Reposted by Arndís ÞórarinsdóttirEiríkur Gauti @eirikurgauti.bsky.social · 19/09/2026Hugmynd að leiðinlegri barnabók: 2263
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 13/09/2026Þið vitið, þegar maður fer til læknis og kvíðir því að læknirinn segi manni að bíða og sjá til og þetta sé örugglega ekkert merkilegt? En svo verður hann alvarlegur og pantar fullt af rannsóknum. Og það er gott en líka hræðilegt, því þá er allt svo raunverulegt? Ég er þar með gervigreindar-umræðuna. 011
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 31/08/2026Kannski er maður eitthvað extra mjúkur þennan mánudaginn, en núna finnst mér eins og að siðmenntað nútímasamfélag þurfi að uppfylla ákveðnar kröfur til að teljast funkerandi, og að eitt dagblað og ein sjónvarpsfréttastöð dugi ekki til að uppfylla þær. 040
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 30/07/2026"Vá, ég var að fatta! Ég er nær því að vera þrítug en þú, mamma!" - 17 ára dóttir við 43 ára móður 🫠 130
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 20/07/2026Erum við ekki að tala um dauðafæri fyrir rammíslenskt Mt. Rushmore, ha? Er of seint að húkka far með þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst til að ákveða hvaða stórmenni við neglum í fjallið? Nú þurfum við bara dálítið can-do attitjúd, krakkar! 020
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 21/06/2026Dóttir mín svarar í símann ýmist með „KOM EITTHVAÐ FYRIR?“ eða „HVAÐ GENGUR Á?“ og ég tengi. 041
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 13/06/2026Áhugavert hvað þetta orðtak verður óþægilegt með þessum viðsnúningi 🫥 130
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 04/06/2026Lenti í skemmtilegum samkvæmisleik í gær - hvaða land elskar þú þrátt fyrir að meika ekki þjóðina sem það byggir? 110
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 06/05/2026Árið er 2026 og enn hafa engin tjákn komist með tærnar þar sem gömlu MSN-tjáknin höfðu hælana.. 040
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 10/04/2026Furðaði mig á því hver hún væri, þessi fræga kona sem virtist allt í einu alltaf í viðtölum á Vísi. Rann svo upp fyrir mér í dag að þetta eru víst keppendur í Ungfrú Ísland, einn á dag... 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 21/03/2026Í gær var jafndægur á vori og alþjóðlegur dagur hamingjunnar og í dag er dagur ljóðsins. Það er kannski allt að fara til fjandans - en þetta verður þó ekki af okkur tekið! 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 03/03/2026Áminning: Tryllta vororkan er í alvöru mjög skammt undan. Hún virðist fjarlæg, nú þegar síðustu fjórir mánuðir hafa ýmist verið febrúar, nóvember, desember eða janúar (eftir atvikum), en hún kemur. Ég lofa. 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 01/03/2026Önnur möguleg framsetning: Skapandi greinar eru undirstaða ferðamannastraumsins. 020
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 26/02/2026Ekki styttist syndalisti Dags B. Eggertssonar... 020
Reposted by Arndís ÞórarinsdóttirEiríkur Gauti @eirikurgauti.bsky.social · 24/02/2026Mikið myndi það leysa mörg vandamál ef menntaskólaskólabörn fengju fjórða árið sitt aftur. 0191
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 24/02/2026Spila í lottóinu er svo dýrt. Sjálf kýs ég frekar að fara í ævintýraferðir í ruslpósthólfið mitt í leit að stórkostlega góðum fréttum sem hafa slysast þangað. Bæði eftirvænting og vinningslíkur á pari við íslenskar getraunir! 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 23/02/2026Galdur fyrisagnaskrifa skal ekki vanmetinn - lipurlega framkölluð hugrenningatengsl hérna hjá RÚV. 030
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 21/02/2026Fór með þrjá gemlinga á aldrinum 12 til 16 í bústað í vetrarfríinu. Ákvað að spila fyrir þau Vetrarfrí eftir @hildur.bsky.social á leiðinni, sem er jú um bústaðaferð í vetrarfríinu - og mannætugeimverurnar sem birtast við það tækifæri. Ákveðið sjokk þegar fólk svaf svo eitthvað illa í nótt.ruv.isVetrarfrí - Spilari RÚVVetrarfrí er framhaldsleikrit í átta þáttum eftir Hildi Knútsdóttur. Vetrarfríið er loksins að byrja. Bergljót hlakkar til að fara í bekkjarpartý og Bragi bróðir hennar ætlar að gista hjá vini sínum. ... 2152
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 19/02/2026Stundum ranka ég við mér við að pæla í því hvort myndbönd af sætum dýrum eru AI eða ekki, frekar að tala um það hvernig markmið gervigreindarinnar er að draga verulega úr þörf fyrir vinnuafl, svo gróði stórfyrirtækja hámarkist á meðan atvinnulaus almenningur sveltur. 021
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 21/01/2026Sko, hér í velferðarríkjum Evrópu er til það óyndisúrræði að svipta fólk sjálfræði þegar það er orðið sjálfu sér og öðrum hættulegt. Ætli það þekkist ekkert svipað þarna fyrir vestan? 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 14/01/2026Þarna er hún þá komin. Farþegamiðstöðin Gjaldskylda 🫶 170
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 12/01/2026Hugleiðsluappið hélt því mjög til haga að ég hefði ekki misst úr dag í meira en 600 daga. Svo var ólag á appinu og jólabókaflóð og einn desemberdaginn stóð að ég hefði nú hugleitt í þrjá daga í röð... AUGLJÓSLEGA hætti ég að hugleiða af prinsippástæðum og er núna bálreið í kvíðakasti. Augljóslega. 😡 020
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 09/01/2026Það er eitthvað við konseptið "blygðunarspjald" á skrifborðum sem fær mig til að sjá fyrir mér heilu salina af buxnalausum möppudýrum... 030
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 05/01/2026Þegar maður hnussar ofan í bringuna - og fattar um leið hvað maður er orðinn ægilega gamall: Nú, ef þetta hefði þótt saga til bæjar árið 1997, þá hefði nú ekki ýkjamargt annað komist í fréttir... 020
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 30/12/2025Er það áramótaheit að skrifa meira? Ég krotaði niður svona sirka allt sem ég veit um málið. open.substack.com/pub/thorarin... 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 27/12/2025Að vera smug... eða að vera drýldin? Afdráttarlaust 1-0 fyrir íslenskunni. Drýldinn er miklu drýldnari. 120
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 17/12/2025Gamansaga dagsins: Þegar ég var lítil varð ég mjög impóneruð þegar landbúnaðarráðherra var boðinn í mat heima. Okkur systrum var falið að útbúa glasakort og ég, upprifin, teiknaði bústna á í íslenskum haga og skrifaði HALLDÓR þvert yfir síðu rollunnar. Ég var beðin um að teikna kortið aftur. 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 08/12/2025Síðbúið útgáfuboð? Ofurlítil jólagleði? Bókapartý? Það er sama hvaða nafni við viljum nefna það, mér þætti vænt um að sjá þig kl. 17:00 á morgun! 🥰 www.facebook.com/events/83221... 020
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 17/11/2025Við Jóhannes Ólafsson áttum gott spjall um Sólgos og aðrar bókmenntir fyrir þátt vikunnar af Bara bækur - en þar voru bókmenntir sem skoða samfélög á heljarþröm til rannsóknar. Aðrir viðmælendur voru Nanna Rögnvaldardóttir og Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson. Hlekkur hér að neðan! 110
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 14/11/2025Ég skjalfesti niðurstöður lestrarrannsóknar sem hafði mikil áhrif á mig sem höfund. Hægt að gerast áskrifendur að Substack hjá mér! thorarinsdottir.substack.com/p/bkur-sem-e...thorarinsdottir.substack.comBækur sem er ekki hægt að hætta að lesaHávísindaleg rannsókn Arndísar og Ævars haustið 2022 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 13/11/2025Ég er fáránlega spennt fyrir hinni árlegu Bókahátíð í Hörpu sem er um helgina. Þar bjóðast ýmis tækifæri til þess að hitta mig, spjalla og fá áritun. Ég vonast til þess að sjá ykkur sem flest! 000
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 28/10/2025Sólgosi er dreift í verslanir í dag. Í nýjasta Substack-pistlinum mínum má lesa aðeins um það hvað ég var að pæla! thorarinsdottir.substack.com/p/solgos-kem... 000
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 27/10/2025Það er búið að tala þessa yfirvofandi snjókomu svo mikið upp að mínu innra hörmunga-dýri finnst langskynsamlegast að halda okkur bara innanhúss frá og með núna og fram á fimmtudag, til vonar og vara. 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 16/07/2025Nei, þetta er of krúttlegt! 🥺🥰 Góða skemmtun með Kúnstpásu - og vonandi á M&m góða ferð í vændum til Kanada :D 150
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 20/04/2025Þætti það alveg kúl ef meginstraumsfjölmiðlar skrifuðu sambærilegar greinar um konur? 🤔mbl.isHvernig á að ná sér í „golden retriever“-kærasta?Fyrst og fremst er „golden retriever“-kærasti þekktur fyrir að vera traustur; hann heldur ekki framhjá og gleymir ekki viðburðum. Hann gæti jafnvel fært þér blóm. 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 10/03/2025Það bar til um þessar mundir að yngri unglingurinn óx mér yfir höfuð. Kom nokkuð flatt upp á mig. Annað sem kom flatt upp á mig var hvað ég reynist hafa tamið mér ávarpið "litli vinur" þegar ég tala við téð afkvæmi. ...Viljið þið giska hver er núna kölluð "litli vinur" í öðru hverju samtali? 010
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 20/02/2025Þrúgandi táknræna í vanilludropaglasinu sem hefur brotnað í gær án þess að nokkur yrði þess var, hangir saman á límmiðanum og virðist því stálheilt, nema hvað varðar þetta smámál með að innvolsið lekur hægt út um sprungurnar... 000
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 15/02/2025Afi hringdi í mig. Er að pæla í að skella sér á árskort í ræktinni. Það er sjáðu til svo miklu hagstæðara en mánaðarleg áskrift. Afi er fæddur 1924. 020
Arndís Þórarinsdóttir @arndisdunja.bsky.social · 14/02/2025Þennan Valentínusardag fylgist ég með nágranna mínum brjástra við að rekja upp grenilengjurnar af handriðinu og kærleikurinn til mannkynsins svellur í brjósti mér! Við erum öll grenilengjumaðurinn í febrúar. 020