Sign in

Aggi!

@aggi.bsky.social
362 followers 390 following 1.2K posts

Artist in Malmö www.arngrimur.is

PostsRepliesMedia
Aggi! @aggi.bsky.social · 28/09/2026
Mér finnst þetta svipað væb og kínverskir bolir með enskum texta
140
Aggi! @aggi.bsky.social · 25/09/2026
Svarið: Þetta er náttúrulega avókadó-krabbasalat með sveppum og ísberg.
3140
Aggi! @aggi.bsky.social · 25/09/2026
Gamlar sænskar matreiðslubækur eru Necronomicon matargerðarlistarinnar. Treystir einhver sér til að giska hvað þetta er?
Brúnleitur köggull á disk. Einhvers konar ákavíti í staupi í bakgrunni
6130
Aggi! @aggi.bsky.social · 21/08/2026
Malmö esteþík dagsins
Afsláttur afsláttur afsláttur
Burt með allt burt með allt burt með allt
140
Aggi! @aggi.bsky.social · 19/08/2026
Dystópía dagsins
Skilti: Malmöborg minnir íbúa á einkenni þess að ofhitna
270
Aggi! @aggi.bsky.social · 08/08/2026
Kom með hálft kíló af einhverjum íslenskum fríhafnarhjúplakkrís í vinnuna í dag. Þetta er staðan núna:
Einn Góulakkrís í skál ásamt smá súkkulaðiryki.
060
Aggi! @aggi.bsky.social · 08/08/2026
Technically Hafnarfjörður
1140
Aggi! @aggi.bsky.social · 15/07/2026
Ég er í tjaldi undir einiberjarunna í sænskri sveit. Þessi er að hoppa um fyrir framan tjaldið.
Sænsk kanína.
160
Aggi! @aggi.bsky.social · 12/07/2026
Ég skal byrja: Árið 2013 teiknaði ég humal sem var notaður sem merki bruggverksmiðju í Noregi. Bjórinn var á markaði í tíu ár en mér tókst aldrei að ná mér í flösku til að smakka hann eða koma á barinn þeirra sem notaði merkið
Flaska af Lysefjorden fölbjór ásamt glasi með fullu af téðum fölbjórTveir Lysefjorden i bauk
050
Aggi! @aggi.bsky.social · 12/07/2026
Árið 1951 virðist ljósmyndarinn Loftur hafa háð auglýsingastríð við aðra ljósmyndara í Reykjavík. Báðar auglýsingarnar úr Tízkublaðinu Clip.
050
Aggi! @aggi.bsky.social · 11/07/2026
Kókosbolla í rúnstykki (Bulle med bulle). Fyrirbæri frá norð-vestra Skáni. Í borginni Landskrona er rétturinn heiðraður með götunafni
Bulle med bullegatan
0110
Aggi! @aggi.bsky.social · 10/07/2026
Þjóðarréttur Helsingjaborgar er bolla með bollu
Rúnstykki með kókosbollu á diski
8363
Aggi! @aggi.bsky.social · 10/06/2026
Vinnan í dag. Tvær plötur af Marabou. Einn biti eftir af hverri
050
Aggi! @aggi.bsky.social · 09/06/2026
Bring back öfgafullar forsíðufyrirsagnir
Er Akureyri Sódóma nútímans?
040
Aggi! @aggi.bsky.social · 04/06/2026
Gamlar sænskar dagblaðamyndasögur eru krípí.
140
Aggi! @aggi.bsky.social · 22/05/2026
lol, 1997
0251
Aggi! @aggi.bsky.social · 18/05/2026
Þá er gosbrunnurinn okkar í Malmö fallegri. Hann ku vera minnsti gosbrunnur i heimi og er fyrir utan vinnustaðinn minn. Hann er svo agnarsmár að það leið hálfur mánuður áður en við tókum eftir að borgin er búin að slökkva á honum vegna vatnsskorts í borginni.
Agnarsmár gosbrunnur
160
Aggi! @aggi.bsky.social · 13/05/2026
Vinnan í dag: Einn Möndlukubbur
Sænskt sætabrauð sitjandi á stálbakka.
060
Aggi! @aggi.bsky.social · 23/04/2026
Isländska varianten är gubbar som har bott i Skåne sen 80-talet, är medlemmar i Isländska föreningen och bär såna t-shirt samtidigt som de klagar på att invandrare inte integreras i Sverige.
110
Aggi! @aggi.bsky.social · 20/04/2026
Vinnustofan mín er í iðnaðarhelvíti. Malbik, verksmiðjur, lestarteinar, mengun og múrsteinar eins langt og augað eygir. Furðulegasti vorboðinn þar eru útivistartýpur sveipaðar fjällräven, með risabakpoka, tjöld og göngustafi, því að einhver hardcore margra daga gönguleið endar í miðju hverfinu.
Fagra Malmö ❤️
090
Aggi! @aggi.bsky.social · 15/04/2026
Bónusmynd, líka frá því í dag: Einn hlaupbíll
070
Aggi! @aggi.bsky.social · 15/04/2026
Vinnan í dag: Einhvers konar vínarbrauð
060
Aggi! @aggi.bsky.social · 15/04/2026
Mitt er dálítið chunk, en ég elska það samt. Sjálftrekkjandi Seiko 5 sem hefur ferðast á mér um heiminn í mörg ár.
Grænt seiko úr á loðnum grunni.
010
Aggi! @aggi.bsky.social · 08/04/2026
Nágrannar mínir setja ajvar á allt á sama hátt og mörlandinn setur kokteilsósu á allt. Verð að segja að ég kann betur að meta ajvar
020
Aggi! @aggi.bsky.social · 27/03/2026
Vinnan í dag: Agnarsmá kökuflís
Lítill biti af köku í álpappír á bláum disk. Efst trónir borðhnífur
2110
Aggi! @aggi.bsky.social · 19/03/2026
Sænskir krimmar eru að ógna hver öðrum með því að hengja svið á hurðahúna í skjóli nætur.
1150
Aggi! @aggi.bsky.social · 16/03/2026
Gaurinn sem spilar á skemmtara í Bob Hund grillar bara fjandi góða pulsu 🌭
Sænskur sperðill með súrkáli, kartöflumús, túmat, steiktum og sinnep
040
Aggi! @aggi.bsky.social · 16/03/2026
Lína Langsokkur og Emil í Kattholti búa kannski í skógum Svíþjóðar en, eins og allir sem búa í sænskum skógum, versla þau nauðsynjar á stöðum sem líta nákvæmlega svona út.
050
Aggi! @aggi.bsky.social · 15/03/2026
“Go to hell with your money bastard”. Danish artist Asger Jorn’s telegram to Mr Guggenheim after being informed that his artwork had won the Guggenheim award.
031
Aggi! @aggi.bsky.social · 22/02/2026
Þetta er sama fólkið og framleiðir kanelgiffla. Þau vilja að þú vitir að ef þú átt ekki kanelgiffla getur þú búið þá til úr, you guessed it, pulsubrauði og borðað með vanilluís og jarðarberjum.
170
Aggi! @aggi.bsky.social · 22/02/2026
Ég bý við hliðina á einni stærstu brauðfabrikku í Svíþjóð. Kíkti á uppskriftirnar á heimasíðunni hjá þeim einu sinni og í þeirra súra heimi er hægt að borða allt í pulsubrauði. Fiskstautar, kjötbollur, humar, steiktur banani… Bara sky is the limit sko.
1130
Aggi! @aggi.bsky.social · 21/02/2026
Mér hefur brugðið fyrir tvisvar á street view. Einu sinni hjólandi, og einu sinni fyrir utan galleríið okkar, þá sem hálf-gagnsæ afturganga (lengst til vinstri undir ísfánanum)
190
Aggi! @aggi.bsky.social · 20/02/2026
Hér er ég á google street view að hjóla á vinnustofuna mína í gallabuxum.
080
Aggi! @aggi.bsky.social · 06/02/2026
Neyðarkallinn á lyklakippunni minni er farinn að líkjast afturgöngu sem man gæti rekist á ef man villist í Möðrudalsöræfum
Veðraður neyðarkall með snjó í bakgrunni
0160
Aggi! @aggi.bsky.social · 30/01/2026
Skítaveður og sænsk yfirvöld vara mig við því að geimrusl gæti fallið á mig í dag sirka klukkan 13:00.
060
Aggi! @aggi.bsky.social · 12/01/2026
Matargagnrýni Agga: Kvöldmaturinn var írönsk sviðasúpa sem ég prufaði af forvitni á búllu í hverfinu mínu. Niðurstaða: “meh” Virðist bara vera sviðakjammi sem er soðinn í algert mauk með smá sítrónu og borðaður með skeið.
Brauð og maukaður kindahaus í skál.
050
Aggi! @aggi.bsky.social · 09/01/2026
Ef einhver saknar stemningarinnar á Hlemmi sirka 2001 þá bendi ég viðkomandi á skiptistöðina við Värnhem í Malmö. Basically alveg eins.
Skiptistöðin við Värnhem, Malmö, í desember 2026.
0110
Aggi! @aggi.bsky.social · 23/12/2025
Rækjusalatsborgari er algerlega í takt við Svíþjóð samtímans. Getur kíkt uppskriftirnar á heimasíðu Pågen, framleiðendur kanelgiffla, til að fræðast um sænska matargerð
Bjúgu í pítabrauði? Hví ekki?Banani í pulsubrauði með súkkulaðisósu!Fiskstautur í pulsubrauðiKanelsnúðafylltur banani
031
Aggi! @aggi.bsky.social · 23/12/2025
Ó svennen gengur svo mikið, mikið lengra
110
Aggi! @aggi.bsky.social · 19/12/2025
Sé að Malmöíska fjöldahreyfingin hefur náð til íslands. “Ef ekki þú, þá hver? Kastaðu rafskútu í kanalinn”
Límmiði með textanum: Ef ekki þú, þá hver? Kastaðu rafskútu í kanalinn.
020
Aggi! @aggi.bsky.social · 13/12/2025
Ég á ekkert líf og er búinn að leysa þessa gátu
030
Aggi! @aggi.bsky.social · 13/12/2025
Þegar ég bjó í norður-Svíþjóð, í borg svipað langt í norðri og Reykjavík, þá voru sum strætóskýlin með sérstökum dagsbirtuljósaperum í stað auglýsingaskilta. Þetta var eitthvað prójekt sem átti að minnka skammdegisþunglyndi.
130
Aggi! @aggi.bsky.social · 08/12/2025
I did a similar thing on Skaftafellsjökull glacier in 2013. I left a bronze statue standing on the ice as a future tombstone of sorts. I didn’t imagine it would happen within my lifetime. It took six years. More phots and text here, if you’re curious: arngrimur.persona.co/Glacier-Marker
021
Aggi! @aggi.bsky.social · 21/11/2025
In my neighbourhood in Malmö, Sweden, they use horse-drawn carriages instead of garbage trucks to reduce traffic of heavy vehicles.
A horse-drawn garbage carriage in Augustenborg, Malmö
110
Aggi! @aggi.bsky.social · 19/11/2025
Kneel before him!
010
Aggi! @aggi.bsky.social · 16/11/2025
Af einhverjum ástæðum er internetið búið að ákveða að ég hafi áhuga á að gerast lestarstjóri eða strætóbílstjóri á norðurlöndunum, svo nú fæ ég endalausar auglýsingar um atvinnutækifæri í þeim bransa. Nei internet, ég hef ekki áhuga á að keyra strætó í Tromsö. Ég er ekki einu sinni með bílpróf.
Auglýsing þar sem starf lestarstjóra í mið-Svíþjóð er mært í rjáfur
1110
Aggi! @aggi.bsky.social · 06/11/2025
Vinnan í dag: síðasta sítrónukakan af tíu, alein og yfirgefin.
Lítil sítrónukaka bíður örlaga sinna á svörtu borði.
1100
Aggi! @aggi.bsky.social · 03/11/2025
Ekki nóg með það, þá var hann að rúlla framhjá mér á lestarstöð í Malmö í þessum töluðu orðum
Skánsk lest sem ber nafnið Ernst-Hugo Järegård. Nafnið er fyrir ofan lestarstjórahurðina.
110
Aggi! @aggi.bsky.social · 02/11/2025
Vissir þú að Ernst-Hugo Järegård (danskjävlar kallinn í Riget) steig sín fyrstu spor á hvíta tjaldinu í kvikmyndinni Raggargänget?
Raggargänget kvikmyndaplakat
120
Aggi! @aggi.bsky.social · 02/11/2025
Það hefur verið bent á líkindin með baðherbergi Saddam Husseins.
Ljósmynd Andrew Muellers af íburðarmiklu salerni og rassavaski Saddam Husseins
040