Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 17/09/2026Ég keypti nokkrar rauðvín þegar við fórum til Ítalíu í fyrra, ekkert sérvalið, bara random, enda hef ég ekkert vit á rauðvíni. Dóttir mín eldaði fínan mat fyrir okkur í kvöld og ég opnaði eina. Rosalega fín, fann hana svo í vínbúðinni og hafði kannski ekki hugsað út í að hún væri svona effin dýr. 160
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 17/09/2026Hún var svo elskuleg að skutla mér heim að sækja aukalykilinn 😅 010
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 17/09/2026Ég átti sannkallað meistara atriði í gærkvöldi. Fór með bílinn í Hafnarfjörð á verkstæðið þar sem hann á tíma í morgunsárið. Dóttir mín elti mig, ég legg bílnum, læsi og set lykilinn í lyklaboxið. Síminn minn enn í bílnum. 140
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 12/09/2026Ég var að koma heim af 1991 tónleikunum í háskólabíó. Omg hvað þetta var geggjað! 010
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 09/09/2026Símanúmerið var óskráð, en einhverjum datt í hug að bæta því í contacts og þá fann Snapchat hver var. Kemur í ljós að þetta er eitthvað gerpi í 10. bekk sem hafði fundið númerin þeirra í gömlum gögnum frá nemendaráði úr sama skóla. Mér er skapi næst að fara og berja kauða í hausinn með Písa prófi. 150
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 09/09/2026Elsti sonur minn fékk símtal í gær úr óskráðu númeri þar sem honum var tilkynnt að vinur hans hefði dáið í slysi. Hann hringir í vinahópinn, enginn hafði heyrt neitt og þegar þeir ná í hann, þá hafði vinurinn fengið samskonar hringingu um að sonur minn væri dáinn. 160
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 02/09/2026Það eru alltof margir stólar miðað við borð. 110
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 29/08/2026Það er orðið svo langt síðan ég áttaði mig á því að hagsmunir mínir og xD fara ekki saman að ef ég lít til baka sé ég ekki lengur hvar leiðir skildu. Þess vegna er gott að fá svona áminningu og gera öfugt 020
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 28/08/2026Bara yndislegir. Og maturinn þeirra svo góður 💕 030
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 28/08/2026Ég hef aldrei opinberlega sagt frá þessu, vonandi þurfa sem fæstir að upplifa svona áfall með börnin sín, en það sem ég lærði um sjálfan mig er að heilinn í manni er ótrúlega flinkur í auto pilot. Það líður næstum yfir mig við sjá blóð, en þarna gerðist eitthvað annað. Við elskum Grikkland ❤️🇬🇷 090
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 28/08/2026Þvert á móti var okkar upplifun sú að kerfið þar væri langt á undan okkur. Ríka Íslandi. Við heimkomu mættum við með yngri stelpuna á bráðamóttökuna að láta klippa af henni gibsið. Þar biðum við í 9 klukkutíma. 160
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 28/08/2026Í Aþenu fengum við óaðfinnanlega þjónustu, stelpan fór í aðgerð á handleggnum, meðferð við samföllnu lunga og við þá hjálp sem við þurftum. Þegar við komum heim fengum við mjög margar spurningar um heilbrigðiskerfið í Grikklandi, hvort það hefði nú ekki verið hræðilegt og fleira í þeim dúr. 140
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 28/08/2026Læknirinn á heilsugæslunni bjó um stelpurnar, pantaði bát, 120 manna ferju fyrir okkur sex til Santorini þar sem er sjúkrahús. Þar fengu stelpurnar mínar topp þjónustu, en það kom svo í ljós að eldri stelpan þurfti að fara í aðgerð í Aþenu, svo við fórum aftur með ferju yfir á meginlandið. 130
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 28/08/2026Ég áttaði mig á því þá og í kjölfarið hversu gott og hjálplegt fólk er að upplagi. Þau sem komu að slysinu hlúðu að okkur, aðstoðuðu okkur á allan mögulega máta sem þau gátu. Starfsfólkið þar sem við gistum hringdu á allar gistingar sem við áttum framundan, útskýrðu aðstæður og afbókuðu fyrir okkur. 180
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 28/08/2026Ég á fjóra yndislega krakka. Fyrir tveimur árum lentu dætur mínar tvær í fjórhjólaslysi í Grikklandi, á Folegandros nánar tiltekið. Brotnuðu báðar á höndum, önnur á upphandlegg og hin á úlnið. Að horfa á eftir þeim ofan í gil er erfiðasta lífsreynsla sem ég hef upplifað. 290
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 26/08/2026Þegar rétta innköllunin kemur verður fagnað um allan heim. 020
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 19/08/2026TL;DR; Það virkaði ekki síðast.. og ekki þar áður.. en núna virkar það. 050
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 07/08/2026Það er eitthvað smá hlægilegt við feisbúkk færslu frá vini með mynd af heyrúllu með "ESB Nei takk" og svo er næsta færsla nokkrum dögum seinna með mynd af mygluðum íslenskum kartöflum og mælt með útlendum. Ákveddu þig vinur. 080
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 05/08/2026Jú vissulega er það kúl - ég fer og finn sólmyrkva gleraugun sem ég fékk send frá Lifandi vísindum síðast 😎 020
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 05/08/2026Pínu erfitt að vera spenntur yfir sólmyrkvanum, það var eiginlega sólmyrkvi allan júlí hér í Reykjavík. 1102
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 13/07/2026"Eruð þið að fara til útlanda? Ætliðið að missa af íslenska sumrinu?" Íslenska sumarið: 070
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 03/07/2026Ég var að kaupa harðan disk. Hann hefur hækkað um 20% síðan í jan. þegar ég keypti samskonar disk síðast. Get ekki beðið eftir því að þessi AI sjitt companies fari lóðbeint á hausinn. 060
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 03/07/2026Ef þú ert ekki búin að fá þér, þá er Jolli í Hafnarfirði líka alveg súper. 000
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 30/06/2026Lítraverðið af rjóma er 30% dýrara í líters fernu en hálfs líters. Vantaði líter og ætlaði að grípa stóra áður en ég sá verðmuninn. Skil ekkert. 240
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 27/06/2026Stefán Hilmarsson. Þvílíkir tónleikar í gær! Þegar Hvar er draumurinn fór í gang varð ég aftur 16 ára í Njálsbúð 🥹 130
Reposted by Grettir EinarssonMayor of London, Sadiq Khan @london.gov.uk · 23/06/2026At the risk of igniting a public debate about the design… we prepared for days like this. There are now more than 100 water fountains all over the city, and 4,000 water refill points. Fill up. Stay hydrated. 901411307
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 21/06/2026Við hjónin skelltum okkur á Bergmál tónleikana í gær. Það var yndislegt. 040
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 15/06/2026Nýtt íslenskt orð var að lenda: verðátta Er hægt að nota þegar allra veðra er von. Og þegar allra verða er von. Notkun: Það er gott að pakka fötum og nesti fyrir íslenska verðáttu. 010
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 12/06/2026Ef þið stoppið á Skógum, kíkið á Kvernufoss sem er þar rétt hjá. 020
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 27/05/2026Ég skanna samviskusamlega Samkaupa appið þegar ég versla í Nettó, en var að taka eftir því eftir uppfærslu á appinu að ég hef engri inneign safnað síðan í fyrra. Er þá ekki bara búið að breyta reglunum: www.samkaup.is/skoda-appid/ Þarf ég sem sagt að vera með KEA kortið? wtaf. Uninstalled. 120
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 22/05/2026Ég átti afmæli í vikunni, við gamla settið og krakkarnir skelltum okkur í bæinn, borðuðum á Grillmarkaðnum og áttum notalega samveru ❤️🍻 020
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 20/05/2026Heitir hann ekki Hafnarfjarðarvegur norðan megin við Garðabæ? Eru fleiri Reykjavíkurvegir? 110
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 24/04/2026Ég fékk bréf í ábyrgðarpósti í dag, sendandinn var Páfagarður. Syndaaflausn hélt ég, en nei. Hraðasekt frá því við vorum á Ítalíu í fyrrasumar. Vegir Guðs eru ekki bara órannsakanlegir, þeir eru líka yfirfullir af hraðamyndavélum. Þetta er önnur sektin mín á þessu ári, held ég skili skírteininu. 0100
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 17/03/2026Ég fékk mína fyrstu hraðasekt í 15 ár um helgina. Var bara að krúsa á löglegum hraða úr Borgarfirðinum í bílalest og áttaði mig ekki á því að það er 70 km hámarkshraði á 100 metra kafla við Grundartanga. Þar var myndavélabíl lagt og tók 50 þús. af öllum sem fóru þar um. Umferðaröryggi eða fjáröflun? 281
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 11/03/2026Dóttir mín skrapp til Köben um helgina og kom óvænt með vínil fyrir gamla 💕 060
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 27/02/2026Við fjölskyldan fórum á Moulin Rouge í gærkvöldi. Vá hvað þetta er skemmtileg sýning. Stórkostleg. 120
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 26/02/2026Ég er búinn að gera nokkrar tilraunir til að horfa á Harry Potter, kemst bara ekki áfram. Svo hef ég ekki séð eina einustu Godfather mynd. Ekki séð Schindlers List né Citizen Kane. Bara nenni ekki :) 000
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 20/02/2026En ábendingin snýr að stífluðum niðurföllum fyrir framan mitt hús. Aulaðist til að þvo bílinn minn áðan, vatnið flæddi yfir niðurfallið, bjó til myndarlega tjörn við næstu hraðhindrun og núna hata mig allir sem hafa keyrt í þann poll. Oh well 🤦♂️ Gatan er allavega rykbundin núna. 110
Grettir Einarsson @grettirnet.bsky.social · 20/02/2026Já ég er mjög ánægður með þjónustuna, alltaf verið brugðist hratt og vel við ábendingum. Fannst þetta bara pínu fyndið og fékk smá endurupplifun frá að ég var að gera vefsíður frá sniðmátum í gamla daga 😀 010