Sign in

Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University

@haskolinn.bsky.social
118 followers 0 following 26 posts

Háskólinn í Reykjavík er öflugur kennslu- og rannsóknaháskóli með áherslu á tækni og samfélag. HR er í fremstu röð á heimsvísu. Nemendur eru liðlega 4.000 og starfsfólkið um 700 talsins með stundakennurum.

PostsRepliesMedia
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 02/12/2023
HR leitar að metnaðarfullum stjórnanda til að leiða markaðs- og samskiptamál háskólans. Viðkomandi mun fara fyrir öflugum hópi sérfræðinga á sviði hönnunar, framleiðslu, textavinnslu, upplýsingamiðlunar, viðburðastjórnunar og vefþróunar innan háskólans. jobs.50skills.com/ru/is/24733
jobs.50skills.com
Reykjavik University | Störf í boði
Hefur þú áhuga á að tilheyra kraftmiklum og fjölbreyttum hópi starfsmanna Háskólans í Reykjavík
010
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 22/11/2023
Desember og jólin geta verið tími gleði, en líka tími mikillar streitu. Langar þig að læra að byggja upp andlega þrautseigju til að takast á við streitu og erfiðleika? Opni háskólinn í HR býður upp á stutt námskeið 1. desember til að auðvelda fólki að njóta jólanna. oh.ru.is/namskeid/pas...
oh.ru.is
Passaðu púlsinn í desember
Byggðu upp þrautseigju fyrir streituminni jól. Námskeiðið verður í beinu streymi.
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 20/11/2023
HR óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í launavinnslu og frágang launa. Launafulltrúi veitir ráðgjöf, er í góðum samskiptum við starfsfólk og stjórnendur og vinnur náið með sérfræðingum á fjármála- og mannauðssviði. jobs.50skills.com/ru/is/24524 #atvinna #vinna #lauststarf
jobs.50skills.com
Reykjavik University | Störf í boði
Hefur þú áhuga á að tilheyra kraftmiklum og fjölbreyttum hópi starfsmanna Háskólans í Reykjavík
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 08/11/2023
Nýjasti viðmælandi Verkfræðivarpsins er Dr. Marta K. Lárusdóttir, prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Marta er einn helsti sérfræðingur landsins í Agile-verkefnastjórnun og jafnframt brautryðjandi í rannsóknum á sambandi manns og hugbúnaðar. open.spotify.com/episode/3an6...
open.spotify.com
Verkfræðivarpið // 11. þáttur: Dr Marta Kristín Lárusdóttir
Listen to this episode from HR Hlaðvarpið on Spotify. Haukur Ingi og Þórður Víkingur ræddu við Dr. Mörtu K. Lárusdóttir prófessor við tölvunarfræðideild HR. Marta er einn helsti sérfr...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 07/11/2023
HR hlaðvarpið er rödd Háskólans í Reykjavík og mikilvægur hluti af vísindamiðlun háskólans til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. HR hlaðvarpið er að finna á Spotify, Apple iTunes og Podcasts og í öllum helstu streymisveitum hlaðvarpa.
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 07/11/2023
Háskólinn í Reykjavík leitar að sterkum verkefnastjóra í blandað hlutverk kerfisgreinanda (Systems Analyst) og kerfiseiganda (Product Owner). Viðkomandi verður lykilpersóna í samstarfi við lítið en kraftmikið teymi þróara sem vinna að framþróun kerfisumhverfis HR. jobs.50skills.com/ru/is/24353
jobs.50skills.com
Reykjavik University | Störf í boði
Hefur þú áhuga á að tilheyra kraftmiklum og fjölbreyttum hópi starfsmanna Háskólans í Reykjavík
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 03/11/2023
Dr. Ronald Hanson, prófessor við QuTech-rannsóknastofnun Delft University of Technology í Hollandi, hélt fyrir skemmstu fyrirlestur um skammtafræði í Háskólanum í Reykjavík á vegum verkfræðideildar í tilefni af 25 ára afmæli háskólans árið 2023. open.spotify.com/episode/3kai...
open.spotify.com
HR hlaðvarpið // Ronald Hanson og Sigurður Ingi Erlingsson ræða undirstöður og hagnýtingu sk...
Listen to this episode from HR Hlaðvarpið on Spotify. Dr. Ronald Hanson, prófessor við QuTech-rannsóknastofnun Delft University of Technology í Hollandi, hélt fyrir skemmstu 25 ára afmælisfyr...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 01/11/2023
Dr. Ármann Gylfason, nýr deildarforseti verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, er viðmælandi Verkfræðivarpsins að þessu sinni. Í viðtalinu segir hann frá sjálfum sér, kennslunni og rannsóknunum við HR og hvernig allt þetta tvinnast saman. SPOTIFY open.spotify.com/episode/1xGp...
open.spotify.com
Verkfræðivarpið // 10. þáttur: Dr. Ármann Gylfason
Listen to this episode from HR Hlaðvarpið on Spotify. Dr. Ármann Gylfason, nýr deildarforseti verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík, er viðmælandi Verkfræðivarpsins að þessu sinni. S�...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 01/11/2023
Dr. Hugh Fullagar hefur tekið til starfa sem prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hugh er reynslumikill kennari og vísindamaður, ásamt því að vera eftirsóttur fyrirlesari í faginu og unnið með liðum í NCAA, NFL, NBA og Hollandi. ru.is/frettir/dr-h...
ru.is
Dr. Hugh Fullagar ráðinn prófessor hjá íþróttafræðideild HR
Dr. Hugh Fullagar hefur tekið til starfa sem prófessor við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík. Hann kemur til HR frá University of Technology í Sydney. Hugh er reynslumikill kennari...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 27/10/2023
Rætt við Stefán Ólafsson, lektor við tölvunarfræðideild og rannsakanda við gervigreindarsetur HR. Sérsvið Stefáns er máltækni en hann er með doktorsgráðu í heilbrigðisupplýsingatækni, meistaragráðu í máltækni og BA-gráðu í enskum og kínverskum fræðum. open.spotify.com/episode/0XH1...
open.spotify.com
Gervigreind á mannamáli // Þáttur 2: Stefán Ólafsson, lektor í tölvunarfræði
Listen to this episode from HR Hlaðvarpið on Spotify. Gervigreind á mannamáli er hlaðvarpssyrpa þar sem við spjöllum við starfsfólk Háskólans í Reykjavík um gervigreind út frá ýmsum h...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 26/10/2023
"Er virkilega nauðsynlegt að kostnaðarframúrkeyrsla líkist náttúrulögmáli við opinberar framkvæmdir? Hvernig snéru Norðmenn dæminu um kostnaðarframúrkeyrslu við? Hvað hefur Bent Flyvbjerg til málanna að leggja?" spyrja stjórnendur Verkfræðivarpsins á Spotify. open.spotify.com/episode/09Sj...
open.spotify.com
Verkfræðivarpið // 9. þáttur: Kostnaðarframúrkeyrsla við opinberar framkvæmdir
Listen to this episode from HR Hlaðvarpið on Spotify. "Er virkilega nauðsynlegt að kostnaðarframúrkeyrsla líkist náttúrulögmáli við opinberar framkvæmdir? Hvernig snéru Norðmenn dæminu...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 23/10/2023
Árlegur hápunktur Bleiku slaufunnar, árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins, var Bleiki dagurinn, sem haldinn var hátíðlegur um land allt föstudaginn 20. október. Starfsfólk og nemendur HR tóku þátt. #bleikaslaufan #bleikidagurinn #pinkribbon #pinkday
010
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 17/10/2023
Gestur Íþróttarabbs HR að þessu sinni er Chris Harwood, sem er í fremstu röð á heimsvísu meðal fræðifólks í íþróttasálfræði. Chris þróaði 5C aðferðafræðina. open.spotify.com/episode/375s...
open.spotify.com
Íþróttarabb HR // 8. þáttur: Chris Harwood og 5C aðferðafræðin
Listen to this episode from Íþróttarabb HR on Spotify. Chris Harwood er gestur íþróttarabbs HR að þessu sinni. Hann er í fremstu röð meðal fræðimanna í íþróttasálfræði og starfar ...
010
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 16/10/2023
Er heimurinn að verða VUCA? Afhverju er áhættustjórnun að verða ein mikilvægasta greinin innan hugmyndafræði stjórnunar? VUCA er skammstöfun sem lýsir heimi sem er hverfull (volatile), óviss (uncertain), flókinn (complex) og margræður (ambiguous). open.spotify.com/episode/7rk7...
open.spotify.com
Verkfræðivarpið // 8. þáttur: Er heimurinn að verða VUCA?
Listen to this episode from HR Hlaðvarpið on Spotify. Er heimurinn að verða VUCA?  Afhverju er áhættustjórnun að verða mikilvægasta greinin innan hugmyndafræði stjórnunar?VUCA er skammst...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 13/10/2023
Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands leita að sameiginlegum verkefnastjóra til að starfa í 5 mánuði í 30% starfi fyrir Háskóladaginn 2. mars 2024. jobs.50skills.com/ru/is/23632/
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 13/10/2023
Gestir HR hlaðvarpsins að þessu sinni eru Hannes Högni Vilhjálmsson og og Páll Jakob Líndal. Umræðuefnið er nýtt þverfaglegt diplómanám við HR í umhverfissálfræði og þrívíddartækni. Það er Stefán Hrafn Hagalín hjá samskiptateymi HR, sem ræðir við þá. open.spotify.com/episode/20N8...
open.spotify.com
HR hlaðvarpið // Nýtt þverfaglegt diplómanám í umhverfissálfræði og þrívíddartækni
Listen to this episode from HR Hlaðvarpið on Spotify. Gestir HR hlaðvarpsins að þessu sinni eru Hannes Högni Vilhjálmsson, doktor í tölvunarfræði og prófessor við tölvunarfræðideild HR...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 11/10/2023
Gestur Sprotasólarinnar er Gísli Ragnar Guðmundsson, nýsköpunarsérfræðingur hjá Ríkiskaupum. HR og Ríkiskaup gerðu nýverið með sér samstarfssamning sem miðar að því að tengja nemendur við opinbera aðila gegnum ýmis verkefni. Gagnaþon Ríkiskaupa verður um miðjan okt. open.spotify.com/episode/5Y77...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 10/10/2023
Í 7. þætti Verkfræðivarpsins er sagt frá hvernig að kennsla í verkfræði og fleiri greinum mun taka stakkaskiptum með tilkomu gervigreindar. Upphafsmenn Verkfræðivarpsins eru þeir Haukur Ingi Jónasson, Helgi Þór Ingason og Þórður Víkingur Friðgeirsson. open.spotify.com/episode/3H41...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 10/10/2023
Anna K. Liebel kennir námskeiðið "Diversity, Equity and Inclusion", sem hefst 13. nóvember hjá Opna háskólanum í HR; námskeið sem er hægt að útleggja sem "Fjölbreytni, jöfnuð og inngildingu". Anna vinnur jafnframt að framleiðslu stafræns námskeiðs um sama efni með skólanum. oh.ru.is/namskeid/div...
oh.ru.is
Building Inclusive and Diverse Workplaces
Fjölbreytni og inngilding á vinnustöðumYou cannot fix the problem if you are not aware of what the issue truly is. This is the challenge many businesses face when working with Diversity, Equity an...
010
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 04/10/2023
Gestir Íþróttarabbs HR að þessu sinni eru prófessorarnir Daniel Gould og Robert Weinberg, sem eru heimsþekktir í bransanum og taldir meðal virtustu sérfræðinga allra tíma á sviði íþróttasálfræði. Það er Peter O'Donoghue, prófessor við HR, sem spjallar við þá! open.spotify.com/episode/1TFo...
open.spotify.com
Íþróttarabb HR // 8. þáttur: Daniel Gould og Robert Weinberg
Listen to this episode from Íþróttarabb HR on Spotify. Gestir íþróttarabbsins að þessu sinni eru prófessoranir Daniel Gould og Robert Weinberg.  Weinberg og Gould eru vel þekktir fyrir stö...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 02/10/2023
Húsfyllir var á Vísindavöku 2023 í Laugardalshöll hinn 30. sept. HR mætti eins og alltaf með fjölbreytt atriði og kynningarbása, sem áttu margvíslegt erindi við almenning. Lögð var áhersla á atriði, sem höfða til yngstu kynslóðarinnar, þannig að nóg var að gera á öllum básum!
020
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 29/09/2023
Nú hefur verið sett upp sérstök lendingarsíða á Spotify fyrir hið stórvirka Íþróttarabb HR, sem er sjálfstæð þáttasyrpa innan hlaðvarpsfjölskyldu Háskólans í Reykjavík. Það er samskiptateymi HR sem hefur umsjón með HR hlaðvarpinu. open.spotify.com/show/7oUCh3k...
open.spotify.com
Íþróttarabb HR
Listen to Íþróttarabb HR on Spotify. Íþróttarabb HR er þáttasyrpa innan HR hlaðvarpsins. Það er íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík sem heldur syrpunni úti. Í þáttunum er s...
010
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 28/09/2023
Starfsfólk Háskólans í Reykjavík er nú í óða önn að undirbúa þátttöku í Vísindavöku, sem haldin verður í Laugardalshöll núna á laugardaginn kemur, 30. september, frá kl. 13-18. Vísindavaka er öllum opin og aðgangur er ókeypis. NÁNAR: www.visindavaka.is
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 22/09/2023
25. sept munu Ari Arnbjörnsson og Ægir Þorsteinsson setjast niður í stofu V102 í HR kl. 16:00 og tala um starfsframa sína eftir útskrift frá HR og svara spurningum áhorfenda. Ari er Unreal Engine Evangelist hjá Epic Games. Ægir er framkvæmdastjóri Aranja og CPO hjá Hopp. www.ru.is/haskolinn/vi...
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 22/09/2023
HR óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í launavinnslu og frágang launa. Launafulltrúi veitir ráðgjöf, er í góðum samskiptum við starfsfólk og stjórnendur í HR og vinnur náið með sérfræðingum á fjármála- og mannauðssviði. jobs.50skills.com/ru/is/23520
jobs.50skills.com
Reykjavik University | Störf í boði
Hefur þú áhuga á að tilheyra kraftmiklum og fjölbreyttum hópi starfsfólks Háskólans í Reykjavík
000
Háskólinn í Reykjavík // Reykjavik University @haskolinn.bsky.social · 11/09/2023
Alþjóðadagur HR var haldinn 8. september. Viðburðurinn er haldinn á hverri önn til þess að kynna alþjóðleg tækifæri fyrir nemendur HR. Þar má nefna skiptinám, styrki og framhaldsnám erlendis. Sendiráð veittu upplýsingar, tækifæri gáfust til að smakka framandi mat og í lokin kenndu Spánverjar salsa!
040