Sign in

Heimildin

@heimildin.bsky.social
123 followers 3 following 1.8K posts

Heimildin er óháður fjölmiðill sem stundar rannsóknarblaðamennsku. Hún varð til við sameiningu Kjarnans og Stundarinnar í janúar 2023.

PostsRepliesMedia
Heimildin @heimildin.bsky.social · 2h
Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur rætt við Ingu Sæland félagsmálaráðherra um óljós mörk á milli ráðuneyta þegar kemur að endurhæfingarmálum. Hún segir að dæmi séu um að ungt fólk í endurhæfingu hafi ekki fengið þá þjónustu sem það vildi. hmld.in/FHAo
hmld.in
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur rætt við Ingu Sæland félagsmálaráðherra um óljós mörk á milli ráðuneyta þegar kemur að endurhæfingarmálum. Hún segir að dæmi séu um að ungt fólk í endurhæfingu hafi ekki fengið þá þjónustu sem það vildi. Mönnunarvandi sé ástæða þess að stofnanir dragi saman eða loki á sumrin.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 6h
Viðbragðsaðilar héldu að Björn Ólafur Haraldsson væri útúrdópaður þegar hann lá á gólfinu með blæðingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkrunarfræðinámi þegar áfallið reið yfir. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterkari til baka. hmld.in/FGzf
hmld.in
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Viðbragðsaðilar héldu að Björn Ólafur Haraldsson væri útúrdópaður þegar hann lá á gólfinu með blæðingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkrunarfræðinámi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leiðrétta mistök ófaglærðs starfsfólks á heilbrigðisstofnunum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterkari til baka.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 11h
Þrátt fyrir stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan rétt til listsköpunar lýsa skólastjórnendur tónlistarskóla þungum áhyggjum af þróun mála. Aldurstakmörk hafi orðið til þess að vísa þurfti nemendum úr námi og aðrir komist aldrei að. hmld.in/FGz8
hmld.in
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
Þrátt fyrir stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan rétt til listsköpunar lýsa skólastjórnendur tónlistarskóla þungum áhyggjum af þróun mála. Aldurstakmörk hafi orðið til þess að vísa þurfti nemendum úr námi og aðrir komist aldrei að. Sífellt sé þrengt að starfsemi tónlistarskóla þar til þeir verði annaðhvort að sameinast eða loka.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 02/10/2026
Um­sögn fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á fé­laga­formi Orku­veit­unn­ar var lögð fram á fundi borg­ar­ráðs í gær.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 02/10/2026
Fjármálaráðuneytið metur tekjutap ef gjaldahækkanir verða takmarkaðar við verðbólgumarkmið Seðlabankans vera 1,6 milljarða króna. Engin ákvörðun hefur verið tekin en Kristrún Frostadóttir segir ríkisstjórnina reiðubúna að takmarka hækkanir. hmld.in/FHHK
hmld.in
Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldahækkanir fylgdu verðbólgumarkmiði
Fjármálaráðuneytið metur tekjutap ef gjaldahækkanir verða takmarkaðar við verðbólgumarkmið Seðlabankans vera 1,6 milljarða króna. Engin ákvörðun hefur verið tekin en Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina reiðubúna að takmarka hækkanir við 2,5 prósent ef aðrir leggi sitt af mörkum og kjarasamningar haldi.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 02/10/2026
Andreas Norlen þingforseti hefur falið Magdalenu Andersson, leiðtoga jafnaðarmanna, að halda áfram viðræðum eftir að fyrri tilraun hennar mistókst. Hún á að gera honum grein fyrir stöðunni fyrir 12. október. hmld.in/FHHJ
hmld.in
Andersson fær annað tækifæri til stjórnarmyndunar
Andreas Norlen þingforseti hefur falið Magdalenu Andersson, leiðtoga jafnaðarmanna, að halda áfram viðræðum eftir að fyrri tilraun hennar mistókst. Hún á að gera honum grein fyrir stöðunni fyrir 12. október.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 02/10/2026
Borgarráð hefur skipað viðræðuhóp til að semja við Tækniskólann um að skólinn haldist í Reykjavík. Hafnarfjörður hafði áður samið við skólann um lóðir til uppbyggingar en reyndist svo ekki geta afhent þær. hmld.in/FHHI
hmld.in
Viðræður að hefjast um nýjan Tækniskóla í Reykjavík
Borgarráð hefur skipað viðræðuhóp til að semja við Tækniskólann um að skólinn haldist í Reykjavík. Hafnarfjörður hafði áður samið við skólann um lóðir til uppbyggingar en reyndist svo ekki geta afhent þær.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 02/10/2026
Fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, lýsti vonbrigðum með niðurstöðu Tækniskólamálsins á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að ljóst var að Tækniskólinn kæmi ekki í bæinn. Hann hefur ekki viljað svara spurningum um málið. hmld.in/FHHF
hmld.in
Valdimar varar við að leita sökudólgs í Tækniskólamálinu
Fyrrverandi bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, lýsti vonbrigðum með niðurstöðu Tækniskólamálsins á fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir að ljóst var að Tækniskólinn kæmi ekki í bæinn. Hann hefur ekki viljað svara spurningum um málið.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 01/10/2026
Evrópski seðlabankastjórinn Christine Lagarde segir að evrópskar fjármálastofnanir geti orðið háðar líkönum sem þróuð eru utan álfunnar og spyr hver ráði aðgangi þeirra að tækninni. hmld.in/FHHE
hmld.in
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind
Evrópski seðlabankastjórinn Christine Lagarde segir að evrópskar fjármálastofnanir geti orðið háðar líkönum sem þróuð eru utan álfunnar og spyr hver ráði aðgangi þeirra að tækninni.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 01/10/2026
Hvað ber að forðast og hverju að sækjast eftir þegar blásið er í glæður haturs og ótta? Gunnar Hersveinn tvinnar saman lærdóma úr tveimur bókum, og dregur ályktanir. hmld.in/FHFP
hmld.in
Ást og hatur á tímum óvissunnar – að sjá og heyra en alls ekki skilja
Hvað ber að forðast og hverju að sækjast eftir þegar blásið er í glæður haturs og ótta? Gunnar Hersveinn tvinnar saman lærdóma úr tveimur bókum, og dregur ályktanir. Heyrir þú hljóðið? Finnur þú hitann, lyktina? Sérðu táknin, merkin í náttúrunni og mannheimum? Við þurfum að lesa í þau til að falla ekki í gryfju stríðsmenningar, efla friðarmenningu og umgangast náttúruna af virðingu.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 01/10/2026
Hörð­ur Arn­ar­son læt­ur af störf­um sem for­stjóri Lands­virkj­un­ar. Að­stoð­ar­for­stjóri tek­ur tíma­bund­ið við starf­inu.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 01/10/2026
Borgarstjóri Reykjavíkur, Hildur Björnsdóttir, leggst gegn stólakaupum fyrir borgarfulltrúa sem gert er ráð fyrir í viðauka við fjárfestingaáætlun borgarinnar. Það gæti þó verið þörf á nýjum skjá í sal borgarstjórnar. hmld.in/FHHB
hmld.in
Leggst gegn eigin stólakaupum: „Ég hef sjálf setið makindalega í þeim í átta ár“
Borgarstjóri Reykjavíkur, Hildur Björnsdóttir, leggst gegn stólakaupum fyrir borgarfulltrúa sem gert er ráð fyrir í viðauka við fjárfestingaáætlun borgarinnar. Það gæti þó verið þörf á nýjum skjá í sal borgarstjórnar.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 01/10/2026
Framboð hótelherbergja jókst í ágúst en gistinóttum á hótelum fækkaði. Gistinóttum á öðrum skráðum gististöðum, eins og tjaldsvæðum og sumarhúsum, fjölgaði hins vegar og jókst heildarfjöldinn um 3,3 prósent á milli ára. hmld.in/FHHA
hmld.in
Fleiri hótelherbergi en færri gistinætur
Framboð hótelherbergja jókst um 1,7 prósent í ágúst en gistinóttum á hótelum fækkaði um 2,5 prósent. Gistinóttum á öðrum skráðum gististöðum, eins og tjaldsvæðum og sumarhúsum, fjölgaði hins vegar og jókst heildarfjöldinn um 3,3 prósent á milli ára.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 01/10/2026
Oddviti Samfylkingarinnar gagnrýnir forgagnsröðun meirihlutans sem ætlar að verja 50 milljónum í nýja stóla og skjá inn í borgarstjórnarsal á sama tíma og miklar aðhaldsaðgerðir standa yfir. hmld.in/FHGy
hmld.in
50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal
Oddviti Samfylkingarinnar gagnrýnir forgagnsröðun meirihlutans sem ætlar að verja 50 milljónum í nýja stóla og skjá inn í borgarstjórnarsal á sama tíma og miklar aðhaldsaðgerðir standa yfir.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 30/09/2026
Andy Burnham segir að breska ríkisstjórnin eigi að meta ólíkar leiðir til framtíðarsamskipta við ESB, þar á meðal fulla aðild. Ummælin hafa endurvakið deilur um Brexit. „Komið aftur,“ segir franski forsetinn Emmanuel Macron. hmld.in/FHGx
hmld.in
Burnham opnar á að Bretland gangi aftur í ESB
Andy Burnham segir að breska ríkisstjórnin eigi að meta ólíkar leiðir til framtíðarsamskipta við ESB, þar á meðal fulla aðild. Ummælin hafa endurvakið deilur um Brexit. „Komið aftur,“ segir franski forsetinn Emmanuel Macron.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 30/09/2026
Stefán Ólafsson telur að of mikið sé lagt upp úr því að hækka stýrivexti til að ná tökum á verðbólgu. hmld.in/FHGv
hmld.in
Lítil áhrif vaxtahækkana á verðbólgu
Stefán Ólafsson telur að of mikið sé lagt upp úr því að hækka stýrivexti til að ná tökum á verðbólgu. Hann kallar eftir úrræðum sem beinast frekar að þeim sem knýja eftirspurnina.
020
Heimildin @heimildin.bsky.social · 30/09/2026
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur stefnt Íslandi fyrir dóm vegna bókunar 35. Íslenska ríkið hefur ekki innleitt bókunina með réttum hætti. ESA telur íslensk lög ekki tryggja að einstaklingar og fyrirtæki njóti til fulls réttinda samkvæmt EES-samningnum. hmld.in/FHGu
hmld.in
ESA stefnir Íslandi vegna bókunar 35
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur stefnt Íslandi fyrir dóm vegna bókunar 35. Íslenska ríkið hefur ekki innleitt bókunina með réttum hætti. ESA telur íslensk lög ekki tryggja að einstaklingar og fyrirtæki njóti til fulls réttinda samkvæmt EES-samningnum. Bókun 35 hefur verið hluti af samningnum frá upphafi.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 30/09/2026
Forysta Sjálfstæðisflokksins og Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður, funduðu með íhaldssömum hugveitum og mæltu fyrir fríverslunarsamningi. hmld.in/FHGi
hmld.in
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
Forysta Sjálfstæðisflokksins og Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður, funduðu með íhaldssömum hugveitum og mæltu fyrir fríverslunarsamningi.
001
Heimildin @heimildin.bsky.social · 29/09/2026
Forsvarsmenn tæknifyrirtækja hafa skuldbundið sig til að setja gervigreind öryggisramma, en samkomulagið verður ekki lagalega bindandi. Á sama tíma eykst þrýstingur á bandaríska þingmenn að hemja þróun tækninnar vegna ótta um áhrif hennar. hmld.in/FHGn
hmld.in
Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind
Forsvarsmenn tæknifyrirtækja hafa skuldbundið sig til að setja gervigreind öryggisramma, en samkomulagið verður ekki lagalega bindandi. Á sama tíma eykst þrýstingur á bandaríska þingmenn að hemja þróun tækninnar vegna ótta um áhrif hennar á störf og samfélag.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 29/09/2026
Væntingavísitala Gallup lækkar um 24,2 stig milli mánaða og mælist nú 51,5 stig. Mælingin tekur til mats Íslendinga á efnahagslífinu og atvinnumöguleikum. Verðbólga hefur aukist, Seðlabankinn hækkaði vexti í ágúst og atvinnuleysi er meira en fyrir ári. hmld.in/FHGf
hmld.in
Svartsýni eykst á ný í samfélaginu
Væntingavísitala Gallup lækkar um 24,2 stig milli mánaða og mælist nú 51,5 stig. Mælingin tekur til mats Íslendinga á efnahagslífinu og atvinnumöguleikum og væntinga til næstu sex mánaða. Verðbólga hefur aukist, Seðlabankinn hækkaði vexti í ágúst og atvinnuleysi er meira en fyrir ári.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 29/09/2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent í september. Hagstofan metur að hækkun virðisaukaskatts á bensín og dísel hafi ein og sér hækkað vísitöluna um 0,32 prósentustig. Lækkun flugfargjalda vó á móti. hmld.in/FHGe
hmld.in
Verðbólga mælist 5,9 prósent – hærri virðisaukaskattur á eldsneyti vegur þungt
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent í september. Hagstofan metur að hækkun virðisaukaskatts á bensín og dísel hafi ein og sér hækkað vísitöluna um 0,32 prósentustig. Lækkun flugfargjalda vó á móti.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 29/09/2026
Tvö lögregluembætti hafa krafið þrjá viðburðarhaldara um samanlagt 47 milljónir vegna þriggja viðburða í sumar. Viðburðahaldarar eru hugsi vegna málsins og tveir hafa kært gjaldtöku lögreglu. hmld.in/FHGX
hmld.in
Lögreglan rukkar viðburðahaldara um tugi milljóna
Tvö lögregluembætti hafa krafið þrjá viðburðarhaldara um samanlagt 47 milljónir vegna þriggja viðburða í sumar. Viðburðahaldarar eru hugsi vegna málsins og tveir hafa kært gjaldtöku lögreglu.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 28/09/2026
Lögreglan hefur rætt við um tíu vitni sem voru á vettvangi þegar banaslys átti sér stað á Krýsuvíkurvegi. Beðið er eftir niðurstöðum úr vettvangsrannsókn. hmld.in/FHGc
hmld.in
Búið að ræða við öll vitni í tengslum við banaslys
Lögreglan hefur rætt við um tíu vitni sem voru á vettvangi þegar banaslys átti sér stað á Krýsuvíkurvegi. Beðið er eftir niðurstöðum úr vettvangsrannsókn.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 28/09/2026
Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands fer í gegnum umdeildar greiningar og viðbrögð við þeim. Þá er einnig rætt um lærdóm hrunsins. „Mér finnst menn hafa tekið á sig of mikla sök.“ hmld.in/FGzE
hmld.in
Telur Viðskiptaráð hafa tekið á sig of mikla sök
Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands fer í gegnum umdeildar greiningar og viðbrögð við þeim. Þá er einnig rætt um lærdóm hrunsins. „Mér finnst menn hafa tekið á sig of mikla sök“
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 27/09/2026
Guðrún Pétursdóttir kynntist starfi Grensáss þegar systir hennar slasaðist. Hún er nú formaður Hollvina Grensáss og fékk Messenger-skilaboð frá ráðherra um að fjármagn hefði verið tryggt fyrir viðbyggingu. hmld.in/FHAR
hmld.in
„Manni er vel tekið þegar maður safnar fyrir Grensás“
Guðrún Pétursdóttir kynntist starfi Grensáss þegar systir hennar slasaðist. Hún er nú formaður Hollvina Grensáss og fékk Messenger-skilaboð frá ráðherra um að fjármagn hefði verið tryggt fyrir viðbyggingu.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 27/09/2026
Dr. Younis Al-Khatib er forseti Rauða hálfmánans í Palestínu. Hann lýsir aðstæðum á vettvangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóðasamfélagið stígi inn. Mannúðarsamtök geti ekki leyst pólitísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjáist. hmld.in/FHEy
hmld.in
Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
Dr. Younis Al-Khatib er forseti Rauða hálfmánans í Palestínu. Hann lýsir aðstæðum á vettvangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóðasamfélagið stígi inn. Mannúðarsamtök geti ekki leyst pólitísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjáist. „Alþjóðasamfélagið þarf að skilja að nú er mælirinn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið pólitísk.“
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 27/09/2026
Í Frakklandi gilda mjög ákveðnar reglur varðandi framleiðslu osta. Mjög strangt eftirlit er með framleiðslunni enda mikið í húfi því franskir ostar eru heimsfrægir fyrir gæði. En stundum koma upp vandamál sem erfitt er að leysa. hmld.in/FHF3
hmld.in
Comté eða ekki Comté
Í Frakklandi gilda mjög ákveðnar reglur varðandi framleiðslu osta, nánar tiltekið eru reglurnar 170 talsins. Mjög strangt eftirlit er með framleiðslunni enda mikið í húfi því franskir ostar eru heimsfrægir fyrir gæði. En stundum koma upp vandamál sem erfitt er að leysa, því hafa framleiðendur Comté ostanna fengið að kynnast að undanförnu.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 26/09/2026
Þorvaldur S. Helgason skrifar um kammeróperuna Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökulsdóttur og Önnu Halldórsdóttur, sem sýnd er í Tjarnarbíói. hmld.in/FHGQ
hmld.in
Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar
Þorvaldur S. Helgason skrifar um kammeróperuna Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Jökulsdóttur og Önnu Halldórsdóttur, sem sýnd er í Tjarnarbíói.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 26/09/2026
Donald Trump og Xi Jinping ræddu meðal annars gervigreind, viðskipti og stríðið í Íran á fundi sínum í Washington. Leiðtogarnir staðfestu jafnframt að þeir myndu hittast tvisvar til viðbótar á þessu ári. hmld.in/FHGa
hmld.in
Kína og Bandaríkin koma á samskiptaleið vegna atvika tengdum gervigreind
Donald Trump og Xi Jinping ræddu meðal annars gervigreind, viðskipti og stríðið í Íran á fundi sínum í Washington. Leiðtogarnir staðfestu jafnframt að þeir myndu hittast tvisvar til viðbótar á þessu ári.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 26/09/2026
Wojciech Jarosz vann á Keflavíkurflugvelli en eftir örlagaríkt frí í Karíbahafinu sækir hann nú endurhæfingu á Grensásdeild í von um að geta staðið aftur upp einn daginn. Sjaldgæfur kvilli sem byrjendur á brimbrettum geta fengið olli lömun fyrir neðan mitti. hmld.in/FGzi
hmld.in
Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist
Wojciech Jarosz vann á Keflavíkurflugvelli en eftir örlagaríkt frí í Karíbahafinu sækir hann nú endurhæfingu á Grensásdeild í von um að geta staðið aftur upp einn daginn. Sjaldgæfur kvilli sem byrjendur á brimbrettum geta fengið olli lömun fyrir neðan mitti.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 25/09/2026
Kviðdómur í Nýju-Mexíkó komst að þeirri niðurstöðu að Meta hefði gefið notendum villandi upplýsingar um persónuvernd og miðlun persónuupplýsinga. Ríkið krefst sekta sem gætu numið milljörðum dala. hmld.in/FHG9
hmld.in
Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu
Kviðdómur í Nýju-Mexíkó komst að þeirri niðurstöðu að Meta hefði gefið notendum villandi upplýsingar um persónuvernd og miðlun persónuupplýsinga. Ríkið krefst sekta sem gætu numið milljörðum dala.
020
Heimildin @heimildin.bsky.social · 25/09/2026
RÚV má fækka út­varps­stöðv­um verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt á að RÚV dragi úr vægi sínu á aug­lýs­inga­mark­aði um 10 pró­sent.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 25/09/2026
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Svikasögur eftir Maríu Reyndal, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. hmld.in/FHGT
hmld.in
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Svikasögur eftir Maríu Reyndal, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 25/09/2026
Kanadísk-haítíski rithöfundurinn Thelyson Orelien neitar að hafa notað gervigreind við gerð fyrstu skáldsögu sinnar. Ásakanir um ritstuld í eldri skrifum hans hafa einnig komið fram og útgefandi hans í Kanada hefur frestað kynningarferð hans. hmld.in/FHG6
hmld.in
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Kanadísk-haítíski rithöfundurinn Thelyson Orelien neitar að hafa notað gervigreind við gerð fyrstu skáldsögu sinnar. Ásakanir um ritstuld í eldri skrifum hans hafa einnig komið fram og útgefandi hans í Kanada hefur frestað kynningarferð hans.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 25/09/2026
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, skrifar um kostnað aðgerðaleysis í loftslagsmálum og ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum. hmld.in/FHG5
hmld.in
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, skrifar um kostnað aðgerðaleysis í loftslagsmálum og ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 25/09/2026
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hugðist beita borgina dagsektum vegna ófullnægjandi eldvarna. Ákveðið var að segja upp samningum í stað þess að fara í kostnaðarsamt viðhald. Eitt húsanna var gert upp fyrir 150 milljónir fyrir fimm árum síðan. hmld.in/FHG3
hmld.in
Borgin segir upp leigu í skugga dagsekta
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hugðist beita borgina dagsektum vegna ófullnægjandi eldvarna. Ákveðið var að segja upp samningum í stað þess að fara í kostnaðarsamt viðhald. Eitt húsanna var gert upp fyrir 150 milljónir fyrir fimm árum síðan.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 24/09/2026
Tugir fulltrúa gengu úr salnum þegar forsætisráðherra Ísraels, hóf ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúi Íslands sat áfram í sæti landsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var á sama tíma á fundi til stuðnings UNRWA. Lesa: hmld.in/FHG4
hmld.in
Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
Tugir fulltrúa gengu úr salnum þegar Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hóf ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúi Íslands sat áfram í sæti landsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var á sama tíma á fundi til stuðnings Palestínuflóttamannahjálp SÞ.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 24/09/2026
Guðrún Hafsteinsdóttir krafði Ingu Sæland svara um hver hafi ákveðið afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ríkisstjórn. Inga segir þau Guðmund Inga greina á um aðdraganda málsins og stendur við sínar ákvarðanir. hmld.in/FHG2
hmld.in
„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“
Guðrún Hafsteinsdóttir krafði Ingu Sæland svara um hver hafi ákveðið afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ríkisstjórn. Í skilaboðum sem aðstoðarkona hans sendi honum í janúar sagði að ákvörðunin hefði verið tekin af „valkyrjunum“. Inga segir þau Guðmund Inga greina á um aðdraganda málsins og stendur við sínar ákvarðanir.
001
Heimildin @heimildin.bsky.social · 24/09/2026
Aðstoðarkona Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi barna- og menntamálaráðherra, sendi honum skilaboð þar sem fram kom að hann þyrfti að segja af sér, hinn valkosturinn væri stríð. hmld.in/FHG1
hmld.in
Heimildin
Heimildin er í dreifðu eignarhaldi og óháð hagsmunaaðilum.
020
Heimildin @heimildin.bsky.social · 24/09/2026
Bandarískur alríkisdómari hefur fyrirskipað Trump-stjórninni að hleypa fréttamönnum CNN, MS NOW og Politico aftur inn í Hvíta húsið. Dómarinn telur að afturköllun blaðamannaskírteina þeirra hafi líklega brotið gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra. hmld.in/FHG0
hmld.in
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins
Bandarískur alríkisdómari hefur fyrirskipað Trump-stjórninni að hleypa fréttamönnum CNN, MS NOW og Politico aftur inn í Hvíta húsið. Dómarinn telur að afturköllun blaðamannaskírteina þeirra hafi líklega brotið gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 24/09/2026
Noregsbanki hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í morgun til að vinna gegn verðbólgu. Bankinn segir að frekari vaxtahækkanir kunni að reynast nauðsynlegar. hmld.in/FHGZ
hmld.in
Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent
Noregsbanki hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig í morgun til að vinna gegn verðbólgu. Bankinn segir að frekari vaxtahækkanir kunni að reynast nauðsynlegar.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 23/09/2026
Flugvirkjafélag Íslands hefur aflýst yfirstandandi verkfalli hjá Icelandair. Aðilar ætla að nýta næstu fjórar vikur til viðræðna undir verkstjórn ríkissáttasemjara með það að markmiði að ljúka nýjum kjarasamningi. hmld.in/FHGW
hmld.in
Flugvirkjar aflýsa verkfalli – samið um fjögurra vikna viðræður
Flugvirkjafélag Íslands hefur aflýst yfirstandandi verkfalli hjá Icelandair. Aðilar ætla að nýta næstu fjórar vikur til viðræðna undir verkstjórn ríkissáttasemjara með það að markmiði að ljúka nýjum kjarasamningi.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 23/09/2026
Alþingi kemur saman til fundar í dag til að afgreiða frumvarp Eyjólfs Ármannssonar ráðherra um lög sem stöðvar verkfall flugvirkja. Verkfallið hófst á miðnætti og hefur kyrrsett allar flugvélar Icelandair. hmld.in/FHGV
hmld.in
Ætla að setja lög á flugvirkja
Alþingi kemur saman til fundar í dag til að afgreiða frumvarp Eyjólfs Ármannssonar ráðherra um lög sem stöðvar verkfall flugvirkja. Verkfallið hófst á miðnætti og hefur kyrrsett allar flugvélar Icelandair.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 23/09/2026
Ellilífeyrisgreiðslur hafa miðað við of lágt frítekjumark í nær áratug samkvæmt orðalagi laga. Milljarðar eru undir en Tryggingastofnun túlkar lögin út frá lögskýringargögnum. Skrifstofa Alþingis segir lögin ekki uppfylla kröfur. hmld.in/FHFD
hmld.in
Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga
Ellilífeyrisgreiðslur hafa miðað við of lágt frítekjumark í nær áratug samkvæmt orðalagi laga. Milljarðar eru undir en Tryggingastofnun túlkar lögin út frá lögskýringargögnum. Skrifstofa Alþingis segir lögin ekki uppfylla kröfur og ráðuneytið hyggst skoða hvort þeim þurfi að breyta.
010
Heimildin @heimildin.bsky.social · 22/09/2026
Ísland mun draga úr samfélagslosun um 21 prósent árið 2030 miðað við árið 2005 og er því langt frá loftslagsmarkmiðinu um 41 prósenta samdrátt. Losun dróst þó saman í öllum meginflokkum milli ára. hmld.in/FHFw
hmld.in
Samdráttur milli ára en Ísland langt frá loftslagsmarkmiðum
Ísland mun draga úr samfélagslosun um 21 prósent árið 2030 miðað við árið 2005 og er því langt frá loftslagsmarkmiðinu um 41 prósenta samdrátt. Losun dróst þó saman í öllum meginflokkum milli ára.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 22/09/2026
ESB-ríkin reyna að ná samkomulagi um framlengingu refsiaðgerða gegn Rússlandi áður en þær renna út í kvöld. Lettland leggst gegn því að tveir rússneskir auðmenn verði teknir af refsiaðgerðalistanum. hmld.in/FHGS
hmld.in
Ágreiningur innan ESB um refsiaðgerðir gegn rússneskum auðmönnum
ESB-ríkin reyna að ná samkomulagi um framlengingu refsiaðgerða gegn Rússlandi áður en þær renna út í kvöld. Lettland leggst gegn því að tveir rússneskir auðmenn verði teknir af refsiaðgerðalistanum.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 22/09/2026
Einn lóðarhafa í Hafnarfirði þar sem reisa átti Tækniskólann fékk tilboð sem hann féllst ekki á. Síðan voru samskipti lítil. Fyrrverandi bæjarstjóri fer undan í flæmingi. hmld.in/FHGR
hmld.in
Samskipti Hafnarfjarðarbæjar við lóðarhafa lítil síðustu 3 ár
Einn lóðarhafa í Hafnarfirði þar sem reisa átti Tækniskólann fékk tilboð sem hann féllst ekki á. Síðan voru samskipti lítil. Fyrrverandi bæjarstjóri fer undan í flæmingi.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 21/09/2026
Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að hafa brugðist of seint við hallarekstri ríkissjóðs. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafnaði gagnrýninni og sagði framkvæmd fjárlaga hafa batnað á kjörtímabilinu. hmld.in/FHGP
hmld.in
Daði segir framúrkeyrslu ríkisins hafa minnkað
Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að hafa brugðist of seint við hallarekstri ríkissjóðs. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafnaði gagnrýninni og sagði framkvæmd fjárlaga hafa batnað á kjörtímabilinu.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 21/09/2026
Stefán Ólafsson skrifar um hagfræði sem hlífir breiðu bökunum en leggur byrðarnar á þau mjórri. „Almenningur ætti að vera á varðbergi þegar spámenn nýfrjálshyggju-hagfræðanna stíga á stokk,“ skrifar hann. hmld.in/FHGN
hmld.in
Skuggaleg skynsemi hagfræðinga
Stefán Ólafsson skrifar um hagfræði sem hlífir breiðu bökunum en leggur byrðarnar á þau mjórri. „Almenningur ætti að vera á varðbergi þegar spámenn nýfrjálshyggju-hagfræðanna stíga á stokk,“ skrifar hann.
000
Heimildin @heimildin.bsky.social · 21/09/2026
Kaja Kallas, æðsti fulltrúi ESB í utanríkis- og öryggismálum, segir þingkosningarnar í Rússlandi aðeins yfirvarp lýðræðis. Flokkur Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta vann stórsigur um helgina. hmld.in/FHGM
hmld.in
ESB hafnar „svokölluðum“ kosningum í Rússlandi
Kaja Kallas, æðsti fulltrúi ESB í utanríkis- og öryggismálum, segir þingkosningarnar í Rússlandi aðeins yfirvarp lýðræðis. Flokkur Vladimir Pútíns Rússlandsforseta vann stórsigur um helgina.
010