Sign in

Píratar

@piratar.bsky.social
300 followers 18 following 95 posts

Heiðarleg stjórnmál! Kynntu þér framboð Pírata í Reykjavík 2026 hér: piratar.is/piratarireykjavik26 💜

PostsRepliesMedia
Píratar @piratar.bsky.social · 13/05/2026
Það er nóg um að vera í Kosningamiðstöð Pírata næstu daga og svo auðvitað á Tunglinu á laugardaginn, við hlökkum til þess að sjá ykkur sem oftast! Næst á dagskrá: Uppstigningarpartý á morgun milli klukkan 12:00 - 14:00 á Hverfisgötunni 🐈
093
Píratar @piratar.bsky.social · 04/05/2026
Spennandi viðburður með Semu Erlu í Kosningamiðstöð Pírata annað kvöld, 5. maí. // An interesting event with Sema Erla in the Pirate Elections Headquarters tomorrow night, May 5th. piratar.is/umraeda/vibu...
piratar.is
Viðburður á morgun / Event tomorrow : Cultural and Racial Prejudice in Reykjavík City Institutions — Píratar
Þriðjudaginn 5. maí // Tuesday May 5th Húsið opnar kl. 18:00, viðburðurinn hefst kl. 18:30 // Doors open at 18:00, the event starts at 18:30 Hverfisgata 39 Hvernig tæklum við rasisma og ford...
063
Píratar @piratar.bsky.social · 06/03/2026
The primary elections for The Pirate Party in Reykjavík will close at 8PM tonight! Haven't voted yet? You still have a few hours to do so! Vote here: x.piratar.is Tonight we'll be celebrating the primaries and the results together at Hverfisgata 39 from 7:30PM, we hope to see you there 💜
x.piratar.is
x.piratar.is: Píratar
Vefkerfi fyrir kosningar og atkvæðagreiðslur um mál.
000
Píratar @piratar.bsky.social · 06/03/2026
Prófkjöri Pírata í Reykjavík lýkur í dag og því verður fagnað með glæsibrag á Hverfisgötu 39 í kvöld! Átt þú eftir að kjósa? Það eru örfáir klukkutímar til stefnu! Kjóstu hér: x.piratar.is Við hlökkum svo til þess að fagna heppnuðu og skemmtilegu prófkjöri saman í kvöld, öll velkomin 💜
Tvær stæltar hendur mætast. Á annarri stendur 'kjósa í prófkjöri Pírata í Reykjavík fyrir kl. 20:00 í kvöld' á hinni 'Mæta í prófkjörsfögnuð Pírata kl. 19:30'
251
Píratar @piratar.bsky.social · 05/03/2026
Áttu eftir að kjósa í prófkjöri Pírata í Reykjavík? Engar áhyggjur, þú nærð því enn! Kjóstu hér: x.piratar.is ______________________ Haven't voted in the Píratar in Reykjavík primaries yet? Not to worry, you still can! Vote here: x.piratar.is
050
Píratar @piratar.bsky.social · 04/03/2026
Sjáumst á fjarfundi með frambjóðendum í kvöld! 💜💻 Allar helstu upplýsingar og hlekkur á fundinn hér: fb.me/e/3SrIriEJF
040
Píratar @piratar.bsky.social · 26/02/2026
Frambjóðendur í prófkjöri Pírata í Reykjavík bjóða þér að kíkja í drykk og spjall að Hverfisgötu 39 í kvöld á milli klukkan 20:00 - 22:00, svo fögnum við opnun kosninganna saman 🎉 Boðið verður upp á léttar veigar og snakk 🫰 Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og fagna saman! 🏴‍☠️
030
Píratar @piratar.bsky.social · 21/02/2026
Frambjóðendur í prófkjöri Pírata bjóða gestum og gangandi í vöfflukaffi í dag klukkan. 14 // Candidates in the Pirate primaries invite you for waffles and coffee today at 2 PM. 🏴‍☠️🧇☕️
Meme. Vaffla á disk með smjöri. Köttur situr á stól. Er mjög spenntur að borða vöfflurna. Vöfflukaffi ì dag klukkan 14. Hverfisgötu 39 101 Reykjavík. 
Meme. Waffle on a plate with butter. Cat sitting on a chair. Is very excited to eat the waffles. Waffle cafe today at 2 pm. Hverfisgata 39 101 Reykjavík.
040
Píratar @piratar.bsky.social · 20/02/2026
Frambjóðendur í prófkjöri Pírata bjóða gestum og gangandi í vöfflukaffi á morgun klukkan. 14 // Candidates in the Pirate primaries invite you for waffles and coffee tomorrow at 2 PM. 🏴‍☠️🧇☕️
Meme. Vaffla á disk með smjöri. Köttur situr á stól. Er mjög spenntur að borða vöfflurna. Vöfflukaffi á morgun klukkan 14. Hverfisgötu 39 101 Reykjavík.
090
Píratar @piratar.bsky.social · 14/02/2026
Þú getur boðið þig fram til klukkan 14 í dag. piratar.is You can run in the primaries until 2 PM today. piratar.is
Meme. Vinstri rammi er kona ì uppnàmi sem bendir. Þú sagðist ætla að bjóða þig fram. Hægri rammi er reiður hvítur köttur. Ég hef til klukkan 14 í dag.
030
Píratar @piratar.bsky.social · 12/02/2026
Þú getur enn boðið þig fram í prófkjöri Pírata. Allar upplýsingar á piratar.is // You can still run in the Pirates' primaries. All information at piratar.is Yaaarr!!! 🏴‍☠️💟🏃‍♀️
Meme. Köttur horfir alvarlegur fram yfir dagblað. Ég ætti að bjóða mig fram í prófkjöri. I should run in the primaries.
030
Píratar @piratar.bsky.social · 11/02/2026
Meme. Blár fáni sem gefur til kynna að þú ert að merkja þig öruggt í einhverjum ástæðum. Marked safe from að verða sjálfstæðisflokkurinn Today.
0100
Píratar @piratar.bsky.social · 10/02/2026
Meme. Þrír spidermen benda á hvern annan. Á fyrsta spiderman stendur lögheimili í Portúgal. Á öðrum stendur hús í Garðabæ. Á þriðja stendur flutti í dag til Reykjavíkur.
0131
Píratar @piratar.bsky.social · 04/02/2026
piratar.is/profkjor26
piratar.is
Prófkjör Pírata 2026 — Píratar
Prórkjör Pírata 2026
010
Píratar @piratar.bsky.social · 04/02/2026
piratar.is/profkjor26
piratar.is
Prófkjör Pírata 2026 — Píratar
Prórkjör Pírata 2026
010
Píratar @piratar.bsky.social · 04/02/2026
We are open to applications for the Primaries for Píratar in Reykjavík! We encourage all applications and look forward to getting to know new pirates! The rules for the primaries here: piratar.is/candidate-re... If you have any questions please feel free to reach out to us at reykjavik@piratar.is
120
Píratar @piratar.bsky.social · 04/02/2026
Það er opið fyrir framboð til prófkjörs Pírata í Reykjavík. Öll eru hvött til að bjóða sig fram og erum við spennt að sjá ný andlit og kynnast nýjum Pírötum. Prófkjörsreglur má nálgast hér: piratar.is/profkjor-rvk... Ef einhverjar spurningar vakna má alltaf hafa samband á reykjavik@piratar.is
150
Píratar @piratar.bsky.social · 05/12/2024
👇
050
Reposted by Píratar
Lenya @lenyarun.bsky.social · 01/12/2024
3841
Píratar @piratar.bsky.social · 01/12/2024
Svona fór um sjóferð þá. Píratar eru samt ekki bara þingflokkurinn, heldur hreyfing öflugs fólks sem mun halda áfram að berjast fyrir mannréttindum, náttúrunni og óspilltu samfélagi á breyttum vettvangi. Við þökkum öllum sem treystu okkur fyrir atkvæði sínu og tóku þátt í baráttunni með okkur.💜💜💜
0291
Píratar @piratar.bsky.social · 30/11/2024
Fjölmennum á kjörstað💜
1278
Reposted by Píratar
Lenya @lenyarun.bsky.social · 29/11/2024
Enginn: Sigmundur Davíð: Verðbólgan? Útlendingar. Húsnæðisvandinn? Útlendingar. Menntakerfið? Útlendingar. Þjóðarleikvangur? ÚTLENDINGAR. #kosningar24
27310
Reposted by Píratar
Vallý @vallyeinars.bsky.social · 29/11/2024
Já!! Vopnasölubann og viðskiptaþvinganir á israel! @piratar.bsky.social Þ.Sunna þorir að kalla þjóðarmorð Þjóðarmorð! #kosningar24 #x24
2123
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
hinn stærsti glæpur er þjóðarmorð. Við ættum að beita okkur eins og við höfum beitt okkur gegn Rússlandi, þar sem við höfum verið öflug rödd með friði og talað fyrir réttarfarslegum stuðningi. Það þarf að stofna sérstakan dómstól út af glæpum gegn friði, vegna Úkraínu og Palestínu. #kosningar24
082
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
Þ. Sunna: Það er þjóðarmorð í gangi í Palestínu. Ísland getur verið sterk rödd á alþjóðavettvangi og beitt okkur fyrir frjálsri Palestínu. Við getum beitt viðskiptaþvingunum og vopnabanni gegn Ísrael. Það er grundvallarskylda okkar sem þjóð á meðal þjóða - #kosningar24 #x24
2206
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
Tl;dr af svari KF: Hvalveiðar: „Það eru skiptar skoðanir innan breiðfylkingar eins og Samfylkingarinnar um hvalveiðar“ Fiskeldið: atvinnufrelsi fólks trompar dýravernd. Til gamans má rifja upp að Samfylkingin var hvorki með á frumvarpi Pírata um bann við hvalveiðum né sjókvíaeldi. #kosningar24
0165
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
(Sp. til Kristrúnar frá Sunnu): Það er eitt sem við Píratar söknum og það er náttúruverndin. Þið takið ekki nógu sterka afstöðu gegn hvalveiðum, ekki næga afstöðu gegn sjókvíaeldi, þið viljið virkja sem nemur heilli Kárahnjúkavirkjun Hefur S ákveðið að fórna náttúrunni fyrir hagvöxt? #kosningar24
1178
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
Píratar vilja fá alla að borðinu, lífeyrissjóðina og verkalýðsfélögin. Mikilvægt að við förum að huga að því hvernig samsetning þjóðarinnar er að breytast, við erum fleiri að fara búa ein, við gætum byggt kjarnasamfélög þar sem rýmum er deilt. Við þurfum fjölbreyttar lausnir. #kosningar24 #x24
0102
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
Venjulegt fólk hefur þurft að búa við okurvexti í óratíma til að sporna við verðbólgunni. Píratar vilja byggja umhverfisvæn einingahús sem hægt er að byggja upp hratt til að bregðast við því neyðarástandi sem nú ríkir. Við viljum byggja almennt íbúðarhúsnæði öllum almenningi til bóta. #kosningar24
192
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
Þ. Sunna: Það er ekki hægt að hækka lánakostnað heimilanna um hundruði þúsunda á mánuði og kalla það farsæla hagstjórn. #kosningar24 #x24
12710
Reposted by Píratar
Alexandra Briem @alexandrabriem.bsky.social · 29/11/2024
Sjálfstæðisflokkurinn veit vel að það ýtir undir stéttaskiptingu að stilla samræmdum prófum upp þannig að efnaðari foreldrar velji 'betri' skóla til að komast í 'betri' framhaldsskóla #kosningar24
1187
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
Það eru engar töfralausnir til, en við þurfum að hækka laun kennara, virða samninga sem eru gerðir við þá. Við þurfum að fækka börnum í hverjum bekk, efla námsráðgjafa og annan stuðning í skólum. Við þurfum að aðstoða fjölskyldur ungmenna í erfiðri stöðu. #kosningar24 #x24 #kosningar24 #x24
081
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
Ungmennunum okkar líður verr en þeim leið áður, við sjáum að vanlíðan unglinga er að fara ört vaxandi, álag á kennara er að fara ört vaxandi, kennarar fá störf sín ekki metin í launum. Það er aukin streita á foreldrum, það er afkomuótti og mikið áreiti í kringum samfélagsmiðla. #kosningar24 #x24
192
Píratar @piratar.bsky.social · 29/11/2024
Þ.Sunna: Þurfum að bregðast við breyttum tímum í skólakerfinu og annars staðar. Við þurfum að ýta undir sköpunarkraft, gagnrýna hugsun, upplýsingalæsi, skilning á forritun og gervigreind. Hvers vega skyldi námsárangur fara versnandi? Þarf að vera svona mikill hraði í samfélaginu? #kosningar24 #x24
1184
Reposted by Píratar
Reyn Alpha @haframjolk.com · 29/11/2024
💜🏴‍☠
Skjáskot af Facebook-pósti frá mér:

Af hverju kýs ég Pírata?

Ég kýs Pírata vegna þess að ég vil að mannréttindi allra séu virt og Píratar eru eini flokkurinn á þingi sem hefur barist fyrir því á liðnu kjörtímabili.

Ég kýs Pírata vegna þess að spilling og frændhygli eru raunveruleg vandamál sem kosta samfélagið gríðarlega mikið, fjárhæðir sem hægt væri að nýta til að bæta samfélagið fyrir almenning.

Ég kýs Pírata vegna þess að valdaflokkarnir þurfa frí og Píratar eru eini flokkurinn sem hefur útilokað samstarf við Sjálfstæðis- og Miðflokkinn.

Ég kýs Pírata vegna þess að Píratar eru með bestu umhverfis-, loftslags-, dýraverndunar- og hinseginstefnurnar og hafa, ólíkt öðrum flokkum sem kenna sig við þessi málefni, beitt sér fyrir róttækum aðgerðum í þeim efnum og viðhaft virkt samráð, til dæmis við Trans Ísland. Enginn stjórnmálaflokkur hefur á undanförnum árum staðið eins þétt með trans fólki og verið TÍ jafnmikið innan handa og Píratar.

Ég kýs Pírata vegna þess að ég hef aldrei séð eftir atkvæði mínu þangað. Það sama gæti ég ekki sagt hefði ég kosið einhvern annan flokk, en þeir flokkar sem ég annars ætti að geta samsamað mig við hafa farið af sporinu, til dæmis með því að greiða ekki atkvæði gegn því að þrengja réttindi fólks á flótta.

Kæru vinir og fjölskylda, kjósum öðruvísi á morgun. Kjósum mannréttindi, kjósum breytingar, kjósum frjálslyndi og félagshyggju, kjósum heiðarleika og vönduð vinnubrögð. Kjósum Pírata. 💜🏴‍☠
0204
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
við erum að verða af hundruðum milljarða út af fákeppni umhverfinu á Íslandi. Þessir herramenn hér voru báðir í Panama-skjölunum, nóta bene, talandi um að skila ekki til samfélagsins.“ 2/2 #kosningar24 #x24
visir.is
„Talandi um að skila ekki til sam­fé­lagsins“ - Vísir
„Svo teiknar hann flóttafólk og innflytjendur upp sem stórkostlega ógn við okkar innviði, fólk sem er ógn við þessa innviði er fólk sem borgar ekki til samfélagsins, við erum að verða af hundruðum mil...
0335
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
„Svo teiknar hann flóttafólk og innflytjendur upp sem stórkostlega ógn við okkar innviði, fólk sem er ógn við þessa innviði er fólk sem borgar ekki til samfélagsins, við erum að verða af hundruðum milljarða út af skattsvikum 1/2
visir.is
„Talandi um að skila ekki til sam­fé­lagsins“ - Vísir
„Svo teiknar hann flóttafólk og innflytjendur upp sem stórkostlega ógn við okkar innviði, fólk sem er ógn við þessa innviði er fólk sem borgar ekki til samfélagsins, við erum að verða af hundruðum mil...
1418
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
sem hefur verið í gangi gagnvart okkar auðlindum á ekki að viðgangast. Við verðum að berjast við bæði spillingu, sem hefur orðið þess valdandi að hér hefur myndast villt vestur í kringum sumar af okkar bestu auðlindum og svo þurfum við að taka á þessu með sterkara reglukerfi. #kosningar24 #x24
070
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Ótrúlega mikið um að erlendir aðilar komi hingað og notfæri sér okkar orkuauðlindir án þess að samfélagið fái arð til baka. Það þarf að setja í fyrsta forgang að það þarf að varðveita þessar auðlindir ekki bara fyrir nútímann heldur komandi kynslóðir. Þessi græðgisvæðing - #kosningar24 #x24
160
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
þar sem erlendir aðilar eru að ásælast okkar dýrmætu auðlindir. T.d. stóriðjustefnuna sem mengar gríðarega mikið, sem mun kosta okkur til lengri tíma í skertum lífsgæðum og verra ástandi í loftslagsmálum. Fiskeldi í opnum sjókvíum er að leggja lífríki sjávar í gríðarlega hættu. #kosningar24
151
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Þ. Sunna: Píratar standa vörð um auðlindir landsins og vilja innleiða nýja stjórnarskrá sem tryggir að auðlindir séu í þjóðareign. Það er mikilvægt að styðja við unga bændur, mikilvægt að halda landinu í rækt og hlúa að sjálfbærum landbúnaði. Þurfum líka að horfa til fleiri staða - #kosningar #x24
1183
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
...er Sigmundur Davíð að gagnrýna fólk fyrir að skila ekki sínu til samfélagsins? #panama #kosningar24 #x24
1311
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
í alls konar geirum. Þessi hópur borgar skatta, kemur hingað menntaður, tilbúinn að vinna, með háa atvinnuþátttöku og gerir samfélagið okkar betra. #kosningar24 #x24
080
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Þ Sunna: Sigmundur Davíð hefur keyrt kosningabaráttu sína á hræðsluáróðri gagnvart flóttafólki. Þessi hræðsluáróður á ekki við nein rök að styðast. Fólk frá Úkraínu er svo skínandi dæmi um hvernig þetta gæti verið, þau koma hingað og fá strax að koma sér fyrir, fá strax að vinna - #kosningar24 #x24
1222
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Við viljum leita til lífeyrissjóðanna, að þeir fjárfesti í þriðjungi þess húsnæðis sem þarf á hverjum tíma. Þjóðin er að eldast, við þurfum smærri einingar fyrir eldra fólk, og tekjulægra. Við þurfum að koma með nýjar og breytilegar lausnir í takt við breytingar í samfélaginu. #kosningar24 #x24
061
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Það er fjöldinn allur af fyrirtækjum á Íslandi sem byggja timbureiningahús, með lágt kolefnisspor, sem hægt er að byggja upp miklu hraðar en nú er gert. Svo þarf að tryggja að nægt húsnæði sé til staðar til lengri tíma og gera langtímaáætlanir. #kosningar24 #x24
151
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Þ. Sunna: Fyrsta sem þarf að gera er að viðurkenna það neyðarástand sem nú ríkir á húsnæðismarkaði og fara í bráðabirgðaaðgerðir. 16% af öllu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu er í skammtímaleigu - þetta er bara orðinn bisness. Það þarf að fara í uppbyggingu á húsnæði. #kosningar24 #x24
1122
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Góðir tímar þegar sköttum almennings var veitt í að niðurgreiða lán þeirra sem áttu ennþá a) eigið húsnæði og b) áttu það enn eftir hrun. Þau sem misstu húsnæðið sitt fengu aldrei „leiðréttingu“. Leigjendur fengu aldrei „leiðréttingu“. En skattar _allra_ fóru í „leiðréttinguna“ til eignafólks.
061
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Sælla minninga. Hver saknar ekki þessa tíma?🥰 #kosningar24 #x24
1182
Píratar @piratar.bsky.social · 28/11/2024
Þ. Sunna: Hvað er Sjálfstæðisflokkurinn búinn að lofa að afnema stimpilgjöld oft?🤔 #kosningar24 #x24
091