Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 21/12/2025(Jóla)kötturinn minn braut tönn og byrjaði daginn hjá dýralækni, fór betur á en horfðist og fékk verkjastillandi. Jólastressið leggst jafnt á dýr sem menn😪 120
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 18/12/2025Ég er kannski ekki búið að græja allar jólagjafir enn komið með amk 4 afmælisgjafir fyrir næsta ár!! 140
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 18/11/2025Lúsífer hefur gert sig heimakæran hjá nágrönnunum. Ánægt fyrir hans hönd (loppu?) en líður smá eins og það sé verið að halda framhjá mér. Það er jú ósiður að góna inn um glugga annarra en ég get bara ekki sleppt því að sjá og horfa á köttinn minn í leik við nágrannann svona beint fyrir augum mér. 030
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 29/10/2025Mörg ykkar: vá jólasnjór!! *hlustið á jólalög, hengið upp jólaljós, horfið á jólamyndir* Ég: Best að byrja á jólahreingerningunni🧼✨😌 010
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 27/10/2025Vina kisi Lúsífers og Loka, kisanna minna varð fyrir bíl um helgina og hjartað er alveg brotið💔😔 030
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 19/10/2025Setti mynd af mér beru að ofan í IG story í gær. Fékk fimm unfollow í kjölfarið. Bið fyrir því að elsku fólkið hafi öðlast sálarró🙏😂 030
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 09/10/2025Þegar nágraninn á efri hæðinni sér köttinn minn segir hann iðulega ,,Nei er það ekki Cat Stevens!’’ og svo fylgir með sagan þegar hann hélt hann hefði eignast nýjan tengdason svo mannaleg væru sum kattanöfn og ef hann fengi sér kött þá fengi hann sko nafnið Steingrímur J(oð). 1100
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 09/10/2025Flutti fyrir 5 mánuðum og í mínum huga heitir nágranni minn Árni. Minnir að hann hafi kynnt sig svoleiðis. Er búið að tala vandræðalega mikið við hann til að fara spyrja. Ef þú sérð þetta Árni, þá vona ég að þú fyrirgefir. 150
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 05/08/2025Kerta season er hafið❤️🔥 Setti krukku með kerti út á stétt fyrir helgi🕯️😌 Í dag tók ég eftir því að einhver hefur hengt rauða lukt með ótendruðu kerti í tré í garðinum mínum🥹 130
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 28/07/2025Eitt af verkefnum helgarinnar hjá mér og konunni var að moka 8 tonnum af leirsandi og bera í lóðina. Mér finnst við fyrir vikið frekar óstöðvandi😤💪 010
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 02/05/2025Mamma gaf mér kisudagatal í auka jólagjöf, kemur í ljós í gær, 1. maí að það er engin maí opna!! Og ég sem á afmæli í maí😭😭 220
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 14/04/2025Brýtur í mér hjartað hvað kettlingurinn minn vill mikið leika við köttinn minn en það er ekki mutual😭💔 010
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 12/04/2025Er komin í 10 daga (páskafrí) fæðingarorlof (var að fá kettling). Baugarnir eru settling in eftir fyrsta sólahringinn. Mikið mjálm en líka mikið mal🥹 230
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 02/12/20242024, árið sem gellur tóku yfir landið😘 Gellu forseti, gellu biskup og allar líkur á gellu forsætisráðherra💅 020
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 27/11/2024Ég ætla nýta kosningaréttinn á laugardaginn✍️😎 Ég kýs breytingar🧡 #x24 #xc 031
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 27/08/2023Var í berjamó með nokkrum sniglum og lirfum. Öll södd og sæl eftir daginn. 030
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 14/08/2023Loksins skilaði hún Ugla sér heim eftir 3 vikur🥹❤️ 070
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 13/08/2023Ég er búin að vera á Snapchat í 10 ár. Algjörlega fáránleg tilhugsun. 040
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 07/08/2023Var að stilla vekjaraklukku í fyrsta skipti í mánuð 0100
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 07/08/2023Búin að afreka að fá flís í rassinn á djamminu í kvöld 180
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 05/08/2023Útihátíðin ,,Aldrei komst ég á kamarinn’’ er að standa undir nafni 190
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 03/08/2023Fyrir road tripið Ég: Skammastu þín fyrir mig svona á inniskónum? Mamma: neinei.. en þú er samt með húfu 050
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 02/08/2023Klámbottarnir eru farnir að ❤️ IG story. Óþolandi andskotar. 2130
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 01/08/2023Fékk svo góðan rúnar lestur hjá @skolledla.bsky.social á Austurstræti í gær😌✨ 140
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 30/07/2023Afsakið skeytingarleysið hér. Er í útilegu. Þetta skeyti verður að duga í bili. 2210
Reposted by Draumey ÓskHermigervill @hermigervill.bsky.social · 30/07/2023Ok halló krakkar þetta þarf ekki að vera svona flókið. Skeet er bara skeyti og ekki orð um það meir. 12948
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 29/07/2023Mamma um leið og ég kom á fætur: ,,Pínu flippuð hugmynd.. Eigum við að kaupa kúlutjald og fara í útilegu núna?’’ Uu jájá mamma mín😂 140
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 28/07/2023Jeij ég á hundrað vini hérna í skýjaborginni, ekki slæmt það💙 280
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 27/07/2023Ég á tvo innikisa og einn er týndur. Get ekki ímyndað mér hvernig þeim líður💔 260
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 26/07/2023,,ég ætla bara stela einu snickers’’ sagði ég við starfsmanninn sem stóð fyrir framan hilluna að raða. Ææ Draumey stundum er bara betra að segja ekkert🤦 170
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 26/07/2023,,hann er með aðskilnaðarkvíða’’ var svarið frá systir minn þegar ég spurði hvernig fósturgæsarungi fjölskyldunar hefði það..🥺 050
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 26/07/2023Manneskjan í snyrtivörudeild Hagkaup sem skynjaði væbið og benti mér bara á ilmvötn í ,,herradeildinni’’ þegar ég bað um hjálp, takk😌🤝 060
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 25/07/2023Vona að twitter fuglinn fljúgi hérna frjáls með okkur í himnunum, fljúgðu hátt vinur💙 080
Reposted by Draumey ÓskBrynhildur Yrsa Valkyrja @brynhilduryrsa.bsky.social · 25/07/2023Fólk á Bluesky „skrifar í skýin“ þegar það póstar hér inni 1232
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 25/07/2023Hvað er lingóið hérna? Hver erum við og hvað gerum við? Sá að einhver eru að skeeta💩 010
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 25/07/2023Lag dagsins en ekki hvað😎m.youtube.comElectric Light Orchestra - Mr. Blue Sky (Official Video)Official Music Video for "Mr. Blue Sky" by Electric Light OrchestraListen to Electric Light Orchestra: https://ELO.lnk.to/listenYDSubscribe to the Electric L... 040
Draumey Ósk @draumeyosk.bsky.social · 25/07/2023Nýr miðill og ný mynd! Vonandi er þetta ekki of riský move🤞 0100