegur South Park þáttur, og ég vil ekki vera í honum! 020
siggi mús @siggimus.bsky.social · 29/07/2026Afsakið, en það gleymdist næstum að halda upp á fyrstu 20 þúsund dagana á þessari plánetu 🥳🍺 1100
siggi mús @siggimus.bsky.social · 29/07/2026Æ nei 😧😩 Once er alveg frábær mynd, og tónlistin líka ♥️ 120
siggi mús @siggimus.bsky.social · 22/07/2026Þökk sé Facebook fæ ég reglulega áminningu um hinar ýmsustu dásemdir foreldrahlutverksins 😍😍😍 070
siggi mús @siggimus.bsky.social · 24/06/2026Ég hef undanfarna viku eða svo fengið fimm símtöl frá íslenskum GSM númerum. Aldrei sama númer tvisvar. Þegar ég svara gerist ekkert, það slitnar strax. Hvað er í gangi? Gengur þetta út á að maður hringi til baka? 150
siggi mús @siggimus.bsky.social · 16/06/2026Einu sinni var ég bara Siggi, svo var ég bitinn af mús og öðlaðist ofurkrafta 050
siggi mús @siggimus.bsky.social · 13/06/2026„Ef fyrirtækin á Íslandi væru í þeirri stöðu að geta skapað sér aðstæður þar sem þau réðu allri álagningu og gætu haft frjálsar hendur um arðgreiðslur þá myndi þetta ekki vera svona“ Ætli Bjarni sé til í að hjálpa okkur að finna skúrkinn sem ræður álagningunni og arðgreiðslunum? 120
siggi mús @siggimus.bsky.social · 06/06/2026Rétt tæplega sólarhring eftir að ég þreif gluggana að utan 🥺 060
siggi mús @siggimus.bsky.social · 30/05/2026Tók helgarskólatöskutékkið. Brá aðeins yfir einum óvæntum hlut. Dró það mjög hægt upp úr töskunni og sýndi pjakknum: „Bíddu, er ekki nóg af svona í skólanum?“ Pjakkur: *fór hjá sér, flissaði* „Sko við strákarnir vorum í svona leik þar sem við áttum að koma með mest random hlutinn í skólann“ 1110
siggi mús @siggimus.bsky.social · 27/05/2026Ég þegar ég er ekki ráðinn í starf sem ég sæki um: Sögulegu tækifæri kastað á glæ 0191
siggi mús @siggimus.bsky.social · 23/05/2026Pjakkur: *sér skilaboð sem ég er að senda* „Þú settir ekki punkt“ Ég: ... Pj: *labbar í burtu* „Maybe that's how old people do it” 070
siggi mús @siggimus.bsky.social · 22/05/2026Pjakkur: „Þú ert eiginlega næst uppáhalds hjá mér að tala við. Í öðru sæti. Í fyrsta sæti er að ég tala við sjálfan mig“ 1110
siggi mús @siggimus.bsky.social · 09/05/2026Öll þrjú börnin öskruðu af gleði yfir að finna Animanimals á Disney+ Þau eru 9, 14 og 15 ára 160
siggi mús @siggimus.bsky.social · 08/05/2026Ekkert segir að þú elskir lýðræði eins og hótun um ofbeldi ef þú færð ekki það sem þú vilt ♥️ 1195
siggi mús @siggimus.bsky.social · 18/04/2026Í dag komst ég að því að á Landspítalanum Fossvogi er bráðaöldrunarlækningadeild. Aldrei hefði mér dottið í hug að þetta væri vandamál sem kallaði á heila deild: bráðaöldrun 240
siggi mús @siggimus.bsky.social · 14/04/2026Fréttamaður: Ég gerði frétt um nýju stikluna fyrir myndina um fundinn í Höfða Fréttastjóri: Frábært! Settirðu stikluna í fréttina? Eða hlekk? Fm: Ö, nei? Á ég að gera það? Fs: Nei, alls ekki! Fussumsvei! www.ruv.is/frettir/menn...ruv.isFyrsta stiklan úr kvikmyndinni um leiðtogafundinn í Höfða - RÚV.isHollywood-kvikmynd um leiðtogafund Reagans og Gorbachevs í Höfða er væntanleg í ágúst. 030
siggi mús @siggimus.bsky.social · 11/04/2026Bíddu, var það ekki Pálmi Gunnars sem söng: Ég elska þig þótt þú sért úr, Steini! 120
siggi mús @siggimus.bsky.social · 09/04/2026A: „Hey, eigum við að fara út að borða á Pósthús mathöll í kvöld?“ B: „Endilega! Skoðum samt fyrst hvað er á boðstólum, fyrir krakkana!“ A: „Ö...“ *Downloadar tveimur myndum og sjö pdf skjölum í símann* 040
siggi mús @siggimus.bsky.social · 02/04/2026Þegar þú heyrir í ísbílnum keyra út úr botnlanganum og panikkar 190
siggi mús @siggimus.bsky.social · 01/04/2026Dóttir: „Af hverju er einhver AI Emil í Kattholti að sýna okkur efforðputtann?“ 060
siggi mús @siggimus.bsky.social · 26/03/2026Hmmmm, ég man ekki eftir að hafa sett upp aðra útihurð 🤔 0150
siggi mús @siggimus.bsky.social · 20/03/2026Þetta datt úr bók sem ég hef greinilega ekki opnað í 20 ár Þetta var dásamleg stund 170
siggi mús @siggimus.bsky.social · 10/03/2026Morgun. Frídagur. Í húsinu heyrist ekki þrusk Kíki inn til pjakksins, sem teygir aðeins úr sér Pjakkur: *opnar augun, umlar eitthvað* Róta létt í krullunum á honum Pjakkur: „Hvað er 88 plús 22?“ Pabbi: „ö, 110!“ Pj: „Rétt!“ *snýr sér upp að veggnum og lokar augunum* 060
siggi mús @siggimus.bsky.social · 07/03/2026Ég pabbabrandaraði yfir mig og á ekki lengur fjölskyldu Pjakkurinn bað um eggjabrauð. Ég: „Hvað pantaði hesturinn?“ Allir: 🤔🤷 Ég: „Hneggjabrauð!“ 🤠 Allir: Dóu úr second hand embarrassment 1130
siggi mús @siggimus.bsky.social · 03/03/2026Í u.þ.b. annarri hverri tilraun skrifa ég kreditkrot en ekki kreditkort. Þetta plagar mig reyndar ekki svo mikið síðan ég hætti að vinna í markaðsdeild kreditkrotafyrirtækis 070
siggi mús @siggimus.bsky.social · 21/02/2026Á Reykjanesbraut Pabbi: „Veistu hvaða fjall þetta er?“ Pjakkur: „Nei“ Pa: „Keilir“ Pj: „Já, Keilir! Það er 379 metrar!“ 070
siggi mús @siggimus.bsky.social · 18/02/2026Pjakkurinn, 10 ára, fór út að sníkja nammi. Hann aflaði vel, enda söng hann sitt á hvað þjóðsönginn og Rap God #krakkaskítur 050
siggi mús @siggimus.bsky.social · 15/02/2026Horfði á Karate Kid með dætrum mínum í gærkvöldi. Þar sem ég er eldri en Pat Morita þegar hann lék í myndinni má ég—ef mig svo lystir—löglega segja „Hurt old man feeling“ 060
siggi mús @siggimus.bsky.social · 14/02/2026Ég er ekki að segja að ég sé latur að þrífa bílinn, en tvö af þremur börnum héldu í smástund að ég hefði keypt nýjan (það þriðja kom heim eftir myrkur) 0130
siggi mús @siggimus.bsky.social · 14/02/2026Ég mun aldrei segja hvar, en í gær var ég afgreiddur af manni sem leit út eins og vondikall í Despicable Me 060